Fleiri fréttir

Sóley kannar réttarstöðu sína

Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn Reykjavíkur, segist ætla að kanna réttarstöðu sína vegna ummæla sem látin voru um hana falla í kosningabaráttunni fyrir sveitarstjórnarkosningarnar.

Sá grasfræjum til að binda gosöskuna

Á næstu dögum verður byrjað að sá grasfræi í 40 ferkílómetra lands í grennd við Eyjafjallajökul. Að sögn Sveins Runólfssonar landgræðslustjóra er talið að með sáningunni verði unnt að draga úr öskufoki í byggð á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti.

Íslendingur formaður alþjóðasamtaka flugumsjónarmanna

International Federation of Airline Dispatcher Associtaon (IFALDA) sem er alþjóðasamtök flugumsjónarmanna kaus Karl Friðriksson formann flugumsjónarmann á Íslandi sem vara forseta IFALDA í byrjun maí, segir í tilkynningu.

Lúðvík Geirsson áfram bæjarstjóri

Samkomulag um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar milli Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs var staðfest á fundum flokkanna í kvöld.

Stjórnarandstaðan mætir betur á nefndarfundi

Stjórnarliðar mæta sjaldnar á nefndarfundi en stjórnarandstaðan. Stjórnarandstaða mætti á 81% funda en stjórnarliðar á 75%, samkvæmt yfirliti um fundarsetu sem Alþingi senti fjölmiðlum. Minnsta mætingin er í menntamálanefnd.

Jóhanna: Már á að taka þau laun sem eru í boði

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir ekki eðlilegt að Már Guðmundsson seðlabankastjóri komi með tillögur að því hvernig fara megi í kringum lög kjararáðs Seðlabankans og hækka þannig laun sín.

Rætt um þinglok

Á annað hundrað mála bíða afgreiðslu Alþingis en þingstörfum á að ljúka eftir helgi, segir í frétt RÚV.

Margt bendir til að gæsluvarðhaldsúrskurðum yfir unglingum gæti fjölgað á næstu árum. Þetta segir forstjóri Barnaverndarstofu. Hann varar við því að setja á fót sérstakt unglingafangelsi - það gæti leitt til fleiri fangelsisdóma yfir börnum.

Undirbúningsframkvæmdir við Búðarhálsvirkjun ekki enn hafnar

Undirbúningsframkvæmdir við Búðarhálsvirkjun, sem mikilvægt þótti að vinna í sumar, hafa enn ekki hafist vegna ágreinings Landsvirkjunar og lægstbjóðanda og gæti svo farið að verkið tefðist um heilt ár. Þá hefur Landsvirkjun enn ekki tekist að fjármagna verkið í heild.

Laun seðlabankastjóra rædd á Alþingi

Enn var þrengt að forsætisráðherra vegna launamála seðlabankastjóra í óundirbúnum fyrirspurnatíma í Alþingi í dag. Forsætisráðherra svaraði gagnrýnisröddunum fullum hálsi.

Fyrrverandi bankastjórar Seðlabankans líklega lausir allra mála

Þrír fyrrverandi bankastjórar Seðlabankans og fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins eru væntanlega lausir allra mála vegna starfa sinna í aðdraganda bankahrunsins, eftir að settur ríkissaksóknari komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri ástæða til sakamálarannsóknar á hendur þeim. Þingmaður Hreyfingarinnar telur niðurstöðuna vera fyrsta skrefið af mörgum í hvítþvotti yfirstéttarinnar á sjálfri sér.

Borgarfjarðarbrú lokuð vegna eldsvoða í bifreið

Borgarfjarðarbrú er lokuð en að sögn sjónarvotts sem hringdi í Vísi þá stendur bifreið í ljósum logum á brúnni. Slökkvilið Borgarbyggðar var komið á vettvang. Miklar raðir hafa myndast báðum megin við brúnna að sögn sjónarvotta.

Stakk konu vegna kveðskapar

Maður á áttræðisaldri var dæmdur í átján mánaða langt fangelsi fyrir að stinga konu í brjóstið með eldhúshníf eftir að þau rifust um kveðskap. Árásin átti sér stað á heimili mannsins í Reykjavík í apríl á síðasta ári.

Hreyfingin kallar á siðferðilega forystu vegna Verne Holdings

Þingmenn Hreyfingarinnar kölluðu eftir siðferðilegri forystu meirihluta Alþingis við afgreiðslu frumvarps um heimild til iðnaðarráðherra um að ganga til samninga við Novator um gagnaver á Suðurnesjum. Frumvarpið var samþykkt með 36 atkvæðum gegn tólf, sjö þingmenn sátu hjá en tuttugu voru fjarstaddir.

Starfsmenn Kópavogsbæjar rændir um hábjartan dag

Starfsmönnum Kópavogsbæjar var heldur brugðið á föstudaginn síðastliðinn þegar að tveir menn fóru inn á skrifstofur bæjarins um hábjartan daga og stálu ýmsum verðmætum frá starfsfólki.

Stúdentar boða til mótmæla fyrir framan menntamálaráðuneytið

Stúdentaráð Háskóla Íslands, í samvinnu við SÍF og námsmannahreyfingar Háskólans í Reykjavík, Háskólans við Bifröst, Landbúnaðarháskólanum og Háskólanum á Akureyri, hafa efnt til mótmæla fyrir framan Mennta- og menningarmálaráðuneyti á morgun kl. 12 að hádegi.

Ákærð fyrir að kasta glasi í andlit kynsystur sinnar

Kona á þrítugsaldri hefur verið ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás þegar hún á að hafa glasi í andlit konu á svipuðum aldri á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í ágúst á síðasta ári.

Samningaviðræður á lokastigi í Hafnarfirði

„Þetta er bara að detta inn núna í fyrri hluta vikunnar, þá klárast þetta,“ segir Guðmundur Rúnar Árnason, efsti maður á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, aðspurður um hvernig meirihlutaviðræður í bænum ganga. Eins og hefur komið fram hafa Samfylkingin og Vinstri grænir fundað síðustu daga um myndun meirhluta í bænum.

Lögreglan bjargaði andarungum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu björguðu andarungum og móður þeirra í hádeginu í dag. Fjölskyldan hafði villst af leið og hélt til í bakgarði á Frakkastígnum.

Ekki ástæða til þess að hefja sakamálarannsókn

Settur ríkissaksóknari, Björn L. Bergsson, tilkynnti í dag að það sé ekki ástæða til þess að hefja sakamálarannsókn á hendur þriggja seðlabankastjóra og fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Hann tilkynnti ákvörðun sína fyrir þingnefnd sem fer yfir niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis í dag.

Nýr meirihluti á Akranesi kynntur klukkan sjö

Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og óháðir og Vinstri grænir munu skrifa undir stefnuyfirlýsingu nýs meirihluta Akraness klukkan 19 í kvöld. Fyrsta verkefni meirihlutans verður að auglýsa verður nýjum bæjarstjóra í samvinnu við ráðningastofu.

Skeytin flugu á Alþingi

Forsætisráðherra skoraði á þingmann Sjálfstæðisflokks á Alþingi í morgun að greina frá styrkjamálum sínum þegar hann beindi til hennar fyrirspurn um launamál seðlabankastjóra. Þingmaðurinn kallaði svarið auma smjörklípu.

Inspired by Iceland slær í gegn

Átakið Inspired by Iceland hefur heldur betur slegið í gegn ef marka má tilkynningu sem iðnaðarráðuneytið birtir á heimasíðu sinni. Eins og hefur komið fram voru Íslendingar hvattir til að senda vinum, fjölskyldu og viðskiptafélögum erlendis myndband sem er ætlað að veita fólki innblástur og hvetja ferðalanga til Íslands.

Smágos í gangi með nýju öskufalli

Sprengingar urðu enn í toppgíg Eyjafjallajökuls í nótt. Dökkur öskubólstur barst til himins og sást aska úr honum falla á jökulinn. Jarðvísindamenn segja að smágos sé í gangi eldfjallinu.

Þjófs með dádýrshaus leitað

Lögregla leitar grunsamlegs manns með hyrndan dádýrshaus og eldgamlan framhlaðning í fórum sínum. Þjófur sem braust inn í sumarbústað í Miðhúsaskógi í Árnessýslu hafði á brott með sér forláta dádýrshaus og ævagamla byssu, sem er safngripur og ónothæf.

Vill að fólk njóti lágmarks friðhelgi

„Nei, ég ætla ekkert að fara yfir það í augnablikinu," segir Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, aðspurð um að útskýra ummæli sín frekar sem hún lét falla í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. Þar sagðist hún ætla að skoða réttarstöðu sína vegna ummæla sem voru látin falla um hana í kosningabaráttunni.

Gott loft í borginni

Loftgæði í Reykjavík í morgun voru góð og töluvert undir heilsuverndarmörkum. Sviffryk mælist nú tæplega fjörutíu míkrógrömm á rúmmetra en heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Íslenski skálinn slær í gegn í Sjanghæ

Heildarfjöldi gesta íslenska skálans á heimssýningunni í Sjanghæ í Kína fór fram úr fjölda Íslendinga fyrir viku en alls höfðu 356.219 manns heimsótt skálann þá.

Strætó gæti sparað milljónir í vistakstri

Strætó bs. gæti sparað um 65 milljónir árlega með því að vistaka vögnum sínum, en fyrirtækið hefur ekki áhuga á hagræðingu. Þetta segir Þórólfur Gunnarsson framkvæmdastjóri Saga System, fyrirtækis sem sérhæfir sig í vistakstri.

Fiskur alinn á korni

Til stendur að hefja hlývatnseldi á svokölluðum beitarfiski á Flúðum. Tegundin er afar vinsæll matfiskur víða um heim og er um stærstu fiskeldistegund heims að ræða. Eldið er hluti af uppbyggingu á orkufrekum matvælaiðnaði á svæðinu.

Uppstokkun gæti orðið dýr

Stjórnendur Haga eru mótfallnir stjórnarfrumvarpi um breytingar á Samkeppniseftirlitinu. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi í mars og gæti veitt Samkeppniseftirlitinu víðtækar heimildir til að grípa inn í rekstur og skipulag fyrirtækja sem stofnunin telur að hamli samkeppni.

Opnað senn í Laugaskarði

Viðgerð og málun á laugarkeri sundlaugarinnar í Laugaskarði er lokið að því er kemur fram á heimasíðu Hveragerðisbæjar. Áætlað er að opna sundlaugina aftur á næstkomandi föstudag.

Tónlistarveita útilokar ekki landflótta

„Við eigum í viðræðum við fjárfesta og erum langt komin. En þetta tekur tíma,“ segir Haukur Davíð Magnússon, framkvæmdastjóri og einn stofnenda tónlistarveitunnar og netsamfélagsins Gogoyoko. „Það er ekkert þolinmótt fjármagn á Íslandi þótt margir gefi sig út fyrir að eiga það og ákvarðanafælni ríkjandi,“ bætir hann við.

Jafnvel meirihluti á morgun

„Við munum greina frá niðurstöðum okkar á morgun eða miðvikudag,“ segir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, oddviti Vinstri grænna en viðræður VG og Samfylkingar um myndun nýs meirihluta í Hafnarfirði hófust fyrir helgina.

Oftast strikað yfir Gísla Martein

Tæp nítján prósent kjósenda Sjálfstæðisflokksins, 3.776 manns, strikuðu yfir eða færðu til nafn Gísla Marteins Baldurssonar, sem var í fimmta sæti listans.

Nemar óttast þrengri reglur

Stúdentaráð Háskóla Íslands mótmælir harðlega tillögu stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) að breyttum reglum um lánasjóðinn. Það skorar á menntamálaráðherra að endurskoða breytingarnar. Þær hafi í för með sér „gríðarlega hagsmunaskerðingu“ fyrir fjölda nema.

Jón vill bæði ísbjörn og fleiri leikskólapláss

Jón Gnarr tekur ekki afstöðu til þess hvort skynsamlegra sé að koma fleiri börnum inn á leikskóla í borginni eða koma upp aðstöðu fyrir ísbjörn í húsdýragarðinum. Hann vill gera hvorutveggja og segir alþjóðleg dýraverndunarsamtök hafa sýnt vilja til að styrkja komu ísbjarnar í garðinn.

Jóhanna: Ræddi ekki við Má um launakjör

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, vísar á bug öllum ásökunum og fréttum um að hún hafi með nokkrum hætti komið að því að ákvarða laun Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, eða gefa fyrirheit í tengslum við launakjör hans. „Fréttir annars efnis eru beinlínis rangar," segir Jóhanna í tilkynningu sem send var fjölmiðlum á sjöunda tímanum.

Sjá næstu 50 fréttir