„Ég óttast ekki dómstólaleiðina“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 3. september 2010 12:15 Ögmundur Jónasson tók í gær við tveimur ráðuneytum og er innanríkisráðherra. Málefni dóms- og mannréttindamála og samgöngu- og sveitarstjórnarmála eru á hans borði. Hér er hann að taka við lyklavöldum af Rögnu Árnadóttur í gær.
Nýr innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, sem hætti á sínum tíma sem heilbrigðisráðherra vegna andstöðu við Icesave-málið er nú bjartsýnn á að farsæl niðurstaða fáist í málinu. Samningaviðræður standa yfir í Lundúnum. Ögmundur Jónasson, þú greindir frá því í gær að aðstæður hefðu breyst í Icesave-málinu. Hvað áttirðu við? „Málið var komið í pólitískan hnút vegna þess að ekki hafði verið leitað eftir nægilega breiðri aðkomu allra stjórnmálaflokka á þingi um málsmeðferð. Á þessu hefur verið ráðin bót. Ný samninganefnd kom að málinu og ég tel að með þessu móti hafi málið verið sett inn í annan farveg. Síðan hefur ýmislegt gerst til að styrkja okkar stöðu," segir Ögmundur Jónasson, nýr innanríkisráðherra. Viðræður samninganefndarinnar undir forystu bandaríska lögmannsins Lee Buchheits standa nú yfir í Lundúnum. Ögmundur segir að það sem gerst undanfarið hafi styrkt stöðu Íslendinga, enda hafi Evrópusambandið sjálft lýst efasemdum um að ríkisábyrgð sé á innstæðum samkvæmt tilskipun um innstæðutryggingar. „Hitt deila menn ekki um að við kynnum að vera dæmd ábyrg engu að síður fyrir greiðslum. Þá vegna þess að ekki hafi verið staðið rétt að málum af okkar hálfu á einhvern hátt," segir Ögmundur. Íslensk stjórnvöld eiga að svara ESA, eftirlitsstofnun EFTA núna í fyrri hluta septembermánaðar. Ef ekki nást samningar við Breta og Hollendinga mun EFTA-dómstóllinn dæma um lagaskylduna en málsmeðferðartíminn þar er um sex mánuðir. „Ég óttast ekki dómstólaleiðina fyrir mitt leyti en að sjálfsögðu, ef hægt er að ná ásættanlegum samkomulagi í þessari milliríkjadeilu, þá væri það mjög gott. Í þeim skilningi er ég bjartsýnn á málið og tel það vera í eðlilegum og heillavænlegum farvegi," segir Ögmundur. Hvað væri ásættanlegur samningur? „Það ætla ég að leggja í mat þeirra sem sitja yfir þessum málum núna úti (í Hollandi innsk.blm). Svo vill maður fá að sjá þá niðurstöðu sem þeir koma með og heyra þeirra röksemdir. Ég held að menn eigi ekki að festa sig í eitt eða neitt í þeim efnum," segir Ögmundur.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira