Innlent

Tilboð í strandsiglingar auglýst í næsta mánuði

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Eitt af síðustu verkum Kristjáns Möller var að taka ákvörðun um að auglýsa tilboð í strandsiglingar.
Eitt af síðustu verkum Kristjáns Möller var að taka ákvörðun um að auglýsa tilboð í strandsiglingar.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að bjóða út strandsiglingar við Ísland og verður útboð auglýst í næsta mánuði. Siglingar munu spara viðhald á vegum en skipafélögin eru afar ósátt við áformin.

Meðal síðustu verka Kristjáns Möller í embætti samgönguráðherra í ríkisstjórn Íslands var annars vegar að kynna minnisblað um fjármál sveitarfélaga fyrir ríkisstjórninni og ákveða útboð á siglingaleiðum með vörur umhverfis Ísland. Ákvörðun um strandsiglingar var tekin eftir margra mánaða undirbúnings- og samráðsferli, þar sem hugmyndirnar voru kynntar fyrir hagsmunaaðilum og þeim sveitarfélögum sem í hlut eiga. Í næsta mánuði mun samgönguráðuneytið auglýsa eftir tilboðum en siglingaleiðin sem verður auglýst miðast við siglingar milli Reykjavíkur, Ísafjarðar og Akureyrar auk Sauðárkróks og Patreksfjarðar.

Strandsiglingar eru taldar henta svokölluðum þolinmóðum vörum og talið er að slit á vegum og viðhaldskostnaður muni líklega minnka um 100-200 milljónir króna á ári. Skipafélögin, Eimskip og Samskip, hafa gagnrýnt áform um strandsiglingar og telja m.a að útboð á siglingaleiðum sé óeðlilegt inngrip stjórnvalda á þessum markaði. Stjórnvöld víða um heim hafa hins vegarið verið að vinna af því að færa flutninga af vegum yfir á sjó, fljótabáta og járnbrautir, að því er fram kemur í skýrslu Samgönguráðuneytisins um strandsiglingar. Í skýrslunni segir jafnframt að flutningsgjald landflutningsaðila til Vestfjarða sé í kringum 180 þúsund krónur en meðalflutningsgjald með með skipi þessa sömu leið sé um 139 þúsund krónur svo þær borgi sig. Það er því ljóst að þetta mun spara flutningsgjöld og má búast við viðbrögðum landflutningsaðila með lækkun á gjöldunum í kjölfar samkeppni frá strandferðaskipinu.

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hefur tekið við samgöngu- og sveitarstjórnarmálum af Kristjáni Möller. Hann sagðist í samtali við fréttastofu styðja áform um strandsiglingar og sagðist vera hlynntur þessari ákvörðun Kristjáns og vera sammála honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×