Innlent

Glansmyndir og afneitun á Alþingi

Mynd/Vilhelm

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin dragi upp ótrúlega glansmynd af stöðu efnahagsmála en forsætisráðherra segir að stjórnarandstaðan vilji ekki sjá ljósið.

Einar K. Guðfinnson, sjálfstæðisflokki, fór í pontu í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun og benti á nýjar bráðabirgðatölur Hagstofunnar sem birtar voru í morgun. Þar kom fram að landsframleiðsa hafi dregist saman um 3,1% að raungildi frá 1. ársfjórðungi til 2. ársfjórðungs. Einar sagði að þessar tölur sýni að verkleysi núverandi ríkisstjórnar sé að koma í ljós og að með málflutningi sínum við upphap þingfundar í gær hafi forsætisráðherra og fjármálaráðherra dregið upp ótrúlega glandsmynd sem lítið eigi skylt við raunveruleikann.







Jóhanna svaraði því til að svo virðist sem stjórnarandstaðan vilji ekki sjá ljósið framundan þegar komi að stöðunni í efnahagsmálum. Víst væru bjartari tímar framundan í því efni.

Þetta hefði það í för með sér að ekki þurfi að grípa til niðurskurðar í eins miklum mæli við fjárlagagerðina og ráð var fyrir gert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×