Þyrla flytur krana upp á Þríhnúkagíg 4. september 2010 05:00 Stórhuga áhugamenn, sem vilja opna almenningi sýn inn í risahvelfingu í Bláfjöllum, fá tækifæri til mælinga í tengslum við gerð sjónvarpsþáttar.
Íslenskt kvikmyndatökulið hyggst síga í risahellinn Þríhnúkagíg í Bláfjöllum og mynda hellinn fyrir sjónvarpsþátt um eldsumbrot á Íslandi. Þátturinn er framleiddur fyrir sjónvarpsstöðina National Geographic. Ætlunin er að nota þyrlu til að flytja bómukrana að gígopinu og skjóta bómunni yfir opið. Neðan í hana verður síðan fest karfa sem mannskapurinn sígur niður í. Þríhnúkagígur í Bláfjöllum er talinn hafa myndast fyrir um eitt þúsund árum. Hellirinn er í raun gosrás, hátt í tvö hundruð metra djúpur og jafnvel dýpsti hraunhellir í heimi. Sérstakt félag er um verndun og nýtingu Þríhnúkagígs. Félagsmenn sjá fyrir sér að opna almenningi sýn í undraveröldina í hvelfingu gígsins með sérstökum göngum sem opnast eiga inn í hellisvegginn. Liðsmenn úr Þríhnúkafélaginu verða í forgrunni þegar hellirinn verður myndaður. Sjálfir munu þeir nota tækifærið og framkvæma ýmsar mælingar sem á skortir. Um þessar mundir er félagið enn að afla um 60 milljóna króna til að hægt sé að meta umhverfisáhrif og hagræna þætti við að gera hellinn aðgengilegan almenningi. Íslenska kvikmyndafyrirtækið Profilm annast gerð þáttarins fyrir National Geographic. Anna Dís Ólafsdóttir framleiðslustjóri segir enn of snemmt að upplýsa nánar um verkefnið. - gar
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Sjá meira