Innlent

Kristján Már ráðinn fréttastjóri Stöðvar 2

Kristján Már við eldgosið í Fimmvörðuhálsi í vor. Hann segir fréttastjórastöðuna ekki koma í veg fyrir að hann sinni áfram störfum á vettvangi.
Kristján Már við eldgosið í Fimmvörðuhálsi í vor. Hann segir fréttastjórastöðuna ekki koma í veg fyrir að hann sinni áfram störfum á vettvangi.
Fyrr í dag var kynnt nýtt skipurit fyrir fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Kristján Már Unnarsson var ráðinn fréttastjóri Stöðvar 2.

Kristján Már hefur starfað við fréttastofu Stöðvar 2 í rúm tuttugu ár. Hann fékk blaðamannaverðlaunin árið 2007 fyrir upplýsandi fréttir af landsbyggðinni og hefur leitt fréttir af fjölmörgum mikilvægum málum í gegnum árin. Kristján tilkynnti á fundi í dag að fréttastjórastaðan komi ekki í veg fyrir það að hann sinni störfum á vettvangi af fullum krafti.

Nýtt skipurit fréttastofunnar.

Freyr Einarsson verður ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Gunnar Reynir Valþórsson verður fréttastjóri Vísis, Eva Georgsdóttir framleiðslustjóri fréttastofunnar og Tinni Sveinsson vefstjóri Vísis.

Hér fyrir neðan er bréf sem Freyr Einarsson ritstjóri sendi í tilefni dagsins:

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×