Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þingmaður hvattur til að fara að lögum Ríkisendurskoðun hefur hvatt Árna Johnsen, þingmann Sjálfstæðisflokksins, til að skila fjárhagslegum upplýsingum um framboð sitt til alþingiskosninga 2007. Árni átti að skila gögnunum í síðasta lagi 25. október. 18.1.2010 05:00
Minnir á ólýðræðislegar hefðir Tryggja þarf að stjórn sem kennir sig við velferð stýri landinu áfram til að vega upp á móti frjálshyggju síðustu ára, segir í ályktun flokksráðs VG frá því á laugardag. Stjórn VG og Samfylkingar hafi þegar náð miklum árangri. 18.1.2010 03:00
Nýleg tækni byltir fuglarannsóknum Notkun ljósrita, sem er örsmátt mælitæki sem skráir ferðir dýra, hefur bylt upplýsingaöflun um lífshætti fugla. Íslenskir vísindamenn nýta þessa tækni nú þegar til rannsókna á nokkrum tegundum íslenskra fugla. 18.1.2010 02:30
Vilja samkeyra gögn um stöðu lögmanna Lögmannafélag Íslands segir mikla fjölgun lögmanna leiða til hættu á að upplýsingar um hugsanleg gjaldþrot og refsidóma félagsmanna berist félaginu ekki. Því þurfi að heimila að samkeyra upplýsingar úr gagnabönkum. 18.1.2010 02:00
Konurnar ekki lífshættulegar slasaðar Konurnar tvær sem voru fluttar á slysadeild Landspítalans eftir bílveltu vestan við Grundarfjörð seinnipartinn í dag eru ekki lífshættulega slasaðar. Þær hafa báðar verið lagðar inn til eftirlits í nótt, að sögn vakthafandi læknis á slysa- og bráðadeild. 17.1.2010 20:26
Fyrsta verk Kolbrúnar var að loka spjallsvæði Fyrsta verk nýkjörins forseta Bandalags íslenskra listamanna var að láta loka spjallsvæði bandalagsins sem hefur gert lítið annað en að safna auglýsingum frá erlendum klámsíðum. 17.1.2010 19:36
Gylfi: Atvinnurekendur of svartsýnir Efnahags- og viðskiptaráðherra segir að atvinnurekendur séu of svartsýnir á þróun efnahagsmála á þessu ári. Efnahagur landsins þróist til betri vegar verði Icesave deilan leidd til lykta og samstarfið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn haldi. 17.1.2010 19:34
Gefa kost á sér á Seltjarnarnesi Samfylkingin á Seltjarnarnesi efnir til forvals vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Sex gefa kost á sér, fjórar konur og tveir karlar. Samfylkingin hefur aldrei áður boðið fram sjálfstætt í bæjarfélaginu. 17.1.2010 19:26
Efast um að gömlu lögin geti staðið óbreytt Fjármálaráðherra efast um að gömlu Icesave lögin geti staðið óbreytt ef nýju lögin verða felld í þjóðaratkvæðagreiðslu. Icesave málið gæti því lent aftur á byrjunarreit hafni þjóðin nýju lögunum. 17.1.2010 19:22
Svar ekki borist Forystumenn ríkisstjórnarinnar komu saman til fundar í stjórnarráðinu síðdegis í dag. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur enn ekkert svar borist frá Bretum og Hollendingum um hvort hægt verði að taka upp samningaviðræður að nýju í Icesave málinu. 17.1.2010 19:14
Meiri líkur á greiðslufalli Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræði, segir að horfurnar í efnahagsmálum þjóðarinnar séu mun dekkri en fyrir einu og hálfu ári þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kom hingað fyrst. Hann segir að líkur á greiðslufalli ríkissjóðs séu mun meiri núna en þá. 17.1.2010 18:58
Vatnsleki í Iðufelli Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á sjöunda tímanum í kvöld að fjölbýlishúsi í Iðufelli í Breiðholti vegna vatnsleika. Þá hafði heitt vatn flætt um gólf í húsinu. Ekki er vitað hvort mikið tjón hafi orðið vegna þessa. 17.1.2010 18:45
Þyrla flutti slasað fólk til Reykavíkur Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti rétt í þessu við Landspítalann í Fossvogi með tvo einstaklinga sem slösuðust í bílveltu vestan við Grundarfjörð seinnipartinn í dag. 17.1.2010 18:16
Djákninn kominn til Dóminíska lýðveldisins Halldór Elías Guðmundsson, djákni, og samnemendur hans eru komnir frá Haítí til Dómíníska lýðveldisins. Halldór var eini Íslendingurinn sem staddur var í landinu þegar jarðskjálftinn reið yfir í síðustu viku, nánar til tekið í borginni Jacmel. 17.1.2010 17:50
Hlín komin til Haítí Hlín Baldvinsdóttir, sendifulltrúi Rauða kross Íslands, er nú komin til Port au Prince, höfuðborgar Haítí. Hún hélt af stað síðdegis á fimmtudag. Hlín kemur til með að gegna stöðu fjármálastjóra í sérfræðingateymi Alþjóða Rauða krossins. 17.1.2010 17:04
Á ofsahraða í Eldhrauni Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði 22 ökumenn fyrir að aka of hratt á tímabilinu 4. til 18. janúar. Sá sem ók hraðast var á 147 kílómetra hraða í Eldhrauni vestan við Kirkjubæjarklaustur. Hann má eiga von á sviptingu ökuleyfis og hárri sekt fyrir brotið. 17.1.2010 15:56
Icesave of flókið Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra segir Icesave deiluna of flókna til að fara með í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í viðtali við Svenska Dagbladet sem Bloomberg fréttveitan vitnar í varar Steingrímur við afleiðingum þess að Icesave lögunum sem Alþingi samþykkti í lok síðasta árs og forsetinn neitaði síðar að staðfesta verði hafnað í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Í viðtalinu segist Steingrímur vonast til þess að hægt verði að ná nýju samkomulagi við Breta og Hollendinga. 17.1.2010 15:45
Tveir vilja fyrsta sætið hjá VG Forval Vinstri grænna fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri í vor verður haldið laugardaginn 6. febrúar. Kjörið er opið öllum félagsmönnum í flokksins á Akureyri, en kjörskrá verður lokað þann 27. janúar. Baldvin H Sigurðsson, núverandi oddviti flokksins í bæjarfélaginu, og Andrea Hjálmarsdóttir gefa bæði kost á sér í fyrsta sætið. 17.1.2010 15:09
Hafísinn færist nær Hafís færist nær og nær landi. Landhelgisgæslunni barst tilkynning í hádeginu frá skipi sem leið átti um svæðið norðvestan af landi að hafísrönd lægi frá stað um 2 sjómílum norður af Óðinsboða að stað um 3,5 sjómílur austsuðaustur frá Horni. 17.1.2010 15:06
Friðargæsluliðar tryggja öryggi Íslendinganna 26 liðsmenn íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar eru á leið til borgarinnar Léogane, sem er um 40 kílómetra vestan við höfuðborgina Port au Prince, á Haítí. Friðargæsluliðar frá Sameinuðu þjóðunum munu fylgja hópnum og tryggja öryggi hans. 17.1.2010 14:46
„Ég vona að þjóðin segi stórt og feitt nei" „Það er alls ekki þannig að stjórnarandstaðan vilji ekki að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram,“ segir Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. Eitthvað mikið þurfi að ganga á áður en hætt verði við þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave lögin. 17.1.2010 13:45
Frjálslyndir eiga ekki fyrir skuldum Frjálslyndi flokkurinn hyggst taka þátt í bæjar- og sveitarstjórnarkosningum í vor. Formaður flokksins segir að fjárhagstaðan sé slæm og að flokkurinn eigi ekki fyrir skuldum. 17.1.2010 13:08
Ósamræmi í yfirlýsingum norrænna ráðamanna Ósamræmis gætir í yfirlýsingum norrænna ráðamanna um hvort áfram verði staðið við lánafyrirgreiðslur til Íslands. Endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsin á efnahagsáætlun Íslands tefst ef norrænu ríkin fresta afgreiðslu lána. 17.1.2010 13:00
19 gefa kost á sér í forvali VG Nítján gefa kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna í vor, 7 konur 12 karlar. 17.1.2010 12:47
AGS á enga aðdáendur í Vinstri grænum Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn á enga aðdáendur í Vinstri grænum segir Katrín Jakobsdóttir, varaformaður flokksins. Andstaða flokksins við inngöngu Íslands í Evrópusambandið var ítrekuð á flokkráðstefnu sem lauk í gær. 17.1.2010 12:43
Veggjald í Hvalfjarðargöngum hækkar Veggjald í Hvalfjarðargöngum hækkar um tæplega 13% að jafnaði frá og með 1. febrúar 2010. Gjald fyrir staka ferð í fyrsta gjaldflokki, sem er fyrir ökutæki styttri en sex metrar, fer úr 800 í 900 krónur. Afkoma Spalar sem rekur göngin undanfarin ár kalla á gjaldskrárbreytinguna. Fyrirtækið hefur einu sinni áður hækkað veggjaldið frá því göngin voru opnuð í júlí 1998, að fram kemur í tilkynningu. 17.1.2010 12:15
Búa sig undir verkefni dagsins Íslenska björgunarsveitin á Haítí er nú að búa sig undir verkefni dagsins. Sveitin að öllum líkindum vinna í bæ um 40 kílómetra vestan við höfuðborgina Port au Prince en enn sem komið er hefur engin alþjóðleg björgunarsveit farið þangað. Bærinn stendur mun nær upptökum skjálftans en höfuðborgin og er það mat manna að þar hafi 80 til 90% bygginga hrunið í skjálftanum. 17.1.2010 12:04
Bróðir Eldu á lífi Elda Þórisson Faurelien, sem kom hingað til lands frá Haííti fyrir fjórum árum, hefur fengið jákvæðar fréttir af fjölskyldu sinni. „Arnold bróðir Eldu, sonur hans og tvær frænkur eru á lífi. Önnur frænkan er slösuð en aðrir eru ómeiddir,“ segir Methúsalem Þórisson eiginmaður hennar. 17.1.2010 11:36
Útskrifaður af gjörgæsludeild Karlmaðurinn sem var fluttur alvarlega slasaður á slysadeild eftir að hann ók vélsleða á vegg við Funahöfða í Reykjavík 7. janúar var útskrifaður af gjörgæsludeild á föstudag. Ekki fengust frekari upplýsingar um líðan hans. 17.1.2010 11:18
Íslenskum karlmanni byrluð ólyfjan í Tælandi Þrjár konur byrluðu íslenskum karlmanni ólyfjan og rændu af honum rúmlega 300 þúsund krónum í Tælandi á aðfaranótt laugardags. Frá þessu er greint á tælenskum fréttamiðlum í dag. 17.1.2010 10:13
Frjálslyndir bjóða fram í vor Frjálslyndi flokkurinn hyggst taka þátt í bæjar og sveitarstjórnarkosningunum í vor. Miðstjórn flokksins fundaði í gær en fram kemur á heimasíðu flokksins að skipuð verði þriggja manna nefnd til að fara yfir málið og koma með tillögur um næstu skref. 17.1.2010 09:45
Hálka á Hellisheiði Á Hellisheiði er hálka en krapi í Þrengslunum. Vegir eru annars auðir á Suðurlandi, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 17.1.2010 09:42
Annasöm nótt hjá lögreglu - fangageymslur fullar Nóttin var afar annasöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og segir varðstjóri að frá miðnætti til klukkan sjö í morgun hafi verið vitlaust að gera. Þá komu 102 mál inn á borð lögreglu sem þykir heldur mikið og eru allar fangageymslur fullar. 17.1.2010 09:19
Ætla að halda Gauraflokk í fjórða sinn KFUM ætlar að halda sumarbúðir í sumar fyrir 10-12 ára drengi með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir. Ef fer sem horfir, verður þetta í fjórða sinn sem hópurinn er haldinn. 17.1.2010 08:30
Vilja endurskoða hugmyndir um fækkun ráðuneyta Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs sem haldinn haldinn á Akureyri um helgina skorar á stjórn og þingflokk VG að áform um endurskipulagningu stjórnarráðsins verði endurskoðuð í ljósi breyttra aðstæðna og yfirfarin áður en frekari skref verða tekin. 17.1.2010 06:30
„Flokksráð VG veður reyk“ „Flokksráð VG veður reyk og heldur að Ísland glati sjálfstæði sínu við aðild að ESB. Ekkert aðildarríkja hefur glatað sjálfstæði sínu við aðild,“ segir á vef Evrópusamtakanna um ályktun flokksráðs Vinstri grænna um Evrópumál sem samþykkt var á fundi ráðsins á Akureyri fyrr í dag. Formaður Evrópusamtakanna segir ljóst að hugsanleg aðild Íslands að sambandinu snúist um það hvort að Íslendingar vilji vera óvirkir viðtakendur eða virkir þátttakendur í alþjóðasamfélaginu. 16.1.2010 22:00
Íslenska sveitin komin til búða Íslenska björgunarsveitin á Haítí er nú komin til búða á flugvellinum í höfuðborginni eftir erfiðan dag og fá meðlimir kærkomna hvíld eftir að hafa eingöngu sofið í fjórar til sex klukkustundir undanfarnar nætur. 16.1.2010 20:21
Hvanndalsbræður og Jógvan komust áfram Hvanndalsbræður og Jógvan Hansen komust í kvöld í úrslitaþáttinn í Söngvakeppni Sjónvarpsins þar sem valið verður framlag Íslands til Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fer í Osló í maí. 16.1.2010 21:17
Margir vilja annað sæti á lista Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Fjórir sækjast eftir öðru sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Oddviti flokksins vill að félagshyggjuflokkarnir taki við stjórn borgarinnar. Þá vilja einnig margir annað sætið á lista Sjálfstæðisflokks. Bæjar- og sveitarstjórnarkosningar fara fram eftir rúma fjóra mánuði 16.1.2010 18:57
Fyrirtækin geta ekki búið við áframhaldandi óvissu Fyrirtækin í landinu geta ekki búið við áframhaldandi óvissu vegna Icesave málsins að mati Félags íslenskra stórkaupmanna. Hætta er á að viðskiptakjör íslenskra fyrirtækja á erlendum mörkuðum versni enn frekar og vantraust aukist. 16.1.2010 18:47
Íslendingarnir heilir á húfi Fregnir hafa borist af því að nokkuð stór eftirskjálfti hafi orðið á Haítí og segja erlendir miðlar frá því að hann hafi sett strik reikninginn í vinnu björgunarliðs. Haft hefur verið samband við íslensku alþjóðasveitina og hefur fengist staðfest að allir úr íslenska hópnum eru heilir á húfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. 16.1.2010 17:09
Fimmtán ár frá snjóflóðinu í Súðavík Í dag eru 15 ár frá því að snjóflóð féll á byggðina í Súðavík með þeim afleiðingum að 14 manns fórust. Húsin sem flóðið féll á stóðu flest utan þeirra marka sem skilgreind voru sem hættusvæði vegna snjóflóða. 16.1.2010 18:13
Tveir með allar tölurnar réttar Tveir voru með allar tölurnar réttar í Lottóinu í kvöld og fá vinningshafarnir báðir 2,5 milljónir í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Vídeómarkaðnum í Hamraborg í Kópavogi í N1 í Skógarseli í Reykjavík. 16.1.2010 19:21
Þrettán gefa kost á sér hjá Samfylkingunni Þrettán einstaklingar gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna í vor, 5 konur 8 karlar. Dagur B. Eggertsson, varaformaður flokksins og núverandi oddviti, sækist einn eftir fyrsta sætinu. 16.1.2010 16:48
Hafís við Hornbjarg Hafís sást við Hornbjarg þegar þyrla Landhelgisgæslan var á eftirlitsflugi klukkan eitt í dag. Hafísinn liggur frá Óðinsboða að Hornbjargi. Nokkur þoka er á svæðinu og lélegt skyggni. Sjómenn sem leið eiga um svæðið eru því beðnir um að gæta ítrustu varúðar. 16.1.2010 16:34