Ögmundur um ECA: „Misskilningur og bráðræði“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 3. september 2010 12:15 Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, er ekki hrifinn af tilkynningu ECA Programs og segir hana byggða á misskilningi.
Í frétt á vef ECA Programs er vísað á vef samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytisins og sagt að Kristján L. Möller, sem þar er nefndur „Christian L. Möller," hafi skipað Flugmálastjórn Íslands að hefja skráningarferli fyrir þær vélar ECA sem koma eiga til Íslands. Þar lýsir fyrirtækið yfir ánægju sinni og þakklæti vegna samþykkis ríkisstjórnar Íslands og segjast forsvarsmenn fyrirtækisins hlakka til að vinna náið með Flugmálastjórn Íslands. Eitt af síðustu verkum Kristjáns Möller var að senda flugmálastjórn bréf þar sem þeim henni er veitt heimild til undirbúnings á skráningum véla ECA. Þetta var síðan leiðrétt, en ríkisstjórnin taldi að ekki hefði legið fyrir sátt um slíkt. Ögmundur Jónasson, nýr innanríkisráðherra, tók m.a við málefnum sveitarstjórnar- og samgöngumála. „Þetta er misskilningur og bráðræði af hálfu þessa fyrirtækis því að þessi mál eru enn til athugunar. Það breytir engu um aðkomu mína að málinu. Þá á bara einfaldlega eftir að svara ákveðnum spurningum. Þá er það tvennt, hvort þessi starfsemi samrýmist ákvæðum stjórnarsáttmála um friðsamlega utanríkisstefnu og þá vil ég að menn fái heildarsýn og viti hvaða fyrirtæki þetta raunverulega er. Vandinn er sá að það er ekki þekkt neinsstaðar og reynsla af því lítil. Í annan stað eru spurningar sem lúta að stjórnsýslunni," segir Ögmundur. Hann segir að Flugmálastjórn hafi verið beðin um að afla upplýsinga um tíu efnisatriði sem lúti að skráningu þessara véla. Á meðan þurfi forsvarsmenn ECA Programs að sýna biðlund. Þetta eru vopnlausar vélar og Suðurnesin eru sá landshluti á Íslandi þar sem atvinnuleysi er mest. Mun þetta ekki skapa mikla atvinnu og tekjur fyrir það fólk sem þarna býr? „Ef þetta er skaðlaus starfsemi sem uppfyllir allar kröfur og er í samræmi við okkar stjórnsýslu, þá er ekki óttast. En ef svo er ekki þá verða leyfin ekki veitt, en við skoðum þetta málefnalega og komumst að niðurstöðu í kjölfarið," segir Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.
Tengdar fréttir ECA lítur svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt Forsvarsmenn fyrirtækisins ECA Program Limited líta svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt fyrir starfsemi sinni á Íslandi. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins. Þar birtist í gær frétt með fyrirsögninni: „Icelandic government grants ECA final operating license" sem á íslensku útleggst sem: „Íslensk stjórnvöld veita ECA endanlegt starfsleyfi. 3. september 2010 10:39 Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Fleiri fréttir Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Sjá meira
ECA lítur svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt Forsvarsmenn fyrirtækisins ECA Program Limited líta svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt fyrir starfsemi sinni á Íslandi. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins. Þar birtist í gær frétt með fyrirsögninni: „Icelandic government grants ECA final operating license" sem á íslensku útleggst sem: „Íslensk stjórnvöld veita ECA endanlegt starfsleyfi. 3. september 2010 10:39