Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stjórnarsamstarfið ekki í hættu - ósátt með afstöðu Ólafs Þingflokksfundi Samfylkingarinnar sem hófst klukkan þrjú er lokið. Ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að staðfesta ekki Icesave lögin setur hagsmuni þjóðarinnar í hættu, að mati Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur þingflokksformanns Samfylkingarinnar. Hún fullyrðir að stjórnarsamstarfið sé ekki í hættu vegna ákvörðunar Ólafs. 5.1.2010 17:52
Seðlabankastjóri vill ekki tjá sig um ákvörðun forsetans Már Guðmundsson seðlabankastjóri neitar að tjá sig um þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, að skjóta Icesave lögunum til þjóðarinnar. 5.1.2010 17:34
Víkingur Heiðar hlýtur bjartsýnisverðlaunin Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2009. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin í Iðnó í dag og afhenti Víkingi Heiðari áletraðan verðlaunagrip úr áli og verðlaunafé að upphæð 1 milljón króna. Brynhildur Guðjónsdóttir, leikkona, fékk viðurkenninguna í fyrra. 5.1.2010 17:04
Ríkisstjórn boðar fulltrúa vinnuveitanda og launþega á fund Fulltrúar vinnuveitenda og launþega sem komu að stöðugleikasáttmálanum hafa verið boðaðir á fund í Ráðherrabústaðnum klukkan sjö í kvöld. Það var forsætisráðuneytið sem boðaði fundinn stuttu eftir hádegi í dag. 5.1.2010 17:02
Segir AGS draga fjárhagsaðstoðina til baka ef þjóðin hafnar Icesave Allur alþjóðlegur fjárhagslegur stuðningur við Ísland verður úr sögunni ef Íslendingar greiða ekki Bretum og Hollendingum skaðann sem hlaust af Icesave-málinu. Þetta sagði Paul Myners, bankamálaráðherra í Bretlandi, í viðtali við Reuters fréttastofuna í dag. 5.1.2010 16:30
Gylfi Arnbjörnsson: Það síðasta sem við þurftum var óvissan „Það er nokkuð ljóst að ákvörðun forsetans leiðir til enn meiri óvissu,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ um ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, að synja Icesave-lögum um staðfestingu. 5.1.2010 16:00
Framsóknarmenn funda í kvöld Þingflokkur Framsóknarflokksins ætlar að hittast í kvöld til þess að fara yfir stöðu mála í kjölfar þess að forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson neitaði að staðfesta Icesave lögin svokölluðu. Þingflokkar Samfylkingar og VG funda nú um sama mál. 5.1.2010 15:49
Engin viðbrögð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum Engin viðbrögð fást frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum vegna synjunar Ólafs Ragnars Grímssonar á Icesave-lögunum svokölluðu. Þegar Vísir reyndi að hafa samband við Franek Rozwadowski, fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi, þá fengust þau skilaboð að sjóðurinn hygðist ekki tjá sig um málið í dag. 5.1.2010 15:19
Össur fer ekki til Indlands með Ólafi Ragnari Össur Skarphéðinsson ætlar ekki að fara með forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni til Indlands þar sem forsetinn mun meðal annars taka við Nehru-verðlaununum svokölluðu. Heimsóknin er opinber og til stóð að utanríkisráðherrann færi með forsetanum til fundar við forseta Indlands Pratibha Patil, forsætisráðherrann Manmohan Singh og aðra ráðamenn landsins. 5.1.2010 15:11
Þingflokkarnir meta stöðuna Þingfundir eru nú að hefjast hjá Samfylkingunni og Vinstri grænum þar sem staðan verður metin í kjölfar ákvörðunar forseta um að synja lögum um ríkisábyrgð í Icesave-málinu staðfestingar. Þingflokkarnir funda sitt í hvoru lagi til að byrja með en síðan má gera ráð fyrir því að meirihlutinn hittist til að ráða ráðum sínum. 5.1.2010 15:00
Stjórnarþingmaður krefst afsagnar forsetans á Facebook Þingmaður Samfylkingarinnar, Jónína Rós Guðmundsdóttir, hefur bæst í hóp þeirra tæplega 1500 manna sem vilja að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segi af sér embætti. Vísir sagði frá því fyrr í dag að hópur væri kominn á Facebook sem krefðist þess að forsetinn segði af sér eftir að hann synjaði Icesave-lögunum í morgun. 5.1.2010 14:35
Allra augu beinast að Íslandi Fjölmiðlar allra helstu nágrannaríkja okkar Íslendinga hafa sagt frá ákvörðun forseta Íslands um að synja Icesavelögum um staðfestingu í dag. Eftir hádegi í dag var fréttin efst á vef bresku BBC fréttastofunnar. 5.1.2010 13:52
Ingibjörg Sólrún tjáir sig ekki um ákvörðun forsetans Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, vill ekki tjá sig um þá ákvörðun forsetans að synja Icesave lögunum staðfestingar. 5.1.2010 13:22
Facebook hópur vill að forsetinn segi af sér Áður en Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, greindi frá ákvörðun sinni varðandi Icesave lögin var vitað að ákvörðun hans yrði umdeild, hver sem hún yrði. Skömmu eftir að ljóst var að hann myndi ekki staðfesta hin umdeildu lög og þess í stað vísa þeim til þjóðarinnar var stofnaður hópur á Fésbókinni sem vill að forsetinn segi af sér. Meðlimum hópsins fjölgar ört og eru þeir nú orðnir tæplega 600 talsins. 5.1.2010 13:14
Óvíst um framtíð ríkisstjórnarinnar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, vildi ekki tjá sig um það hvort ríkisstjórnin muni lifa af synjun forseta Íslands á Icesave-lögunum. Aðspurð á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í stjórnarráðinu í hádeginu vildi hún ekkert segja til um það hvert framhald ríkisstjórnar yrði, fyrst yrðu þingflokkar beggja stjórnarflokkanna að funda. Sá fundur er áætlaður klukkan þrjú í dag. 5.1.2010 12:45
Sigmundur Davíð: Þarf að sameina þjóðina ekki sundra „Ég er reyndar mjög sáttur við ákvörðunina og það þarf að nýta tækifærið til þess að sameina þjóðina en ekki sundra hana,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson um ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, þar sem hann synjaði lögum staðfestingar varðandi ríkisábyrgð á Icesave. 5.1.2010 12:13
Ríkisstjórnin: Endurreisnaráætlun stjórnvalda sett í uppnám Ríkisstjórnarfundi er lokið í Stjórnarráðinu og að honum loknum las Jóhanna Sigurðurdóttir forsætisráðherra upp yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. 5.1.2010 12:13
Bjarni Ben: Forsetinn samkvæmur sjálfum sér Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þó það sé sín skoðun að forseti eigi ekki að beita synjunarvaldi sé forsetinn samkvæmur sjálfum sér með synjun sinni á breyttum Icesave-lögum. Hann segist einnig gleðjast yfir því tækifæri sem þetta feli í sér til þess að ná víðtækri sátt og samtöðu á meðal þjóðarinnar í Icesave-málinu. 5.1.2010 12:08
Ögmundur: Fullkomlega rökrétt ákvörðun Ögmundur Jónasson fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Íslands og eindreginn andstæðingur Icesave-samningsins eins og hann lítur út í dag segir að ákvörðun Ólafs Ragnars um að neita að skrifa undir Icesave lögin sé fullkomlega rökrétt. 5.1.2010 11:56
Birgitta Jónsdóttir: Brast í grát yfir ræðu Ólafs Ragnars „Ég er í hamingjukasti,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, og bætir við að synjun Forseta Íslands á staðfestingu á lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave sé ólýsanleg tilfinning. 5.1.2010 11:52
Annar í gæsluvarðhald vegna amfetamínsmygls Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gær annan karlmann í tengslum við innflutning á tæpum fjórum kílóum af amfetamíni. Maðurinn var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í morgun. 5.1.2010 11:41
Ríkisstjórnin fundar enn í Stjórnarráðinu Ríkisstjórn Íslands er á fundi í Stjórnarráðinu sem hófst áður en Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnti um að hann ætlaði að vísa Icesave-lögunum til þjóðarinnar í stað þess að undirrita lögin. Talsmaður forsætisráðherra tilkynnti fjölmiðlamönnum sem bíða viðbragða að fundurinn stæði enn og að ekki væri ljóst hvenær honum lýkur. 5.1.2010 11:12
Forsetinn vísar Icesave lögum til þjóðarinnar Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur ákveðið að staðfesta ekki lög um ríkisábyrgð á Icesave skuldbindingar Íslands. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsetans á Bessastöðum klukkan ellefu. Forsetinn hefur haft lögin til staðfestingar í fimm sólahringa. 5.1.2010 11:01
Forsetinn afhendir íslensku bjartsýnisverðlaunin Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, mun afhenda íslensku bjartsýnisverðlaunin fyrir hönd Rio Tinto Alcan klukkan þrjú í dag í Iðnó. 5.1.2010 10:55
Lélegri herbergjanýting á hótelum Meðal herbergjanýting á reykvískum hótelum í nóvember síðastliðnum var níu og hálfu prósenti lélegri en í sama mánuði árið áður og á landsbyggðarhótelum var nýtingin sextán prósentum lélegri en árið áður. 5.1.2010 08:42
Innbrotsþjófur tekinn á Selfossi Lögreglan á Selfossi handsamaði þjóf í nótt, sem hafði brotist inn í tölvuverslun í bænum og meðal annars stolið tölvu. Hann reyndi að fela sig, en lögregla fann hann og handtók. 5.1.2010 07:28
Bensínlítrinn yfir 200 krónur innan tíðar Bíleigendur geta búist við að lítraverð á bensíni í sjálfsafgreiðslu rjúfi 200 króna múrinn innan tíðar vegna hækkunar bensín- og olíugjalda um áramótin, samfara nýjum kolefnisskatti og hækkun á virðisaukaskatti á bensín. 5.1.2010 07:19
Halda til loðnuleitar í dag Tvö hafrannsóknaskip halda til loðnuleitar í dag, en eins og við greindum frá nýverið, hefur svo lítið mælst af loðnu hér við land að undanförnu að Hafrannsóknastofnun hefur ekki treyst sér til að leggja til að veiðar megi hefjast. Það hefur því ekki verið gefinn út neinn upphafskvóti, eins og oft hefur verið gert, á meðan frekari mælingar fara fram. Það er því ekkert veiðiskip í startholunum núna, eins og jafnan er á þessum árstíma. 5.1.2010 07:14
Frostavetur á Bretlandseyjum Ekkert lát er á frostviðri á Bretlandseyjum frekar en hér á landi þessa dagana og í nótt var um 10 gráðu frost á Suður-Englandi. Búist er við því að snjókoman sem verið hefur í Skotlandi og á Írlandi færist suður á bóginn í dag og hefur hraðbrautum í mið-Englandi þegar verið lokað vegna snjókomunnar. 5.1.2010 07:08
Beint frá Bessastöðum klukkan fimm mínútur í ellefu Afstaða Ólafs Ragnars Grímssonar forseta til Icesave laganna mun væntanlega skýrast fyrir hádegi, því hann hefur boðað til blaðamannafundar á Bessastöðum klukkan ellefu. Nú eru fimm dagar síðan hann fékk lögin í hendur og mun þetta vera lengsti frestur sem forseti hefur tekið sér, til að taka afstöðu til nýrra laga. 5.1.2010 07:06
Hitti fjóra ráðherra vegna ríkisábyrgðar Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnir um ákvörðun sína varðandi lög um ríkisábyrgð vegna Icesave á Bessastöðum klukkan 11 í dag. Þá kemur í ljós hvort hann staðfestir lögin eða synjar. 5.1.2010 06:00
Í varðhaldi vegna áreitis á Facebook Maður á þrítugsaldri situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa átt í vafasömum samskiptum við þrjár ungar stúlkur á Facebook. Þær eru þrettán og fjórtán ára. 5.1.2010 06:00
Finnur heldur sætinu heitu Verið er að fara yfir umsóknir um stöðu bankastjóra Arion banka. Frestur til að sækja um starfið rann út 20. desember síðastliðinn og hefur ekkert verið gefið út um umsækjendur og fjölda þeirra. 5.1.2010 05:30
Víða um land er tími kominn á hræringar Jarðfræði Margt bendir til að hafið sé tímabil aukinnar jarðvirkni hér á landi, segir Ragnar Stefánsson, prófessor í jarðvárfræðum við Háskólann á Akureyri. Hann segir Suðurlandsskjálftana 2000 og 2008 kunna að hafa breytt aðstæðum á Suðurlandi og út á Reykjanes. 5.1.2010 05:15
Hvetja forsetann til að skrifa strax undir Icesave Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambands Íslands, og Elín Björg Jónsdóttir, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, hvetja Ólaf Ragnar Grímsson forseta til að staðfesta sem fyrst frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave. Um 108 þúsund félagsmenn eru í þeim fyrrnefndu, en rúmlega 20 þúsund í þeim síðarnefndu. Þá tekur Vilhjálmur Egilsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, í sama streng. Í þeim samtökum eru um tvö þúsund fyrirtæki, þar sem starfar um helmingur allra launþega í landinu. 5.1.2010 05:15
Erum á tímabili vaxandi jarðvirkni Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir vísbendingar um að hafið sé tímabil vaxandi jarðvirkni, frá og með byrjun sjöunda áratugar síðustu aldar, en að meðaltali skilji um 140 ár að virk og minna virk tímabil. 5.1.2010 05:00
Fækkar í hópi reykingafólks Talsvert dró úr reykingum Íslendinga á árinu 2009 og er svo komið að líklega hefur aldrei lægra hlutfall landsmanna reykt. 5.1.2010 05:00
Er prins einn æðstu manna Serbíu? Skrifstofa forseta meðhöndlar bréf forseta Íslands til krónprins Serbíu sem bréf til þjóðhöfðingja eða æðsta forsvarsmanns ríkis. Ísland viðurkennir ekki tilkall krónprinsins til ríkis í Serbíu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál á eftir að fjalla um afhendingu nokkurra bréfa sem rannsóknarnefnd Alþingis fékk frá forseta. 5.1.2010 05:00
Vitnum talin stafa veruleg hætta af mansalsmönnum Vitnum í mansalsmálinu á Suðurnesjum er talin stafa veruleg hætta af fimm karlmönnum sem sitja inni vegna málsins, að því er fram kemur í kröfu ríkissaksóknara yfir framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir þeim. Ríkissaksóknari vísar til hættumats greiningadeildar Ríkislögreglustjóra hvað þetta varðar. 5.1.2010 05:00
Hættur vegna anna á Alþingi Kristján Þór Júlíusson alþingismaður er hættur sem bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri. „Vegna ófyrirséðra anna í störfum Alþingis á þessu ári og fyrirsjáanlegum miklum önnum strax í upphafi næsta árs hef ég nú ákveðið að óska eftir lausn frá störfum í bæjarstjórn Akureyrar frá og með næstkomandi áramótum,“ segir í bréfi Kristjáns sem lesið var upp á síðasta bæjarstjórnarfundi. 5.1.2010 04:45
Óvissa um þjóðaratkvæðagreiðslu Óvíst er hvað gerist neiti forseti Íslands að skrifa undir Icesave-lögin. Engin lög eru til um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu. 5.1.2010 04:45
Bensínlítrinn hækkar um átta krónur Búast má við að lítraverð á bensíni muni hækka um tæplega átta krónur, og lítrinn af dísilolíu um tæpar sjö krónur þegar auknar álögur ríkisins fara út í eldsneytisverðið snemma í janúar, samkvæmt útreikningum Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). 5.1.2010 04:45
Meiri þekking við Grænland Meiri þekking á olíujarðfræðinni við Grænland en við Ísland er helsta skýring þess að olíuleitarfyrirtæki höfðu meiri áhuga á útboði Grænlendinga á sérleyfum til olíuleitar en útboði Íslendinga. 5.1.2010 04:30
Kjarrval í lagi sem millinafn Mannanafnanefnd hefur breytt fyrri úrskurðum og heimilað millinafnið Kjarrval. Beiðni um að taka Kjarrval á mannanafnaskrá var áður synjað árin 2006 og 2007 þar sem of mikil líkindi væru við ættarnafnið Kjarval. Nú var mannanafnanefnd bent á að líkindi með nöfnum séu ekki einsdæmi. 5.1.2010 04:30
Færist til Landspítala til hausts Landspítalinn tók um áramót við rekstri deildar L-1 á Landakoti, sem áður var í höndum Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Á deildinni búa á annan tug aldraðra, einkum fólk með heilabilun. 5.1.2010 04:15