Innlent

Gúmmíbát hvolfdi í Skerjafirðinum

Slökkviliðsbátur sem staðsettur er á Reykjavíkurflugvelli fór í útkall út á Skerjafjörð um hálftvö í dag eftir að tilkynnt var um gúmmíbát sem var á hvolfi á milli Álftaness og Gróttu.

Slökkviliðsbíll úr Skógarhlíð með köfunarbúnað hélt einnig af stað en áður en liðið kom á staðinn kom í ljós að tveir menn sem voru um borð í gúmmíbátnum höfðu komist af sjálfsdáðum í land við Bakkavör á Seltjarnarnesi. Þeim mun ekki hafa orðið meint af volkinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×