Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríkisstjórnarfundur klukkan fjögur - þingflokkar funda í kjölfarið Ríkistjórnarfundur hefst klukkan fjögur í forsætisráðuneytinu en þar verður helst fjallað um frumvarp til þjóðaratkvæðagreiðslu sem til stendur að leggja fyrir Alþingi næsta föstudag. 6.1.2010 15:29
Treg gulldepluveði Sjö uppsjávarveiðiskip hafa stundað veiðar á gulldeplu nú eftir áramótin og hefur veiðin verið treg og farið rólega af stað samkvæmt heimasíðu HB Granda. Þar segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs HB Granda, að menn bíði spenntir eftir niðurstöðum loðnuleitar á vegum Hafrannsóknastofnunar. 6.1.2010 15:22
Össur Skarphéðinsson á símafundi með Miliband í kvöld Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mun eiga símafund með David Miliband utanríkisráðherra Bretlands í kvöld þar sem Icesave málið verður til umræðu. Össur segir að hann hafi verið í miklu sambandi við sendiherra Íslands í London í dag sem hefði rætt við breska ráðmenn. 6.1.2010 14:50
Viðvörunarbréf til forseta: Geta beðið með samninga í tvö ár Í bréfi sem forsætisráðuneytið sendi Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, degi áður en hann synjaði staðfestingar á Icesave-lögunum, kemur fram að mögulegt sé að Hollendingar og Bretar myndu ekki vilja semja aftur við Ísland um Icesave næstu árin verði núverandi samkomulag fellt úr gildi. 6.1.2010 14:45
Má heita Indíana Karítas Seljan Helgadóttir í Þjóðskrá Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að athafnaleysi stjórnvalda við að breyta tölvukerfi Þjóðskráar þannig að fólk með löng nöfn geti skráð það rétt, sé ekki í samræmi við lög. 6.1.2010 14:14
Reykur vegna potts á pönnu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað í fjölbýlishús í Hraunbæ vegna eldsvoða. 6.1.2010 13:30
Rannsóknarnefnd gefur ekkert upp um andmælakostinn Rannsóknarnefnd Alþingis gefur ekki upp hvenær þeim sem fjallað er um í skýrslu nefndarinnar og talið er að hafi orðið á mistök eða orðið uppvísir af mistökum í starfi verður gefinn kostur á að andmæla því sem sagt er um þá. 6.1.2010 13:30
Frestun á gagnaveri „helvítis“ áfall fyrir byggingageirann „Þetta er helvítis áfall fyrir byggingageirann,“ segir Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, en allar framkvæmdir hafa verið stöðvaðar við gagnver Verner Holdings. Stjórnarformaður félagsins, Vilhjálmur Þorsteinsson, segir ástæðuna fyrir töfunum vera bið eftir því að Alþingi afgreiði fjárfestingasamning sem þar liggur fyrir. 6.1.2010 13:22
Reykur í stigagangi í Hraunbænum Tilkynnt var um reyk í stigagangi í Hraunbæ fyrir stundu. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er á leið á staðinn en ekkert liggur fyrir um hvort eldur hafi kviknað. 6.1.2010 13:02
Ákvörðun Fitch er bara táknræn Ákvörðun Fitch um að lækka lánshæfiseinkunn Íslands í ruslflokk er fyrst og fremst táknræn og hefur enga raunverulega þýðingu í bili, segir Jón Daníelsson, hagfræðingur. Að mati Jóns er enn hægt að ná farsælli niðurstöðu í Icesave málinu. Þar skipti miklu að skipa þverpólitíska nefnd til viðræðna við Breta og Hollendinga. 6.1.2010 12:11
Dómari fellst ekki á kröfu Baldurs Héraðsdómur Reykjavíkur fellst ekki á kröfu Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, þess efnis að rannsókn sérstaks saksóknara á honum verði hætt. Baldur, sem sætir rannsókn hjá sérstökum saksóknara hafði krafist þess að rannsókninni yrði hætt og kyrrsetningu á eignum hans aflétt. Lögmaður Baldurs sagði eftir úrskurðinn að honum yrði áfrýjað til Hæstaréttar. 6.1.2010 11:37
Könnun: 56 prósent styðja forsetann Markaðsrannsóknafyrirtækið MMR hefur gert könnun þar sem spurt er út í afstöðu manna til ákvörðunar forseta Íslands um Icesave. Könnunin var framkvæmd dagana 5.-6. janúar 2010 og var heildarfjöldi svarenda 877 einstaklingar að því er fram kemur í tilkynningu frá MMR. 6.1.2010 11:02
Flýði til þess að mótmæla ítrekuðu gæsluvarðhaldi Brasilíski lýtalæknirinn Hosmany Ramos þarf að sæta agaviðurlögum vegna flóttatilraunar auk þess sem hann hótaði fangaverði með heimatilbúnu eggvopni. Að sögn lögmanns Ramosar þá sætir hann einangrun í tíu daga. 6.1.2010 10:56
Betra er að pissa í skó en snjó Lögreglumenn úr Borgarnesi stöðvuðu nýverið ökumann , við reglubundið eftirlit, en sáu í fljótu bragði ekkert athugaavert við hann og fékk hann að halda áfram áleiðis til Reykjavíkur. 6.1.2010 10:53
Kosið um Icesave á vefsíðu Guardian Á vefsíðu breska dagblaðsins The Guardian er nú hægt að greiða atkvæði í Icesave málinu. Blaðið spyr hvort neyða eigi Íslendinga til þess að borga Icesave-skuldirnar. Boðið er upp á tvo valkosti: 6.1.2010 10:41
Bjóða íslenskum konum pening fyrir erótísk myndbönd Íslenskur erótískur samskiptavefur hefur auglýst eftir ungum íslenskum konum til þess að sitja fyrir á djörfum ljósmyndum eða myndskeiðum. Vefurinn, sem heitir Purplerabbit.is, inniheldur djörf myndbrot af íslenskum konum sem eru að gæla við brjóst sín eða stunda sjálfsfróun. Vefurinn greiðir tuttugu þúsund krónur fyrir hvert myndband. 6.1.2010 09:39
Gríðarleg smáskilaboðanotkun á gamlárskvöldi Íslendingar nýttu farsímana vel til þess að koma nýárskveðjum til vina og vandamanna á gamlárskvöld enda sýndu kerfi Símans sjöföldun á SMS sendingum á þriggja klukkustunda tímabili í kringum miðnætti þegar 1. janúar 2010 rann upp samkvæmt tilkynningu frá símanum. 6.1.2010 09:16
Kosið 20. febrúar Þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave lögin sem Alþingi samþykkti í síðustu viku og forseti Íslands neitaði í gær að staðfesta fer fram laugardaginn 20. febrúar. Þetta var fullyrt á fréttavefnum Svipan.is sem nátengdur Hreyfingunni í gærkvöldi. 6.1.2010 09:10
Hart tekist á um ákvörðun Ólafs á Facebook Tvær Facebook síður hafa verið stofnaðar í kjölfar ákvörðunar Ólafs Ragnars Grímssonar forseta í gær þegar hann neitaði að skrifa undir Icesave lögin. Önnur síðan krefst þess að forsetinn segi af sér en á hinni kemur saman fólk sem vill þakka Ólafi Ragnari fyrir hugrekkið. Mjótt er á mununum á milli hópanna því 5.705 vilja að forsetinn segi af sér en 5.573 lýsa yfir stuðningi við hann. 6.1.2010 08:46
Handtóku vitorðsmann þjófs á Selfossi Lögreglan á Selfossi handtók í gærkvöldi mann, sem talinn er hafa verið í vitorði við mann, sem handtekinn var í fyrrinótt eftir innbrot í tölvuverslun i bænum. Þeim var sleppt að yfirheyrslum loknum í gær, en hinn handtekinn nokkru síðar. Í fórum hans fundust hlutir, sem talið er að séu úr innbrotum, en Selfosslögreglan rannsakar nú fimm innbrot í sumarbústaði í Grímsnesi um síðustu helgi. 6.1.2010 07:24
Íbúðir fylltust af reyk Töluverðar reykskemmdir urðu innanstokks í íbúðarhúsi á Seltjarnarnesi í gærkvöldi, eftir að húsið fylltist af reyk, en engin var heima þegar það gerðist. Reykinn lagði frá arni, eða kamínu, þar sem eldur logaði, en þar sem trekkspjaldið í reykháfnum var lokað, leitaði reykurinn inn í húsið en ekki upp reykháfinn. Slökkviliðið reykræsti húsið. 6.1.2010 07:20
Hafísinn stefnir á Vestfirði Hafís, sem kominn var norð- vestur fyrir landið, rekur nú í austurátt og stefnir Vestfirði. 6.1.2010 07:16
Íslenskar gæsir fresta för sinni til Bretlands Fjórir veiðimenn skutu 27 grágæsir í Landeyjum á Suðurlandi í gær, sem telst til tíðinda á þessum árstíma. Þær eru yfirleitt farnar til Bretlands eigi síðar en í desember, en heimilt er að skjóta þær til 15. mars. 6.1.2010 07:14
Ríkisstjórnin ræddi afsögn eftir synjun Reglubundinn ríkisstjórnarfundur var í stjórnarráðinu í gær þegar blaðamannafundur forsetans hófst á Bessastöðum. Hlé var gert og hlýtt á forsetann en sex mínútur yfir ellefu bárust ráðherrum bréf frá forsetanum um að hann ætlaði að synja frumvarpinu staðfestingar. Í kjölfarið ræddu ráðherrar það af mikilli alvöru hvort rétt væri að stjórnin færi frá. Ákveðið var að sitja áfram. 6.1.2010 06:15
Hótaði fangaverði lífláti í stroktilraun Brasilíski gæsluvarðhaldsfanginn Hosmany Ramos hótaði fangaverði lífláti um hádegisbilið í gær þegar verið var að færa hann fyrir dómara, til framlengingar á gæsluvarðhaldi hans, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Áður hafði honum tekist að útbúa á laun oddhvasst stunguvopn, sem hann hótaði fangaflutningamanninum með. 6.1.2010 06:00
Vísað til þjóðarinnar Forseti Íslands telur að meirihluti þjóðarinnar og alþingismanna vilji kjósa um Icesave-lögin. Hann vonast eftir varanlegri sátt um málið. Mat forsetans á því hvort málum sé skotið til þjóðarinnar ræður segir lagaprófessor við HR. 6.1.2010 06:00
Kærður fyrir að svipta stúlku frelsi og nauðga henni ítrekað Maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi vegna samskipta sinna við þrjár ungar stúlkur sem hann komst í kynni við á Facebook er grunaður um að hafa haldið einni þeirra nauðugri á heimili sínu yfir nótt og nauðgað henni ítrekað. Jafnframt er hann grunaður um að hafa haft samræði við hinar tvær. 6.1.2010 05:45
Aftur komin í björgunarstarf Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að ákvörðun forsetans hafi sett marga þætti efnahagslífsins í uppnám. „Við erum aftur komin í björgunarstarf sem við töldum að við hefðum lokið að mestu og við héldum að við gætum farið að einbeita okkur að uppbyggingunni. Nú sjáum við viðbrögð alþjóðasamfélagsins; lánshæfismatið er komið í ruslflokk, vaxtalækkunarferlinu er stefnt í óvissu, áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og gengisþróuninni er stefnt í óvissu, þetta hefur áhrif á skuldatryggingaálagið og við vitum ekki nema þetta geti haft áhrif á frestun lána frá Norðurlöndunum. 6.1.2010 05:15
Óvíst hvaða reglum verður kosið eftir Fyrir Alþingi liggja tvö frumvörp um fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu, eitt stjórnarfrumvarp og annað þingmannafrumvarp. Allsendis er þó óvíst að við annaðhvort þeirra verði stuðst við fyrirkomulag þessarar atkvæðagreiðslu. 6.1.2010 05:15
Þjóðin kýs um hvort lögum verður breytt Innan tíðar verða lög um breytingar á ríkisábyrgð vegna Icesave borin undir þjóðina til synjunar eða samþykktar. Þar fær hún tækifæri til að taka afstöðu til þess hvort þær breytingar sem Alþingi gerði á fyrri lögum um málið, sem samþykkt voru í september, verði grundvöllur samninga við Breta og Hollendinga. 6.1.2010 05:00
Ógilding lögleg en pólitískt ólíkleg Það mundi standast stjórnarskrána að Alþingi felldi Icesave-lögin úr gildi í stað þess að vísa þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er þó pólitískt ólíklegt að núverandi ríkisstjórnarflokkar afgreiði málið með þeim hætti. Þetta er mat Gunnars Helga Kristinssonar, prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Í sama streng tekur Eiríkur Tómasson, lagaprófessor við HÍ. 6.1.2010 04:45
Kvartað vegna lána Nokkrar kvartanir hafa borist Neytendasamtökunum vegna svokallaðra SMS-lána sem hafa verið að ryðja sér til rúms hér á landi. Samtökin vilja að gripið verði til aðgerða gegn slíkum lánum hér á landi til að koma í veg fyrir frekari framgang þeirra. 6.1.2010 04:45
Áfellisdómur Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, lítur á ákvörðun forseta sem áfellisdóm yfir störfum sínum. 6.1.2010 04:15
Ísland í fimmta sæti Hlutfallslega fæst banaslys urðu í umferðinni á Möltu samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir nýliðið ár. Banaslysin voru 3,7 á hverja 100 þúsund íbúa á Möltu, en 5,4 á hverja 100 þúsund íbúa hér á landi. 6.1.2010 04:15
Ákærðir fyrir að ræna mann Dómsmál Tveir karlmenn, 29 og 35 ára, hafa verið ákærðir fyrir húsbrot, rán, eignaspjöll og tilraun til fjárkúgunar. 6.1.2010 04:00
Líkur minnka á hagvexti í ár „Lykillinn að endurreisninni er að Ísland hafi aðgang að fjármálamörkuðum. Með þessu er óvissa um aðgang ríkisins að lánsfé sem og opinberra fyrirtækja sem hafa verið að leita eftir fyrirgreiðslu. Svo snertir þetta bankana sem þurfa erlent lánsfé til að endurlána inn í atvinnulífið," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. „Þessi ákvörðun tefur fyrir og skapar óþarfa óvissu." 6.1.2010 04:00
Óvissa og tóm í stjórnarskránni „Forsetinn þarf ekki að rökstyðja ákvörðun sína þótt hann vilji gera það til að réttlæta niðurstöðuna,“ segir Björg Thorarensen, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands. Hún segir rökstuðninginn hafa litla þýðingu. Aðalatriðið segir Björg vera málskotsheimild forseta í stjórnarskrá og segir merkilegt að stjórnmálamenn skuli ekki, eftir ákvörðun forseta árið 2004, þegar hann synjaði fjölmiðlalögum staðfestingar, hafa tekið málið upp og búið til farveg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur. 6.1.2010 03:45
Segir augljóst að ekki sé hægt að reiða sig á Ísland Viðbrögð Breta og Hollendinga við synjun forseta 6.1.2010 00:01
Tvísýnt um endurreisnaráætlun „Með ákvörðun forseta Íslands um að staðfesta ekki breytingu Alþingis á lögum nr. 96/2009, svokölluðum Icesave-lögum er þeim árangri sem náðst hefur í endurreisnaráætlun stjórnvalda teflt í mikla tvísýnu,“ segir í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. 6.1.2010 00:01
Kosið um Icesave 20. febrúar Þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave lögin sem Alþingi samþykkti í síðustu viku og forseti Íslands neitaði í dag að staðfesta fer fram laugardaginn 20. febrúar. Þetta er fullyrt á fréttavefnum Svipan.is sem nátengdur Hreyfingunni. 5.1.2010 23:42
Alþingi kallað saman í lok vikunnar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, funduðu í Ráðherrabústaðnum kvöld með forystumönnum stjórnandstöðunnar og er þeim fundum lokið. 5.1.2010 21:50
Ríflega 4300 vilja að forsetinn segi af sér Mjög hefur fjölgað í hópi þeirra sem vilja að Ólafur Ragnar Grímsson segi af sér sem forseti Íslands vegna ákvörðunar hans að neita að staðfesta Icesave lögin sem Alþingi samþykkti fyrir tæpri viku. Skömmu eftir að ákvörðun Ólafs lág fyrir var stofnaður sérstakur hópur á Facebook sem vill að forsetinn láti af störfum. 5.1.2010 21:37
Rafmagn komið á í Hádegismóum og Árbæ Háspennubilun varð um klukkan 21:15 í kvöld sem orsakaði rafmagnsleysi í rúman hálftíma í hluta Árbæjarhverfis og Hádegismóum, en rafmagn er nú komið aftur á. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. 5.1.2010 21:41
Grafalvarleg staða Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að upp sé komin grafalvarleg staða vegna ákvörðunar Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta, um að synja lögum um Icesave staðfestingar. Fulltrúar vinnuveitenda og launþega sem komu að stöðugleikasáttmálanum funduðu með forystumönnum ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum fyrr í kvöld. Ákaflega mikilvægt er að treysta samstarf þessara aðila, að mati Gylfa. 5.1.2010 21:14
Stjórnarandstaðan boðuð í Ráðherrabústaðinn Forystumenn stjórnarandstöðunnar hafa verið boðaðir á fund með leiðtogum ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum klukkan níu. Fundi ríkisstjórnarinnar með aðilum vinnumarkaðarins er nýlokið. 5.1.2010 20:32