Endurupptaka þjóðlendumála verði heimiluð 14. febrúar 2010 15:25
Landssamtök landeigenda á Íslandi skora á Alþingi og ríkisstjórn að breyta lögum um þjóðlendur þannig að þar verði sett inn ótímabundið heimildarákvæði um endurupptöku mála komi fram ný sönnunargögn í þjóðlendumálum sem lokið er með dómum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum en þetta var samþykkt samhljóða á aðalfundi þeirra í Reykjavík á fimmtudaginn var. „Vísað er til þess að um 16.000 skjöl liggi órannsökuð í Árnastofnun og á Landsbókasafni og þar kunni að vera sönnunargögn um eignarhald á landi sem dæmd hafi verið þjóðlenda. Ekkert ákvæði sé í þjóðlendulögum sem heimili endurupptöku mála ef slík sönnunargögn komi í leitirnar. Fram kom í skýrslu stjórnar á aðalfundinum að Óbyggðanefnd hefði eingöngu leitað til Þjóðskjalasafnsins eftir gögnum í þjóðlendumálum, aldrei til Árnastofnunar," segir ennfremur. Örn Bergsson, formaður Landssamtaka landeigenda, segir ekki boðlegt að hafa það tilviljunum háð hvort fólk héldi helgum rétti sínum, eignaréttinum. Þess vegna krefðust samtökin þess að öll skjöl væru tiltæk og aðgengileg lögmönnum landeigenda. „Þorsteinn Magnússon, lögmaður í fjármálaráðuneytinu, mætti á aðalfundinn í forföllum Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Hann sagði að þegar hefðu verið kveðnir upp 45 héraðsdómar vegna þjóðlendumála og 31 Hæstaréttardómur. Tugir mála til viðbótar væru nú fyrir dómstólum, 33 mál fyrir héraðsdómstólum og 12 mál hjá Hæstarétti," segir einnig. Þá er bent á að liðlega hálft landið hafi nú verið tekið til meðferðar í Óbyggðanefnd vegna þjóðlendumála. „Fjármálaráðherra hefur lýst yfir að ríkið muni ekki birta næstu kröfugerð sína fyrr en árið 2012. Formaður Landssamtaka landeigenda segir að með sama áframhaldi verði þjóðlenduyfirferðinni ekki lokið á landinu öllu fyrr en eftir 10-12 ár!," segir að auki. Andstaða við breytingu á jarða- og ábúðarlögum Á aðalfundinum bar fleira á góma en þjóðlendumál að því er fram kemur í tilkynningunni. „Þannig beindu landeigendur spjótum sínum að stjórnvöldum vegna áforma um endurskoðun jarða- og ábúðarlaga. Landbúnaðarráðherra skipaði starfshóp vegna þessa sumarið 2009 og kaus þá að sniðganga landeigendur. Landssamtök landeigenda telja einsýnt að fyrir stjórnvöldum vaki að setja skorður við viðskipti með jarðir og hverfa þannig til fortíðar með tilheyrandi afleiðingum: verðfalli, rýrari veðhæfni og söluerfiðleikum. Landeigendur leggjast því eindregið gegn breytingum á lögunum og telja að „ríkisstjórnar Ísland bíði önnur og brýnni verkefni en að blása meiri eld að eignarbrunanum sem á sér stað í sveitum landsins," eins og formaður samtakanna orðaði það á aðalfundinum."
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira