Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Grunur um íkveikju á Selfossi Lögreglu grunar að kveikt hafi verið í kjallara húss á Selfossi síðastliðið föstudagskvöld. Skömmu fyrir klukkan átta barst tilkynning um að að mikinn reyk legði frá fjölbýlishúsi við Austurveg 34. Reykkafarar fóru inn í húsið og fundu eld í þvottaherbergi í kjallara. Eldurinn var slökktur og húsið í framhaldinu reykræst. Engum varð meint af, að sögn lögreglu. Á jarðhæð hússins er verslun Tölvulistans og hárgreiðslustofa. 15.2.2010 14:02
Stjórn Orkuveitunnar samþykkir að ganga til samninga um kísilver Meirihluti stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi nú í hádeginu að heimila stjórnarformanni og forstjóra að ganga til samninga um sölu rafmagns til kísilverksmiðju í Þorlákshöfn. Einnig voru drög að orkusamningi samþykkt. Þetta var samþykkt með atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og atkvæði fulltrúa Akraneskaupstaðar. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna sátu hjá við afgreiðslu málsins. Stefnt er að því að fulltrúar Orkuveitunnar og hins erlenda fyrirtækis undirriti samningsdrögin síðdegis í dag. 15.2.2010 14:01
Ók óvart á tvær stúlkur Tvær stúlkur á tvítugsaldri urðu fyrir bifreið í Háengi á Selfossi fljótlega eftir miðnætti á laugardag. Atvikið varð með þeim hætti að ökumaður, sem ekki var kunnugur bifreiðinni og einnig er á tvítugsaldri, ætlaði að aka aftur á bak út úr innkeyrslu við hús. Bifreiðin fór þá skyndilega áfram og á stúlkurnar sem stóðu fyrir framan bifreiðina. 15.2.2010 13:49
Efast um lögmæti niðurskurðar Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi, efast um lögmæti niðurskurðar ríkisstjórnarinnar sem ákvað nýverið að loka fyrir nám grunnskólanemenda í framhaldsskólaáföngum. Auk þess sé verið að velta kostnaði yfir á sveitarfélög. 15.2.2010 13:33
Vonskuveður á Vestfjörðum Slæmt ferðaveður er á Vestfjörðum og biður Vegagerðin vegfarendur um að kynna sér vel ástand á þeim leiðum sem þeir hyggjast fara. 15.2.2010 13:31
Rúmlega 80 manns á þjóðfundi á Sauðárkróki Rúmlega 80 manns sóttu þjóðfund á Sauðárkróki á laugardag en hann var sá þriðji í röð slíkra funda sem haldnir eru um landið vítt og breitt. Næsti fundur verður á laugardaginn kemur í Borgarnesi. 110 manns voru á þjóðfundi í Bolunarvík fyrr í mánuðinum og 80 manns á Egilsstöðum í lok janúar. 15.2.2010 12:52
Engin ákvörðun í máli Ásbjörns Ekki liggur fyrir ákvörðun um hvort hafin verði rannsókn hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra á ólögmætri arðgreiðslu Ásbjörns Óttarssonar, alþingismanns, út úr eigin félagi. Þá hefur deildin ekki skoðað lánveitingar Tryggva Þórs Herbertssonar alþingismanns úr einkahlutafélaginu Varnagla. 15.2.2010 12:45
Báðir enn á gjörgæsludeild Báðir mennirnir sem misstu meðvitund um borð í fjölveiðiskipinu Hoffelli á Fáskrúðsfirði í gærmorgun er enn á gjörgæsludeild Landspítalans. Annar er laus úr öndunarvél og á batavegi. Hinum er haldið sofandi í öndunarvél. 15.2.2010 12:16
Stefnt að undirritun samninga um kísilver síðdegis Stefnt er að því að skrifað verði undir samninga um kísilver í Þorlákshöfn síðar í dag, svo fremi að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur fallist á orkusamnig á fundi sínum nú í hádeginu, en með fyrirvara um að fjármögnun takist. Bæjarstjóri Ölfuss segir þetta það jákvæðasta sem gerst hafi lengi í atvinnumálum. 15.2.2010 12:16
Funda með breskum og hollenskum embættismönnum Það ræðst á næstu dögum hvort Bretar og Hollendingar séu tilbúnir að ganga til nýrra viðræðna um Icesave. Íslenska samninganefndin fundar með breskum og hollenskum embættismönnum í dag. 15.2.2010 12:09
Kannað hvers vegna hópurinn fór á Langjökul Sýslumaðurinn í Árnessýslu segir að rannsakað verði af hverju farið var með ferðamannahóp á Langjökul í gær, þrátt fyrir afleita veðurspá. Skoska ferðakonan, sem björgunarsveitarmenn fundu á jöklinum í nótt er til aðhlynningar á Landsspítalanum, en sonur hennar hefur náð sér eftir hrakningana. 15.2.2010 12:00
Lagastofnun býr til kynningarefni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur falið Lagastofnun Háskóla Íslands að semja hlutlaust kynningarefni fyrir almenning vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave lögin sem fram fer laugardaginn 6. mars 2010. Einstaklingar sem hafa tekið þátt í umræðum á opinberum vettvangi um það efni sem kosið er um í þjóðaratkvæðagreiðslunni koma ekki að verkefninu. 15.2.2010 11:15
Gríðarleg fjölgun kynferðisafbrotamála Það hefur orðið gríðarleg fjölgun kynferðisafbrotamála á síðustu 10 - 15 árum, segir Hulda Elsa Björgvinsdóttir, settur saksóknari hjá Ríkissaksóknara. 15.2.2010 11:11
Eyrarrósin afhend á Bessastöðum Eyrarrósin verður afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra, Eiríksstaðir í Haukadal og Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildarmynda á Patreksfirði eru þau þrjú verkefni sem tilnefnd eru að þessu sinni. 15.2.2010 09:35
Ráðherrar lesa úr Passíusálmunum Líkt og undanfarin ár lesa alþingismenn og ráðherrar úr Passíusálmunum í Grafarvogskirkju alla virka daga föstunnar. Hver lestur hefst klukkan 18 og tengist stuttri helgistund í kirkjunni, sem tekur um fimmtán mínútur. 15.2.2010 09:31
Margir bílar útaf og aðrir fastir Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út upp úr miðnætti til að aðstoða fólk sem hafði lent í vandræðum í óveðri á Ólafsfjarðarvegi up úr miðnætti og sat fast í bílum sínum. 15.2.2010 06:59
Mæðgin fundin á Langjökli Björgunarsveitarmenn fundu skoska ferðakonu og 12 ára son hennar, sem saknað hafði verið á Langjökli frá því klukkan hálf sex í gærkvöldi, að þau urðu viðskila við samferðafólk sitt, en hópurinn var á vélsleðum. 15.2.2010 06:51
Milljónaniðurfelling fyrir heimili landsins Lögin eru skýr, óheimilt er að gengistryggja lán. Kröfum fjármálafyrirtækja hefur verið hafnað. Þetta er eins og heimilin í landinu hafi fengið milljónaniðurfellingu á skuldum. 15.2.2010 06:30
Vilja breytt lög um þjóðlendur Landssamtök landeigenda á Íslandi skora á Alþingi og ríkisstjórn að breyta lögum um þjóðlendur þannig að þar verði sett inn ótímabundið heimildarákvæði um endurupptöku mála komi fram ný sönnunargögn í þjóðlendumálum sem lokið er með dómum. Þetta var samþykkt samhljóða á aðalfundi samtakanna í Reykjavík. 15.2.2010 06:15
Halldór rukkaði Kópavogsbæ nokkrum árum eftir verklok Verkin sem Halldór Jónsson verkfræðingur vann fyrir Kópavogsbæ og Fréttablaðið greindi frá á laugardag tengjast sjö framkvæmdum í bænum á árabilinu 2003 til 2008. 15.2.2010 06:00
Hafa hag af styrkingu krónu Heppilegasta leiðin til afnáms gjaldeyrishafta er að ríkisstjórn og Seðlabanki bjóði fram skuldabréf í erlendum gjaldmiðlum til allt að fimmtán ára á móti eignum fjárfesta í krónum. Þetta er mat Samtaka atvinnulífsins (SA) og kemur fram í ítarlegri aðgerðaáætlun sem kynnt var á föstudag. 15.2.2010 05:00
Ekki tímabært að spyrja Álftnesinga Bæjarráð Álftanes ætlar að kanna hug íbúa sveitarfélagsins til sameiningar við önnur sveitarfélög samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um Icvesave. 15.2.2010 04:00
Dylgjur um getuleysi eru alveg rakalausar „Forstjórinn þekkir manna best til þessara mála og veit að dylgjur hans eiga ekki við nein rök að styðjast,“ segir Örn Þórðarson, formaður stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands, um ásakanir Jóns Frantzsonar, forstjóra Íslenska gámafélagsins, á hendur Sorpstöðinni. 15.2.2010 03:15
Slæmar aðstæður til leitar Hátt í þriðja hundruð manns leituðu að konu og unglingi á Langjökli í gær. 15.2.2010 00:01
Samninganefndin klár - fundað í Bretlandi á morgun Búið er að skipa endanlega samninganefnd Íslands í Icesave-deilunni. Nefndin fer til Bretlands á morgun til viðræðna við Hollendinga og Breta. 14.2.2010 18:35
Ökumenn fari varlega í Langadal Lögreglan á Blönduósi beinir því eindregið til vegfarenda sem eiga leið um Langadal að fara mjög varlega. Gríðarleg hálka er á veginum auk þess sem gengur á með dimmum éljum. Nokkrir bílar hafa ekið útaf í dag í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi og á síðasta klukkutíma hafa tveir bílar farið útaf í Langadal. Engin meiðsl hafa orðið á fólki. 14.2.2010 16:58
Enn varað við óveðri víða um land Vegagerðin varar við óveðri á sunnanverðu Snæfellsnesi og veður á Vestfjörðum og Norðurlandi fer versnandi. 14.2.2010 19:50
Ísland verði griðastaður frjálsrar fjölmiðlunar Gera á Ísland að alþjóðlegum griðastað frjálsrar fjölmiðlunar samkvæmt þverpólitískri þingsályktunartillögu sem lögð verður fram á Alþingi á næstu dögum. Einn af stofnendum vefsíðunnar Wikileaks telur líklegt að erlendir fjölmiðlar setji upp starfsstöðvar hér á landi verði ályktunin samþykkt. 14.2.2010 19:37
150 manns taka þátt í leitinni á Langjökli Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar leita nú að konu og unglingi sem voru í vélsleðaferð með hópi á Langjökli og urðu viðskila við hann. 14.2.2010 19:18
Leitað að vélsleðamönnum á Langjökli Björgunarsveitir Landsbjargar hafa verið kallaðar út ásamt þyrlu frá Landhelgisgæslunni til þess að leita að tveimur vélsleðamönnum sem urðu viðskila við hóp sleðamanna á Langjökli í dag. 14.2.2010 18:27
Tíu í prófkjöri Samfylkingar í Reykjanesbæ Fimm konur og fimm karlar gefa kost á sér í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ sem fram fer laugardaginn 27. febrúar í sal Verslunarmannafélags Suðurnesja að Vatnesvegi 12. Í tilkynningu frá flokknum segir að allir kosningabærir íbúar Reykjanesbæjar geti kosið í prófkjörinu. 14.2.2010 17:26
Hagsmunasamtök íbúa á Álftanesi stofnuð í dag Hagsmunasamtök íbúa á Álftanesi verða stofnuð á fundi sem hefst klukkan hálf fimm í dag. Brynja Guðmundsdóttir íbúi í bænum átti hugmyndina að stofnun samtakanna og segir hún að um sé að ræða samtök sem eigi að berjast fyrir framtíð bæjarfélagsins sem gengið hefur í gegnum miklar hremmingar undanfarið. 14.2.2010 16:13
Annar kominn úr öndunarvél Annar mannanna sem misstu meðvitund um borð í fjölveiðiskipinu Hoffelli á Fáskrúðsfirði í morgun er kominn úr öndunarvél. Hinn er enn í öndunarvél að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans. 14.2.2010 16:03
Mátti litlu muna þegar leki kom að bát Hjálmar Örn Guðmarsson hjá Slysavarnarfélagi Landsbjargar var einn af þeim sem komu að björgun Sómabáts sem leki kom að fyrr í dag. Hann segir að mikið vatn hafi verið komið um borð í bátinn þegar björgunarbátinn bar að garði en Sómabáturinn var staddur á sjónum út af Garðakirkju þegar óskað var eftir aðstoð. 14.2.2010 15:43
Endurupptaka þjóðlendumála verði heimiluð Landssamtök landeigenda á Íslandi skora á Alþingi og ríkisstjórn að breyta lögum um þjóðlendur þannig að þar verði sett inn ótímabundið heimildarákvæði um endurupptöku mála komi fram ný sönnunargögn í þjóðlendumálum sem lokið er með dómum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum en þetta var samþykkt samhljóða á aðalfundi þeirra í Reykjavík á fimmtudaginn var. 14.2.2010 15:25
Leki kom að bát Björgunarbátur frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu kom trillu til aðstoðar í dag en leki kom að bátnum fyrir utan Hafnarfjarðarhöfn. Björgunarsveitarmenn komust að bátnum áður en lekinn varð of mikill og var báturinn dreginn til hafnar. 14.2.2010 15:14
Reyndi að stinga lögregluna af í miðbænum Lögregla veitti manni eftirför um miðnætti í nótt í miðbænum. Maðurinn hafði verið stöðvaður við hefðbundið umferðareftirlit á mótum Klapparstígs og Hverfisgötu. Áður en lögregla náði tali af manninum ók hann af stað á ný og reyndi að stinga af. Hann fór upp Klapparstíginn og var að lokum króaður af við Snorrabraut. 14.2.2010 14:27
Gúmmíbát hvolfdi í Skerjafirðinum Slökkviliðsbátur sem staðsettur er á Reykjavíkurflugvelli fór í útkall út á Skerjafjörð um hálftvö í dag eftir að tilkynnt var um gúmmíbát sem var á hvolfi á milli Álftaness og Gróttu. 14.2.2010 14:00
Vegagerðin varar við slæmu ferðaveðri Vegna slæms veðurútlits má búast við slæmu ferðaveðri á Norður og Norðausturlandi í dag og í nótt. Vegagerðin biður vegfarendur því að um að kanna færð og veður áður en lagt er af stað. 14.2.2010 13:34
Báðir í öndunarvél á Landspítalanum Mennirnir sem misstu meðvitund um borð í Hoffelli á Fáskrúðsfirði í morgun eru báðir í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. 14.2.2010 13:07
Má draga hlutleysi Halldórs í efa Sérfræðingur í sveitastjórnalögum vill ekki fullyrða um hvort Halldór Jónsson skoðunarmaður reikninga Kópavogsbæjar sé vanhæfur til að gegna því starfi þótt hann hafi fengið rúmlega 70 milljónir króna greiddar frá bænum vegna annarra starfa. Það sé þó hægt að draga hlutleysi hans í efa í þeim efnum þar sem hann þiggi greiðslur frá bænum á sama tíma og hann yfirfari reikninga hans. 14.2.2010 12:31
Búist við stórhríð í nótt Eftir blíðviðri undanfarinna daga vill Veðurstofan vekja sérstaka athygli á norðan hvassviðrinu sem í vændum er. 14.2.2010 12:22
Milljónatjón hjá Skinnfiski Mikið tjón varð hjá Skinnfiski í Sandgerði í nótt þegar mikill eldur kom upp í fiskikörum sem stóðu upp við hús fyrirtækisins. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í en framkvæmdastjóri Skinnfisks segir tjónið hlaupa á milljónum. 14.2.2010 12:17
Brasilíufangi laus á reynslulausn 32 ára Íslendingur, Karl Magnús Grönvold sem setið hefur í fangelsi í rúmlega tvö ár í Brasilíu vegna fíkniefnainnflutnings var látinn laus úr fangelsinu til reynslulausnar 11.febrúar síðastliðinn. 14.2.2010 11:58
Sigrún Björk og Eiríkur Finnur sigruðu í prófkjörum Sigrún Björk Jakobsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri sigraði í prófkjöri sjálfstæðismanna á Akureyri. Ólafur Jónsson lenti í öðru sæti en Njáll Trausti Friðbertsson í því þriðja. 14.2.2010 11:21