Gálga stolið af sprengjulistamanni Valur Grettisson skrifar 3. september 2010 11:45 Gálginn sem var stolið. „
Hann virðist hafa verið tekinn í sundur og fjarlægður," segir listamaðurinn Þórarinn Jónsson en fjögurra metra hár gálgi sem stóð á Daníelslippi er horfinn. Gálginn var listaverk og tilheyrði sýningunni „Slipp my mind". Sjö aðrir listamenn sýndu einnig verk sín á sýningunni. Þau verk fengu að standa í friði. „Þegar ég kom niður á höfn á mánudaginn þá var verkið horfið," segir Þórarinn en sýningin opnaði síðasta laugardag. Verkið fékk því að standa óhreyft í tæpa tvo sólarhringa. Aðspurður segist Þórarinn ekki hafa hugmynd um það hvað varð af verkinu. Hann bað sýningastjórann um að spyrjast eftir því en sú leit hefur engum árangri skilað. En Þórarinn grunar starfsmenn við höfnina um græsku: „Ég held að þetta hafi bara farið fyrir brjóstið á einhverjum hafnarverkamönnum og þeir því tekið sig til og rifið verkið í sundur með kúbeini og þar með gefið sitt álit á verkinu." Þórarinn segist ekki kippa sér upp við þjófnaðinn sem hann líkir við að stela málverki af listasýningu. Frá opnun sýningarinnar Slipp my mind. Þess má geta að sýningin stendur enn yfir þrátt fyrir gálgamissinn. „Ég er eiginlega orðinn vanur þessu," segir Þórarinn en listsköpun hans varð til þess að hann var handtekinn í Kanada fyrir um tveimur árum síðan. Þá bjó hann til sprengjulistaverk. Verkið skildi hann eftir á opinberum vettvangi í Toronto, þar sem hann stundaði nám, og á verkinu stóðu eftirfarandi skilaboð: This is not a bomb. Engu að síður mætti sprengjusveit lögreglunnar á vettvang. Og í kjölfarið var Þórarinn handtekinn. Hann þurfti að dúsa í tvo daga í fangelsi áður en honum var svo sleppt. Síðar var hann sektaður fyrir athæfið auk þess sem hann var rekinn úr listaháskólanum. Þórarinn segir það versta við gálgaþjófnaðinn að hann fékk ekki tækifærið til þess að taka almennilegar myndir af honum. Spurður hvort hann ætli að kæra þjófnaðinn segist Þórarinn ekki hafa gert það upp við sig. „Annars er gaman að fá viðbrögð við listaverkunum sem maður gerir, hvort sem þau eru góð eða slæm," segir Þórarinn að lokum. Hafi einhver upplýsingar um afdrif verksins er sá sami beðinn um að hafa samband við Vísi með því að senda póst á frettir@stod2.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira