Innlent

Forðast á að nota þvaglegg við rannsókn

Þvagleggsmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands.
Þvagleggsmálið var tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands.

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið fellst á það sjónarmið setts umboðsmanns Alþingis að ekki hafi verið gætt að grundvallarreglu um meðalhóf þegar þvagleggur var notaður í svonefndu þvagleggsmáli, sem upp kom hjá sýslumannsembættinu á Selfossi fyrir fáeinum árum. Þá telur ráðuneytið jafnframt að forðast eigi að nota þvaglegg til að taka þvagsýni í þágu rannsóknar sakamála.

Mál konunnar, sem grunuð var um ölvunarakstur vorið 2007, vakti mikla athygli þegar í ljós kom að lögreglan á Selfossi þurfti að beita valdi til að taka þvagsýni. Lögregla fékk lækni til að setja upp þvaglegg til að taka sýni gegn vilja konunnar. Héraðsdómur komst í framhaldinu að þeirri niðurstöðu að lögreglan hefði ekki farið út fyrir sínar valdheimildir með því að láta setja upp þvaglegginn.

Settur umboðsmaður Alþingis, Róbert R. Spanó, tók málið til athugunar að eigin frumkvæði, þar á meðal málsmeðferð lögreglu í tilefni af þvinguðum þvagsýnatökum og þá meðal annars hvort heimilt hefði verið að notast við þvaglegg. Umboðsmaður hófst handa með athugunina eftir frásagnir í fjölmiðlum af málinu. Konan hafði kvartað til ríkissaksóknara.

Í svörum dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins til setts umboðsmanns kom meðal annars fram að forðast ætti að nota þvaglegg til að taka þvagsýni í þágu rannsóknar sakamáls. Þá taldi ráðuneytið að fallast megi á að í umræddu máli konu, sem sætt hafði slíku úrræði, hefði ekki verið gætt að grundvallarreglunni um meðalhóf. Þá hefði verið réttara að þeir lögreglumenn sem aðstoðuðu við töku þvagsýnisins hefðu allir verið kvenkyns ef unnt hefði verið að koma slíku við og þá í samræmi við ákvæði stjórnarskrárinnar. Þá kom fram að ráðuneytið hefði óskað eftir því við ríkislögmann að hann tæki mál umræddrar konu til meðferðar, kæmi fram rökstudd krafa um slíkt. Í ljósi svara ráðuneytisins, og að því virtu að settur umboðsmaður hafði haft málið athugunar að eigin frumkvæði, taldi hann ekki tilefni til að aðhafast frekar.

jss@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×