Innlent

Alþingi kallað saman í lok vikunnar

Steingrímur og Jóhanna á fundi með blaðamönnum í stjórnarráðinu fyrr í dag.
Steingrímur og Jóhanna á fundi með blaðamönnum í stjórnarráðinu fyrr í dag. Mynd/Anton Brink

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, funduðu í Ráðherrabústaðnum kvöld með forystumönnum stjórnandstöðunnar og er þeim fundum lokið. Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Hreyfingarinnar, segir að stefnt sé að því að Alþingi komi saman á föstudag.

Jóhann og Steingrímur kölluðu til sín formenn stjórnandstöðuflokkan einn af öðrum til að fara yfir þá stöðu sem upp er komin eftir að forsetinn neitaði að staðfesta Icesave lögin sem Alþingi samþykkti nýverið. Birgitta segir að þau hafi verið að leita eftir stuðningi við frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslur.

Fyrr í kvöld fundaði forysta ríkisstjórnarinnar með fulltrúum vinnuveitenda og launþega sem komu að stöðugleikasáttmálanum í sumar. Á fundinn komu meðal annars fulltrúar Samtaka atvinnulífsins, Bandalags háskólamanna, BSRB, ASÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.




Tengdar fréttir

Stjórnarsamstarfið ekki í hættu - ósátt með afstöðu Ólafs

Þingflokksfundi Samfylkingarinnar sem hófst klukkan þrjú er lokið. Ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að staðfesta ekki Icesave lögin setur hagsmuni þjóðarinnar í hættu, að mati Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur þingflokksformanns Samfylkingarinnar. Hún fullyrðir að stjórnarsamstarfið sé ekki í hættu vegna ákvörðunar Ólafs.

Allra augu beinast að Íslandi

Fjölmiðlar allra helstu nágrannaríkja okkar Íslendinga hafa sagt frá ákvörðun forseta Íslands um að synja Icesavelögum um staðfestingu í dag. Eftir hádegi í dag var fréttin efst á vef bresku BBC fréttastofunnar.

Jón Baldvin: Ég væri löngu farinn til Bessastaða

„Ég leyfi mér nú að efast um hann hafi hugsað þetta mál til enda,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, aðspurður um þá ákvörðun forseta Íslands að staðfesta ekki Icesave lögin sem Alþingi samþykkti 30. desember. Hann fullyrðir að Alþingi sé óstarfshæft.

Verdens Gang: Neita að borga kreppuskuld

Ákvörðun forseta Íslands í Icesave málinu er forsíðuefni vefsíðu norska blaðsins Verdens Gang undir fyrirsögninni „Neita að borga kreppuskuld".

Grafalvarleg staða

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að upp sé komin grafalvarleg staða vegna ákvörðunar Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta, um að synja lögum um Icesave staðfestingar. Fulltrúar vinnuveitenda og launþega sem komu að stöðugleikasáttmálanum funduðu með forystumönnum ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum fyrr í kvöld. Ákaflega mikilvægt er að treysta samstarf þessara aðila, að mati Gylfa.

Börsen: Ísland hleypur frá breskri bankaskuld

Norrænir fjölmiðlar voru snöggir að greina frá niðurstöðu forsetans í Icesave málinu. Fyrirsögnin á stuttri frétt á börsen.dk er „ Ísland hleypur frá breskri bankaskuld".

Bloomberg: Forsetinn ógnar alþjóðasamskiptum Íslands

Í umfjöllun Bloomberg fréttaveitunnar um ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar forseta um að hafna Icesave frumvarpinu segir að með þessari ákvörðun ógni forsetinn alþjóðasamskiptum Íslands og trufli mörg nauðsynleg mál í efnahagslegri endurreisn landsins.

Beint frá Bessastöðum klukkan fimm mínútur í ellefu

Afstaða Ólafs Ragnars Grímssonar forseta til Icesave laganna mun væntanlega skýrast fyrir hádegi, því hann hefur boðað til blaðamannafundar á Bessastöðum klukkan ellefu. Nú eru fimm dagar síðan hann fékk lögin í hendur og mun þetta vera lengsti frestur sem forseti hefur tekið sér, til að taka afstöðu til nýrra laga.

Íslendingar heppnir að fá ekki varðskip Breta á sig

„Það er rétt. Þeim verður sannarlega ekki hleypt inn í Evrópusambandið núna. Reyndar verða þeir bara heppnir ef við sendum ekki varðskipin á þá,“ segir Jeremy Warner, aðstoðarritstjóri breska blaðsins Telegraph, á bloggi sínu á vef Telegraph.

FT: Ólíklegt að Bretar semji um betri kjör á Icesave skuldum

Viðskiptablaðið Financial Times segir að það sé lítill áhugi á því innan bresku stjórnarinnar að semja við Íslendinga um betri kjör á Icesave skuldinni. Kjörin séu þegar nægilega örlát í garð Íslendinga og gefi þjóðinni sjö ára frið til að endurbyggja efnahag sinn.

Sigmundur Davíð: Þarf að sameina þjóðina ekki sundra

„Ég er reyndar mjög sáttur við ákvörðunina og það þarf að nýta tækifærið til þess að sameina þjóðina en ekki sundra hana,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson um ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, þar sem hann synjaði lögum staðfestingar varðandi ríkisábyrgð á Icesave.

Þingflokkarnir meta stöðuna

Þingfundir eru nú að hefjast hjá Samfylkingunni og Vinstri grænum þar sem staðan verður metin í kjölfar ákvörðunar forseta um að synja lögum um ríkisábyrgð í Icesave-málinu staðfestingar. Þingflokkarnir funda sitt í hvoru lagi til að byrja með en síðan má gera ráð fyrir því að meirihlutinn hittist til að ráða ráðum sínum.

Kanada eða ESB leiði Icesave til lykta

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vill fá óháðan aðila eins og Evrópusambandið eða Kanada til að leiða málið til lykta. Hann segir að viðbrögð ríkisstjórnarinnar við synjun forsetans hafi valdið sér vonbrigðum.

Forsetinn vísar Icesave lögum til þjóðarinnar

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur ákveðið að staðfesta ekki lög um ríkisábyrgð á Icesave skuldbindingar Íslands. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsetans á Bessastöðum klukkan ellefu. Forsetinn hefur haft lögin til staðfestingar í fimm sólahringa.

Framsóknarmenn funda í kvöld

Þingflokkur Framsóknarflokksins ætlar að hittast í kvöld til þess að fara yfir stöðu mála í kjölfar þess að forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson neitaði að staðfesta Icesave lögin svokölluðu. Þingflokkar Samfylkingar og VG funda nú um sama mál.

Reuters: Hollendingar og Bretar krefjast skýringa

Í tveimur fréttum um ákvörðun forsetans í Icesave málinu á Reuters segir að Hollendingar og Breta ætli að krefja íslensk stjórnvöld um skýringar á niðurstöðunni.

Facebook hópur vill að forsetinn segi af sér

Áður en Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, greindi frá ákvörðun sinni varðandi Icesave lögin var vitað að ákvörðun hans yrði umdeild, hver sem hún yrði. Skömmu eftir að ljóst var að hann myndi ekki staðfesta hin umdeildu lög og þess í stað vísa þeim til þjóðarinnar var stofnaður hópur á Fésbókinni sem vill að forsetinn segi af sér. Meðlimum hópsins fjölgar ört og eru þeir nú orðnir tæplega 600 talsins.

Ríkissjóður Íslands kominn í ruslflokk

Fitch lánshæfismatsfyrirtækið hefur lækkað lánshæfismat Íslands niður í ruslflokk í kjölfar ákvörðunar Ólafs Ragnars Grímssonar um að synja Icesave lögunum staðfestingar. Þetta kemur fram á fjármálavefnum Marketwathc.

Ríkisstjórn boðar fulltrúa vinnuveitanda og launþega á fund

Fulltrúar vinnuveitenda og launþega sem komu að stöðugleikasáttmálanum hafa verið boðaðir á fund í Ráðherrabústaðnum klukkan sjö í kvöld. Það var forsætisráðuneytið sem boðaði fundinn stuttu eftir hádegi í dag.

Engin viðbrögð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum

Engin viðbrögð fást frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum vegna synjunar Ólafs Ragnars Grímssonar á Icesave-lögunum svokölluðu. Þegar Vísir reyndi að hafa samband við Franek Rozwadowski, fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi, þá fengust þau skilaboð að sjóðurinn hygðist ekki tjá sig um málið í dag.

Ríkisstjórnin fundar enn í Stjórnarráðinu

Ríkisstjórn Íslands er á fundi í Stjórnarráðinu sem hófst áður en Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnti um að hann ætlaði að vísa Icesave-lögunum til þjóðarinnar í stað þess að undirrita lögin. Talsmaður forsætisráðherra tilkynnti fjölmiðlamönnum sem bíða viðbragða að fundurinn stæði enn og að ekki væri ljóst hvenær honum lýkur.

Ögmundur: Fullkomlega rökrétt ákvörðun

Ögmundur Jónasson fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Íslands og eindreginn andstæðingur Icesave-samningsins eins og hann lítur út í dag segir að ákvörðun Ólafs Ragnars um að neita að skrifa undir Icesave lögin sé fullkomlega rökrétt.

Bjarni Ben: Forsetinn samkvæmur sjálfum sér

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þó það sé sín skoðun að forseti eigi ekki að beita synjunarvaldi sé forsetinn samkvæmur sjálfum sér með synjun sinni á breyttum Icesave-lögum. Hann segist einnig gleðjast yfir því tækifæri sem þetta feli í sér til þess að ná víðtækri sátt og samtöðu á meðal þjóðarinnar í Icesave-málinu.

Óvissa um þjóðaratkvæðagreiðslu

Óvíst er hvað gerist neiti forseti Íslands að skrifa undir Icesave-lögin. Engin lög eru til um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu.

Greining: Líklegra að lánshæfismat ríkissjóðs lækki

Greining Íslandsbanka greinir frá fyrstu viðbrögðum fjármálamarkaðarins við ákvörðun forsetans í Icesave málinu. Þar kemur m.a. fram að nú sé líklegra en ella að lánshæfismat ríkissjóðs lækki.

Hitti fjóra ráðherra vegna ríkisábyrgðar

Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnir um ákvörðun sína varðandi lög um ríkis­ábyrgð vegna Icesave á Bessastöðum klukkan 11 í dag. Þá kemur í ljós hvort hann staðfestir lögin eða synjar.

Stjórnarandstaðan boðuð í Ráðherrabústaðinn

Forystumenn stjórnarandstöðunnar hafa verið boðaðir á fund með leiðtogum ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum klukkan níu. Fundi ríkisstjórnarinnar með aðilum vinnumarkaðarins er nýlokið.

Stjórnarþingmaður krefst afsagnar forsetans á Facebook

Þingmaður Samfylkingarinnar, Jónína Rós Guðmundsdóttir, hefur bæst í hóp þeirra tæplega 1500 manna sem vilja að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, segi af sér embætti. Vísir sagði frá því fyrr í dag að hópur væri kominn á Facebook sem krefðist þess að forsetinn segði af sér eftir að hann synjaði Icesave-lögunum í morgun.

„Endurnýjað hrun nú í boði forsetans“

Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar, óttast afleiðingar þess að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, neitaði í dag að skrifa undir Icesave lögin og vísaði þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Skuldatrygginarálag ríkissjóðs hækkaði strax

Skuldatryggingarálag ríkissjóðs hækkaði strax eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tilkynnti ákvörðun sína í Icesave málinu. Álagið stóð í 411 punktum við lok markaða í gærdag en er nú komið í rúma 428 punkta og er á uppleið.

Dagens Industri: Norrænu lánunum gæti seinkað

Sænski viðskiptavefurinn Dagens Industri hefur það eftir ónafngreindum embættismanni í finnska fjármálaráðuneytinu að ákvörðun forsetans í Icesave málinu gæti seinkað lánunum frá hinum Norðurlöndunum til Íslands.

Óvíst um framtíð ríkisstjórnarinnar

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, vildi ekki tjá sig um það hvort ríkisstjórnin muni lifa af synjun forseta Íslands á Icesave-lögunum. Aðspurð á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í stjórnarráðinu í hádeginu vildi hún ekkert segja til um það hvert framhald ríkisstjórnar yrði, fyrst yrðu þingflokkar beggja stjórnarflokkanna að funda. Sá fundur er áætlaður klukkan þrjú í dag.

Segir AGS draga fjárhagsaðstoðina til baka ef þjóðin hafnar Icesave

Allur alþjóðlegur fjárhagslegur stuðningur við Ísland verður úr sögunni ef Íslendingar greiða ekki Bretum og Hollendingum skaðann sem hlaust af Icesave-málinu. Þetta sagði Paul Myners, bankamálaráðherra í Bretlandi, í viðtali við Reuters fréttastofuna í dag.

Business.dk: Ísland gæti orðið efnahagslegt svarthol

„Ákvörðunin gæti steypt Íslandi niður í efnahagslegt svarthol," segir m.a. í umfjöllun á vefsíðunni business.dk um þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands að hafna Icesave frumvarpinu. Fyrirsögnin á frétt business.dk um málið er eitthvað á þá leið að Ísland gæti endað sem fjárhagslegur útkjálki í heiminum (finansparia).

Ríflega 4300 vilja að forsetinn segi af sér

Mjög hefur fjölgað í hópi þeirra sem vilja að Ólafur Ragnar Grímsson segi af sér sem forseti Íslands vegna ákvörðunar hans að neita að staðfesta Icesave lögin sem Alþingi samþykkti fyrir tæpri viku. Skömmu eftir að ákvörðun Ólafs lág fyrir var stofnaður sérstakur hópur á Facebook sem vill að forsetinn láti af störfum.

Hvetja forsetann til að skrifa strax undir Icesave

Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambands Íslands, og Elín Björg Jónsdóttir, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, hvetja Ólaf Ragnar Grímsson forseta til að staðfesta sem fyrst frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave. Um 108 þúsund félagsmenn eru í þeim fyrrnefndu, en rúmlega 20 þúsund í þeim síðarnefndu. Þá tekur Vilhjálmur Egilsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, í sama streng. Í þeim samtökum eru um tvö þúsund fyrirtæki, þar sem starfar um helmingur allra launþega í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×