Innlent

SAMFOK fagnar framtaki foreldra í vesturbænum

Stjórn SAMFOK, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, fagnar framtaki foreldra í málefnum Vesturbæjarskóla samkvæmt tilkynningu sem samtökin sendu á fjölmiðla.

Jafnframt lýsir stjórnin yfir ánægju sinni með að foreldrar hafi með samstilltu átaki náð að hnykkja ákvörðun um að notast við niðurnídda skúra í rekstri frístundaheimilis skólans í vetur, sem að auki áttu að taka stóran hluta skólalóðar. Skúrarnir voru fjarlægðir í vikunni.

SAMFOK hvetur svo alla skólaforeldra til þess að vera vakandi yfir umhverfi og líðan barna sinna og láta í sér heyra, bæði hvað varðar það sem vel er gert og ef úrbóta er þörf. Minnt er á að foreldrar eiga að hafa áhrif á skólastarf samkvæmt grunnskólalögum og það geta þeir gert í gegnum fulltrúa sína í skólaráði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×