Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hátt í 400 manns á Austurvelli Hátt í fjögurhundruð manns eru nú stödd á mótmælafundi á Austurvelli en þar hefur fólk safnast saman síðustu mánuði á hverjum laugardegi. Mótmælin eru skipulögð af samtökunum Nýtt Ísland og Hagsmunasamtökum heimilanna. 13.2.2010 15:10
TF-Líf á flugi yfir Smáralind Í framhaldi af 112 deginum sem haldinn var á fimmtudaginn var munu fulltrúar frá Landsbjörgu, lögreglu og Neyðarlínunni verða með kynningu á starfsemi sinni í Smáralindinni í dag. Þar verður ýmislegt til sýnis og gefst fólki til dæmis kostur á að skoða lögreglubíla og mótorhjól. 13.2.2010 14:05
Stjórnvöld geti ekki vikið sér undan ábyrgð Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður, segir að stjórnvöld geti ekki vikið sér undan ábyrgð þegar kemur að fjárhagslegri endurskipulagningu skuldsettra fyrirtækja. Á fundi viðskiptanefndar með forsvarsmönnum bankanna í gær kom fram að þeir telji sig vinna að fullu eftir vilja stjórnvalda og þeim skilaboðum sem stjórnvöld hafi gefið bönkunum sem eigendur. 13.2.2010 12:08
Eygló óskar eftir fundi í viðskiptanefnd Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins hefur óskað eftir því að haldinn verði fundur í viðskiptanefnd sem fyrst þar sem farið verði yfir gengistryggð lán og lagalega stöðu þeirra í ljósi dómsins sem féll í gær í héraðsdómi Reykjavíkur. Þar var bíleigandi sýknaður af kröfum fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar og komst dómarinn að þeirri niðurstöðu að ólögmætt sé að gengistryggja kaupleigusamning við erlenda gjaldmiðla. 13.2.2010 11:12
Vakningalestin á ferðinni Vakningalest samtakanna Nýtt Ísland er þessa stundina að vekja bankastjórn Íslandsbanka ásamt bankastjórum Íslandsbanka, Arion og Landsbankans til að minna þá á að mæta á tíunda kröfufund Hagsmunasamtaka heimilanna og samtakanna Nýs Íslands á Austurvelli klukkan þrjú í dag. 13.2.2010 10:17
Féll sex metra út um glugga - líðan telpunnar stöðug Líðan telpunnar sem féll eina sex metra út um glugga í Þingholtunum í gær er stöðug að sögn vakhafandi læknis. Hún er ekki í lífshættu en læknirinn vill ekki gefa upp hvort hún hafi beinbrotnað við fallið. 13.2.2010 10:13
Fagna niðurstöðu héraðsdóms í myntkörfumáli Samtökin Nýtt Ísland, sem staðið hafa að mótmælum á Austurvelli, undanfarna laugardaga fagna dómi vegna ólögmætis myntkörfulána sem dæmt var látakenda í vil í gær í Héraðsdómi. 13.2.2010 10:09
Ökuníðingar, innbrotsþjófar og slagsmálahundar Lögregla hafði í nógu að snúast í nótt um alla borg. Í miðbænum sást til ökumanns sem ók undarlega og ætlaði lögregla að stöðva manninn. Hann gaf hinsvegar í og ók á miklum hraða eftir götum miðborgarinnar. Að lokum var hann stöðvaður í Þingholtunum og reyndist um 17 ára pilt að ræða með bráðabirgðaökuskírteini. Hann var að auki ölvaður og fékk hann að sofa úr sér á lögreglustöðinni. 13.2.2010 09:56
Tæplega tíu þúsund manns mættu á Safnanótt Safnanótt var haldin í nótt og heppnaðist hún með með eindæmum vel að sögn skipuleggjenda. Tæplega 10.000 manns tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá Safnanætur og nutu 150 viðburða á þeim 35 söfnum sem tóku þátt. 13.2.2010 09:32
Á spítti á 180 kílómetra hraða Ökumaður mældist á 180 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni við Vogaveg í nótt. Ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu, ók áfram vestur Reykjanesbraut og beygði inn á Grindavíkurveg þar sem hann stöðvaði loks för sína. 13.2.2010 09:28
Fjórflokki ekki treyst Þær miklu vonir sem vöknuðu í brjóstum fólks í búsáhaldabyltingunni, svo sem um lýðræðisumbætur og stjórnlagaþing, hafa ekki ræst. 13.2.2010 08:00
Hótanir í Hrútafirði vegna bensínstöðvar Staðarskáli ehf. og eigendur jarðarinnar Staðar í Hrútafirði sögðust í bréfi til hreppsnefndar Bæjarhrepps myndu beita afli sínu til að hindra að leyfi yrði gefið fyrir öðrum þjónustuskála í Hrútafirði. 13.2.2010 07:00
Telur erlendum arkitektum hyglað í forvali Landspítala Hilmar Þór Björnsson, arkitekt og stjórnarmaður í Arkitektafélagi Íslands, segir að kröfur í forvali í arkitektasamkeppni fyrir nýtt háskólasjúkrahús við Hringbraut útiloki íslenska arkitekta. Hann telur kröfurnar benda til að meðvituð ákvörðun hafi verið tekin um að beina verkefninu út fyrir landsteinana. Formaður forvalsnefndar segir þetta alfarið rangt. 13.2.2010 06:45
100 milljarðar í Helguvík Framkvæmdir við álver í Helguvík standa undir 100 milljörðum af þeirri 265 milljarða króna fjárfestingu í raforkumannvirkjum og orkufrekum iðnaði, sem stefnt er að í ár og næstu þrjú ár. 13.2.2010 06:00
Saga mistaka og fordóma Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra bað heyrnarlausa afsökunar á langri sögu „mistaka, fordóma og forræðishyggju“ sem einkennt hefði viðhorf stjórnvalda til heyrnarlausra um áratugaskeið. 13.2.2010 06:00
Enn óvissa með útgáfu skýrslu Allsendis er óvíst hvort skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kemur út í þessum mánuði. Upphaflega átti hún að koma út 1. febrúar, en því var frestað og sagt að hún kæmi út fyrir mánaðamótin. 13.2.2010 06:00
Aukið aðgengi fyrir borgarbúa Skipa á sérstakan starfshóp til að skilgreina hlutverk Höfða í framtíðinni. Er þetta gert í kjölfar endurbóta á húsinu eftir brunann sem þar varð í september síðastliðnum. Talið er nauðsynlegt að endurskoða notkun Höfða og huga almennt að húsinu og umhverfi þess eins og segir í tillögu frá forsætisnefnd sem borgarráð samþykkti. „Sérstaklega hefur verið rætt um mikilvægi þess að opna húsið enn frekar fyrir almenningi,“ segir í tillögunni. Formaður starfshópsins verður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar. - gar 13.2.2010 05:00
Starfsmönnum LSH fækkar Starfsmönnum á Landspítalanum hefur fækkað um 350 á síðustu misserum og eru þeir nú 4.600 talsins. Á síðasta ári fækkaði dagvinnustöðugildum á spítalanum um 202 og eru nú 3.650 alls. 13.2.2010 04:15
Frjálslyndir fá styrk frá borg Reykjavíkurborg greiðir hér eftir Frjálslynda flokknum árlegan styrk en ekki Borgarmálafélagi F-lista Ólafs F. Magnússonar, sem var kjörinn fulltrúi F-lista, framboðs frjálslyndra og fleiri. 13.2.2010 03:00
Síbrotamaður í gæslu dæmdur Karlmaður sem situr í gæsluvarðhaldi vegna síbrota hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, þar af tvo á skilorði, fyrir fjölmarga þjófnaði, húsbrot, eignaspjöll, líkamsárás og fleiri sakir. 13.2.2010 03:00
Enn í kór eftir tæp áttatíu ár Hafnfirðingurinn og söngfuglinn Páll Þorleifsson fagnar hundrað ára afmæli í dag. Páll, sem þekktur er í Hafnarfirði sem húsvörður í Flensborg, hefur sungið samfleytt með kórum í 77 ár, fyrst á Héraðsskólanum á Laugarvatni en frá 1933 með karlakórnum Þröstum í Hafnarfirði. 13.2.2010 02:30
Borgin kallar á fyllri skýringar Skipulagsráð Reykjavíkur frestaði á fundi á miðvikudag að afgreiða fyrirspurn Álftavatns ehf. um það hvort leyft yrði að innrétta hótel í Heilsuverndarstöðinni á Barónsstíg. Ráðið vill að Álftavatn leggi fram nánari gögn, meðal annars greinargerð vegna reksturs hótels þar sem fram komi á hvaða hátt þurfi að breyta húsinu og hver fjöldi hótelherbergja verður. 13.2.2010 02:00
Dapurt á gulldepluveiðum „Það má sennilega best orða þetta með því að segja að það er ákaflega rólegt yfir þessum veiðum. Við drögum trollið allan daginn og megum þakka fyrir að ná 100 tonna afla. Í gær fengum við reyndar ekki nema 60 tonn og það er ekki viðunandi árangur,“ sagði Arnþór Hjörleifsson, skipstjóri á Lundey NS, í viðtali á heimasíðu HB Granda. 13.2.2010 01:30
Bíleigandi sýknaður af kröfum Lýsingar Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing tapaði í dag máli í héraðsdómi sem það höfðaði gegn viðskiptavini sem gert hafði kaupleigusamning við fyrirtækið. Samningurinn að hluta til í erlendri mynt með gengistryggingu og krafðist Lýsing þess að maðurinn greiddi fyrirtækinu rúmar 466 þúsund krónur auk dráttarvaxta en stefndi taldi að samningurinn sem gerður var í upphafi hafi verið ólögmætur. 12.2.2010 23:52
Fjölmenni á stofnfundi Sjálfstæðra Íslendinga Fjölmenni var á stofnfundi Sjálfstæðra Evrópumanna í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Á heimasíðu hinna nýstofnuðu samtaka segir að færri hafi komist að en vildu og eru stofnfélagar um 200. 12.2.2010 22:21
Jóhanna: Óþolandi að útrásarvíkingar fái sérstaka meðferð Forsætisráðherra segir að stóreignamenn sem stóðu að útrásinni og sæti rannsókn, ættu að sýna sóma sinn í að halda sig til hlés þar til rannsókn á orsökum efnahagshrunsins sé lokið. Það sé óþolandi ef þeir fái sérstaka meðhöndlun í bankakerfinu með stórfelldum afskriftum en haldi samt fyrirtækjum sínum. 12.2.2010 19:40
Kreppa áfram spýti ríkisstjórnin ekki í lófana Mikið atvinnuleysi, léleg lífskjör og versnandi velferðarkerfi verða hlutskipti Íslendinga um langa framtíð nema ríkisstjórnin spýti í lófana, segja Samtök atvinnulífsins. Þau gagnrýna stjórnvöld harðlega fyrir dugleysi og rangar ákvarðanir og segja að fimm prósenta árlegan hagvöxt þurfi til að vinna þjóðina út úr kreppunni. 12.2.2010 19:16
Kísilver í Þorlákshöfn komið á fleygiferð Samningsdrög við erlent fyrirtæki um kísilver í Þorlákshöfn voru lögð fyrir stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í dag og er stefnt að undirritun á mánudag. 12.2.2010 19:03
Icesave-viðræður hefjast eftir helgi Samningaviðræður við Breta og Hollendinga vegna Icesave hefjast í næstu viku. Leiðtogar stjórnarflokkanna vonast til að þær geti tekið skamman tíma. Forsætisráðherra segir ólíðandi að endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum dragist á langinn vegna Icesave og þeim skilaboðum hafi verið vandlega komið áleiðis til Breta, Hollendinga og Evrópusambandsins. 12.2.2010 19:01
Yfirdrifnar aðgerðir hjá lögreglunni í Tækniskólanum Menntamálaráðherra segir aðgerðir lögreglunnar í Tækniskólanum í gær, þar sem leitað var að fíkniefnum með aðstoð hunda, yfirdrifnar og ekki eigi að ala á ótta í forvarnarstarfi. Hún ætlar að taka málið upp við stjórnendur framhaldsskólanna en aðfarir sem þessar hafa viðgengist í framhaldsskólakerfinu. 12.2.2010 18:54
Móðir drengs: Óskiljanlegt að lögreglumaðurinn hafi verið sýknaður Móðir drengs sem lögreglumenn handtóku og skildu eftir glænepjulega klæddan í Örfirisey seint um nótt um miðjan vetur í fyrra segir óskiljanlegt að héraðsdómur hafi sýknað í málinu. Hún segir að lögregla verði að endurskoða vinnubrögð sín. 12.2.2010 18:44
Tugmilljónagreiðslur án útboðs Stuðningsmaður Gunnars I. Birgissonar fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs, sem gegnir starfi skoðunarmanns reikninga bæjarins fyrir hönd Sjálfstæðismanna, fékk rúmlega sjötíu milljónir króna frá bænum fyrir ýmis hönnunar-og eftirlitsstörf á árunum 2003 til 2008. Ekkert þessara verka var boðið út. 12.2.2010 18:39
Ja.is besti íslenski vefurinn Ja.is var valinn besti íslenski vefurinn á Íslensku vefverðlaunum sem Samtök vefiðnaðarins stóðu fyrir í dag. Katrín Júlísdóttir, Iðnaðarráðherra afhenti verðlaunin við athöfn sem haldin var í Hugmyndahúsi háskólanna og voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi vefi í 10 flokkum. Í tilkynningu frá samtökunum segir að alls hafi borist yfir 100 tilnefningar til verðlaunanna að þessu sinni, en þetta er í níunda skipti sem Íslensku Vefverðlaunin eru haldin. 12.2.2010 18:18
Skorað á Birnu bankastjóra að mæta á Austurvöll Samtökin Nýtt Ísland skora á Birnu Einarsdóttir bankastjóra að mæta og taka til máls á tíunda kröfufundi vetrarins Austurvelli á morgun. Í tilkynningu frá samtökunum segir að þau hafi sótt Birnu heim í Íslandsbanka í vikulegum bílalána mótmælum síðastliðinn þriðjudag. 12.2.2010 17:47
Handtekin fyrir að stelast í þvottavél Karl og kona voru í gær handtekin fyrir að þvo þvott. Ástæða afskipta lögreglu af þvottafólkinu var sú að þau voru við iðju sína í ókunnugu húsi og án heimildar húsráðanda. 12.2.2010 17:31
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hafin í Höllinni Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010 er nú hafin í Laugardalshöll og er opið alla daga frá kl. 10:00 - 22:00. 12.2.2010 17:21
Þjóðfundur á Sauðárkróki Þjóðfundur verður haldinn á morgun, laugardaginn 13. febrúar, í Fjölbrautaskóla Norð-Vesturlands á Sauðárkróki. 12.2.2010 16:43
Húsleitir í Lúxemborg - enn verið að yfirheyra starfsmenn Um fjörtíu lögregluþjónar í Lúxemborg leituðu í bankanum Banque Havilland sem áður var Kaupþing í Lúxemborg. Húsleitirnar, sem hafa staðið í nokkra daga, voru gríðarlega umfangsmiklar en sérstakur saksóknari auk fjögurra fulltrúa embættisins tóku einnig þátt í leitinni. 12.2.2010 16:27
Rauði krossinn sendir fleiri hjálparstarfsmenn til Haítí Sex íslenskir hjálparstarfsmenn eru á leið til Haíti nú um helgina að beiðni Alþjóða Rauða krossins. Mánuður er nú liðinn frá því jarðskjálftinn mikli reið þar yfir, og hefur Alþjóða Rauði krossinn hækkað neyðarbeiðni sína úr 12 milljörðum íslenskra króna í 25 milljarða. 12.2.2010 16:19
Utanríkisráðherra hittir nýjan stækkunarstjóra ESB Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti í dag fund með Stefan Füle, sem tók í vikunni við stöðu framkvæmdastjóra stækkunarmála í nýrri framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Þetta kom fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 12.2.2010 16:17
Húsleitir standa yfir í Banque Havilland í Lúxemborg Húsleitir standa nú yfir í Banque Havilland í Lúxemborg, sem áður var dótturfélag Kaupþings í Lúxemborg, vegna rannsóknar á málefnum tengdum Kaupþingi. 12.2.2010 15:59
Ekki sektaðir fyrir að rjúfa trúnað í mansalsmálinu Dómari Héraðsdóms Reykjaness féllst ekki á að sekta Fréttamenn Stöðvar 2, Breka Logason og Andra Ólafsson, fyrir að greina frá því sem gerðist í lokuðum réttarhöldum í mansalsmálinu svokallaða. 12.2.2010 15:24
Ungir vinstri grænir mótmæla niðurskurði geðlyfja Stjórn Ungra vinstri grænna hefur sent frá sér ályktun þar sem fyrirhugaðri skerðingu á niðurgreiðslu geðlyfja er mótmælt og lýsir félagið jafnframt yfir þungum áhyggjum vegna þeirra afleiðinga sem það kann að hafa í för með sér. 12.2.2010 15:18
Stefnir í harðann prófkjörsslag í Kópavogi Bæjarstjóri Kópavogs, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og bæjarfulltrúi flokksins hafa sent frá sér stuðningsyfirlýsingu þar sem þau segjast styðja Ármann Kr. Ólafsson til forystu í prófkjöri Sjálfstæðismanna sem verður haldið 20. febrúar. 12.2.2010 14:59
Staða Icesave-viðræðna skýr í lok næstu viku Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að það sé óeðlilegt að þeir sem sæti rannsókn sérstaks saksóknara fái fyrirgreiðslur og afskriftir áður en niðurstaða fæst í rannsókn viðkomandi mála. Þá sagði hún einnig á fundinum að Icesave-málið ætti að vera orðið skýrt í lok næstu viku. 12.2.2010 14:27