Stefnt að undirritun samninga um kísilver síðdegis Kristján Már Unnarsson skrifar 15. febrúar 2010 12:16 Þorlákshöfn. Mynd/Rósa J.
Stefnt er að því að skrifað verði undir samninga um kísilver í Þorlákshöfn síðar í dag, svo fremi að stjórn Orkuveitu Reykjavíkur fallist á orkusamnig á fundi sínum nú í hádeginu, en með fyrirvara um að fjármögnun takist. Bæjarstjóri Ölfuss segir þetta það jákvæðasta sem gerst hafi lengi í atvinnumálum. Kísilverið myndi rísa á iðnaðarlóð um þrjá kílómetra vestan við byggðina í Þorlákshöfn. Þar hefur verið tekin frá 15 hektara lóð og önnur jafnstór lóð fyrir mögulega stækkun síðar meir. Vegna reglna á hlutabréfamarkaði vestanhafs hefur nafn hins erlenda fyrirtækis ekki enn verið gefið upp. Miðað er við kísilverið taki til starfa eftir þrjú ár og þar verði í fyrstu um 170 starfsmenn. Verði ráðist í stækkun skapast allt að 150 framtíðarstörf til viðbótar. Fyrirtækið þarf um 90 megavött raforku og hyggst Orkuveitan mæta því með smíði Hverahlíðarvirkjunar á Hellisheiði. Framkvæmdir við virkjun og verksmiðju kalla á 400 störf á byggingartíma. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur fundar nú í hádeginu um orkusamninginn og verði hann samþykktur er stefnt að því skrifa síðar í dag undir samninga um verkefnið, en með fyrirvara um að fjármögnun takist. Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, segir þetta það jákvæðasta sem gerst hafi lengi í atvinnumálum, og hefur orð hinna erlendu fjárfesta fyrir því að fjármögnun sé í góðum farvegi.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira