Innlent

Búist við stórhríð í nótt

Eftir blíðviðri undanfarinna daga vill Veðurstofan vekja sérstaka athygli á norðan hvassviðrinu sem í vændum er.

Nú er vaxandi norðanátt, víða verða 13-20 m/s síðdegis með snjókomu norðantil á landinu og ferðaveður á þeim slóðum því slæmt. Heldur bætir í vind í nótt og má búast við stórhríð fram eftir morgundeginum.

Úrkomulaust að kalla verður sunnanlands.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×