Innlent

Ísland verði griðastaður frjálsrar fjölmiðlunar

Gera á Ísland að alþjóðlegum griðastað frjálsrar fjölmiðlunar samkvæmt þverpólitískri þingsályktunartillögu sem lögð verður fram á Alþingi á næstu dögum. Einn af stofnendum vefsíðunnar Wikileaks telur líklegt að erlendir fjölmiðlar setji upp starfsstöðvar hér á landi verði ályktunin samþykkt.

Þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir því að Ísland skapi sér afgerandi sérstöðu varðandi lög um tjáningar- og upplýsingafrelsi. Tillagan hefur þegar vakið mikla athygli erlendis og hefur töluvert verið um hana fjallað í erlendum fjölmiðlum.

Fjölmargir erlendir sem og innlendir sérfræðingar komu að gerð tillögunnar en um fimmtán þingmenn úr öllum flokkum nema sjálfstæðisflokknum hafa þegar lýst yfir sínum stuðningi. Þingflokkur sjálfstæðismanna mun taka afstöðu til tillögunnar á morgun og þá þykir líklegt að fleiri þingmenn bætist við.

Birgitta flutningsmaður

Setja á sérstök lög til að vernda heimildarmenn og uppljóstrara. Meðal annars gert ráð fyrir því að það verði gert refsivert fyrir blaðamenn að greina frá heimildarmönnum.

Þá er lagt til að lög um samskiptavernd og vernd milliliða verði endurskoðuð sem og lög um réttarfarsvernd til að verja fjölmiðla gegn málsóknum auðugra manna.

Einn af stofnendum vefsíðunnar Wikileaks var staddur hér á landi í síðustu viku til að kynna tillöguna. Hann segir að fjölmiðlar eigi það til að stöðva birtingu frétta af ótta við málsókn.

Lagt er til að frönsk lög um vernd gagnagrunna og safna verði tekin upp hér á landi. Lögin taka til birtingar á efni á netinu. Ekki er hægt að höfða mál á hendur útgáfufyrirtæki ef efnið hefur verið aðgengilegt á netinu í meira en tvo mánuði.

Komið í veg fyrir meiðyrðamálaflakk

Þá verður komið í veg fyrir meiðyrðarmálaflakk með sérstökum lögum. Slík lög hefðu til að mynda gert Jóni Ólafssyni, athafnamanni, mjög erfitt að höfða meiðyrðamál gegn Hannesi Hólmsteini Gissurasyni í Bretlandi. Ennfremur er lagt til að lög um upplýsingafrelsi verði endurskoðuð til að tryggja aðgengi fjölmiðla að gögnum frá stjórnsýslunni.

Flutningsmenn tillögunnar leggja ennfremur til að stofnað verði til fyrstu alþjóðlegu verðlaunanna sem kennd yðu við Ísland. Verðlaunin verði veitt þeim sem þykir hafa skarað fram úr hvað varðar vernd tjáningafrelsis ár hvert. Verði tillagan samþykkt er líklegt að erlendir fjölmiðlar setji upp starfsstöðvar hér á landi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×