Innlent

Skora á Rögnu að gefa kost á sér til forseta

Mynd/Anton Brink
„Ragna hefur verið duglegur og mannlegur dómsmálaráðherra," segir Kristín Sævarsdóttir sem hefur stofnað síðu á samskiptavefnum Facebook þar sem skorað er á Rögnu Árnadóttur, fyrrverandi dómsmála- og mannréttindaráðherra, að gefa kost á sér í forsetakosningunum sem fara fram eftir tvö ár en þá lýkur fjórða kjörtímabili Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta.

Ragna lét af störfum sem ráðherra í gær en ekki liggur fyrir hvað hún mun taka sér fyrir hendur.

Meðal þeirra sem skora á Rögnu eru leikstjórinn og framleiðandinn Maríanna Friðjónsdóttir og Hrannar Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra. Hann sagðist gær vilja sjá Rögnu á Bessastöðum.

Hægt er að skoða síðuna hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×