Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Útsvarstekjur á Vestfjörðum hækkuðu við fall krónunnar Útsvarstekjur sveitarfélaga á Vestfjörðum hækkuðu um 15,1 prósent á milli áranna 2008 og 2009. Þetta kemur fram í nýjum tölum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Tekjuaukning sveitarfélaga á landsvísu var 2,6 prósent. 13.1.2010 06:15
Ríkisforstjórar vefjast fyrir kjararáði Kjararáð hefur enn ekki lækkað laun þeirra starfsmanna ríkisins sem eru á hærri launum en forsætisráðherra, eins og kveðið er á um í lögum sem sett voru síðasta sumar. Á fimmta tug starfsmanna mun lækka í launum segir Guðrún Zoëga, formaður kjararáðs. 13.1.2010 06:15
Sækist eftir 2. sæti á lista Samfylkingarinnar Margrét Gauja Magnúsdóttir, kennari og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, sækist eftir 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í bæjarfélaginu í prófkjöri sem fram fer 30. janúar. 13.1.2010 06:00
Helmingi minna lánað en ári fyrr Heildarútlán Íbúðalánasjóðs allt síðasta ár námu rétt rúmum 30 milljörðum króna, 52 prósentum minna en á árinu 2008 þegar útlán námu rúmum 64 milljörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu sjóðsins í gær. 13.1.2010 06:00
Varað við lífshættulegu efni Kraftaverkaefni sem Landlæknisembættið hefur varað við hefur verið selt í Heilsubúðinni Góð heilsa gulli betri við Njálsgötu. Efnið nefnist MMS, Miracle Mineral Solution/Supplement. Eitrunarmiðstöð Landspítalans segir efnið geta valdið alvarlegum veikindum og jafnvel dauða. 13.1.2010 06:00
Kaupendur eiga ákæru í vændum Á annan tug meintra kaupenda vændisþjónustu á vegum Catalinu Mikue Ncogo á yfir höfði sér ákæru, þar sem slík kaup eru brot á ákvæði almennra hegningarlaga. Í ákvæðinu segir að hver sem greiði eða heiti greiðslu eða annars konar endurgjaldi fyrir vændi skuli sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári. 13.1.2010 05:00
Íslensk samstaða er forsenda viðræðna Forsenda þess að Bretar og Hollendingar hefji viðræður við Íslendinga um nýja Icesave-samninga er að full samstaða takist með íslensku stjórnmálaöflunum. Í slíkri samstöðu myndi felast trygging fyrir að nýir samningar myndu halda. Um leið þurfa, að mati Breta og Hollendinga, að liggja fyrir skýr samningsmarkmið af hálfu Íslands. 13.1.2010 05:00
Fyrirgera rétti sínum til skjóls Líta ætti til fælingarsjónarmiða þegar íhugað er hvort heimila eigi afnám takmarkana á ábyrgð hluthafa, sagði Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur við Háskólann í Reykjavík, í erindi sínu á fundinum í gær. 13.1.2010 04:00
Gefa þrettán tonn af fiski til bágstaddra Útgerðir og fiskvinnslur á Íslandi í samstarfi við SM Kvótaþing og Eimskip gefa Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands þrettán tonn af fiski. Það jafngildir 52 þúsund matarskömmtum að því er segir í tilkynningu. Að auki gaf Eimskip Mæðrastyrksnefnd 1.750 þúsund krónur sem söfnuðust í skötuveislu fyrirtækisins. 13.1.2010 03:30
Segir líf ríkisstjórnarinnar háð niðurstöðum atkvæðagreiðslunnar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur að niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave málið geti ráðið framtíð ríkisstjórnarinnar. Að miklu leyti á þetta eftir að snúast um líf 12.1.2010 20:24
Hyggst virkja Skaftá og reisa fóðurverksmiðju Virkjun Skaftár í landi Skálar á Síðu er á teikniborðinu og stefnt að því að framkvæmdir fari á fullt á næsta ári. Samhliða er áformað að reisa fóðurverksmiðju fyrir fiskeldi, sem nýti orkuna. 12.1.2010 18:34
Talsmaður neytenda vill í bæjarstjórn Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi vegna komandi kosninga. Hann sækist eftir fyrsta sætinu. 12.1.2010 16:43
Engar loðnuveiðar að svo stöddu Í nótt lauk mælingu rannsóknaskipanna Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar á loðnustofninum, en bæði skipin hafa verið við loðnumælingar frá 5. janúar. Í tilkynningu frá Hafró segir að stofnunin leggi til að veiðar verði ekki hafnar að svo stöddu. 12.1.2010 16:29
Catalina áfram í varðhaldi Miðbaugsmaddaman Catalina Ncogo var í dag úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til að koma í veg fyrir áframhaldandi brotastarfsemi hennar. 12.1.2010 16:19
Hollendingar: Engar nýjar viðræður að svo stöddu Hollenska fjármálaráðuneytið er ekki í viðræðum við Íslendinga vegna Icesave skuldbindinga. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir talskonu ráðuneytisins. Reuters vitnar til orða Steingríms J. Sigfússonar um að hratt þurfi að ganga til verka ætli menn að semja upp á nýtt áður en fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram. 12.1.2010 16:16
Dómarar fái auknar heimildir í forsjármálum Margvíslegar breytingar eru lagðar til á gildandi barnalögum í frumvarpi nefndar sem fór fyrir lög um forsjá barna, búsetu og umgegni. Breytingarnar varða meðal forsjá stjúp- og sambúðarforeldra, heimildir dómara í forsjármálum, hlutverk foreldra, ráðgjöf og sáttameðferð hjá sýslumönnum og ákvæði um umgengnisrétt. 12.1.2010 14:28
Flokksráðsfundur VG á Akureyri Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs verður haldinn á Akureyri næstu helgi en flokksráðið er æðsta vald flokksins milli landsfunda. Búist er við að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave og sveitastjórnarkosningar í vor setji svip sinn á umræðuna. 12.1.2010 14:16
Áframhaldandi varðahalds krafist yfir Catalinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun síðar í dag fara fram á að Miðbaugsmaddömunni Catalinu Ncogo verði áfram í gæsluvarðhaldi. 12.1.2010 13:40
Viðskiptavinir ÍLS sæki rafrænt um aðstoð í greiðsluvanda Viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs (ÍLS) sem þurfa að leita sér aðstoðar vegna greiðsluvanda geta nú sent rafrænt inn umsókn til banka, sparisjóða og Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, en ekki er lengur tekið við umsóknum á pappír. 12.1.2010 13:14
Sparisjóðsstjóri í haldi í átta klukkutíma Fyrrverandi sparisjóðsstjóri Byrs, Ragnar Zophonías Guðjónsson, var í haldi lögreglu í rúmar átta klukkustundir hinn 24. nóvember síðastliðinn í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á Exeter Holding. 12.1.2010 12:35
Þrjú dómaraefni tilnefnd í Mannréttindadómstólinn Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu Rögnu Árnadóttur, dómsmála- og mannréttindaráðherra, um að tilnefna Davíð Þór Björgvinsson, núverandi dómara við Mannréttindadómstólinn, Hjördísi Björk Hákonardóttur hæstaréttardómara og Pál Hreinsson hæstaréttardómara og formann Rannsóknarnefndar Alþingis, sem dómaraefni af Íslands hálfu við Mannréttindadómstól Evrópu. 12.1.2010 12:26
Árni Páll: Styrkja þarf stöðu skuldara Félagsmálaráðherra telur mikilvægt að skapa aðstæður svo fólk geti losnað undan skuldsetningu sem það ræður ekki við og bankarnir taki á sig tjónið en ekki ríkissjóður. Styrkja þurfi stöðu skuldaranna gagnvart bönkunum og frumvarp þess efnis sé í vinnslu. 12.1.2010 12:14
Steingrímur boðar frekari skattabreytingar Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, boðaði frekari skattabreytingar á þessu ári í ræðu sem hann hélt á Morgunverðarfundi Deloitte á Grand Hótel í morgun. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að ríkisstjórnin hafi ekki meira svigrúm til skattahækkana. 12.1.2010 11:58
Nefbrot og rúbluþjófnaður í Eyjum Ein líkamsárás var kærð til lögreglu í Vestmannaeyjum í vikunni sem leið en en hún átti sér staða á veitingastaðnum Lundanum aðfaranótt laugardagsins. Þarna hafði verið ráðist á karlmann á fimmtugsaldri að því er virðist án tilefnis þannig að hann þurfti að leita til læknis. Að sögn lögreglu er talið að sá er fyrir árásinni varð hafi nefbrotnað. Árásarmaðurinn var handtekinn og viðurkenndi hann árásina og var sleppt að lokinni skýrslutöku. 12.1.2010 11:51
Forseti og frú í opinbera heimsókn til Indlands Opinber heimsókn forseta Íslands Ólafs Ragnars Grímssonar til Indlands hófst í morgun, þriðjudaginn 12. janúar, í Mumbai en í heimsókninni fer forseti einnig til Delhi og Bangalore. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að forseti Íslands muni eiga fundi með forseta Indlands frú Patibha Patil og varaforseta landsins Mohammad Hamid Ansari sem og forsætisráðherranum Manmohan Singh, utanríkisráðherranum og fjölda annarra ráðamanna. 12.1.2010 11:22
Baldur krefst þess að kyrrsetning eigna hans verði ógild Kyrrsetning á eignum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, er fordæmalaus, tilefnislaus, óvenjuleg og óvægin. Þetta segir lögmaður hans sem krafðist þess í héraðsdómi Reykjavíkur í dag að kyrrsetningin yrði ógild. 12.1.2010 10:45
Nýr meirihluti myndaður í Borgarbyggð Samkomulag hefur tekist með Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki í Borgarbyggð um myndun nýs meirihluta sem starfar fram að sveitarstjórnarkosningum í vor. Samstarf allra flokka í sveitarfélaginu sprakk daginn fyrir gamlársdag vegna áhersluatriða við gerð fjárhagsáætlunar. Frá þessu er greint á fréttavefnum Skessuhorn.is 12.1.2010 10:38
Dorrit er sextug í dag Dorrit Moussaieff forsetafrú er sextug í dag, 12. janúar. Hún fæddist árið 1950 í Jerúsalem en foreldrar hennar Alisa og Shlomo eru frægir skartgripasalar. Þá segir á heimasíðu forsetaembættisins að faðir hennar sé á meðal fremstu forngripasafnara heims en hann sérhæfir sig í minjum sem tengjast Gamla testamentinu. 12.1.2010 10:29
Sjötugur lögmaður dæmdur í fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt sjötugan karlmann í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir umboðssvik. 12.1.2010 10:24
Varað við kraftaverkalausn Varað er við kraftaverkalausninni MMS (e. Miracle Mineral Solution) sem ætlað er að lækna marga sjúkdóma allt frá alnæmi til berkla. Lausnin getur valdið alvarlegum veikindum og jafnvel dauða. Það eru sóttvarnalæknir, Lyfjastofnun, Matvælastofun, Umhverfisstofnun og Eitrunarmiðstöð Landspítalans sem vara við efninu. 12.1.2010 09:43
2x13 í framboði hjá S og D Þrettán manns gefa kost á sér til forvals Samfylkingarinnar í Kópavogi vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor, en framboðsfrestur rann út í gærkvöldi. 12.1.2010 08:12
14 prósent útgjalda borgarinnar fer í húsnæði Reykjavíkurborg greiddi 8,8 milljarða í húsnæðiskostnað á síðasta ári Húsnæðiskostnaður Reykjavíkurborgar var 8,8 milljarðar og 14 prósent af heildargjöldum borgarinnar árið 2009. Húsnæðiskostnaðurinn var 4,6 milljarðar og 10 prósent af gjöldum árið 2005. Að teknu tilliti til verðbólgu á tímabilinu er raunhækkunin 35 prósent. 12.1.2010 07:00
Síldargöngur kalla til sín fugla Talningar vetrarfugla á Snæfellsnesi sýna óvenju blómlegt fuglalíf líkt og í fyrravetur. Ástæðan er mikil síldargengd í Breiðafirði. 12.1.2010 06:00
Skrifar bók um forræðisdeiluna Lokadagur málflutnings í forræðisdeilu Borghildar Guðmundsdóttur við fyrrverandi eiginmann sinn verður á fimmtudag. 12.1.2010 06:00
Varar við hryllilegum kjörum Ekki er ljóst hvort efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur heimildir til að stöðva veitingu svokallaðra SMS-lána hér á landi. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir ráðuneytið nú kanna hvort hægt sé að stöðva lánveitingarnar. 12.1.2010 06:00
Mikill áhugi á orkuframleiðslu Ríflega 130 manns hafa skráð sig á námskeiðið Orkubóndann sem haldið verður á Egilsstöðum í dag og er þetta metþátttaka í námskeiðinu sem er fyrir áhugafólk um orkuvirkjun. 12.1.2010 06:00
Forstjóri hættir og fer í framboð Hildur Dungal, sem hefur verið í leyfi frá störfum sínum sem forstjóri Útlendingastofnunar, hefur beðist lausnar á því starfi. „Ég baðst lausnar fyrir áramót, mér fannst bara kominn tími á að gera eitthvað nýtt eftir sjö ár hjá stofnuninni,“ segir Hildur sem hefur tilkynnt þátttöku sína í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi sem fram fer í febrúar. 12.1.2010 06:00
Kínaforseti fylgist með Íslandi Kristín Aðalbjörg Árnadóttir sendiherra afhenti í gær Hu Jintao, forseta Kína, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Kína, fjórum dögum eftir komu sína til landsins. Að afhendingu lokinni fundaði hún með forsetanum og fleirum. 12.1.2010 05:00
Óvissa með nýjar virkjanir Breytt lánshæfismat íslenska ríkisins í kjölfar synjunar forseta Íslands á lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave gæti haft áhrif á lánsfjáraðgengi Landsvirkjunar, og setur þar með áform um nýjar virkjanir í uppnám, segir Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. 12.1.2010 05:00
Gæta fórnarlambsins bæði á nóttu og degi Meint fórnarlamb sakborninganna í mansalsmálinu á Suðurnesjum hefur verið í 24 tíma gæslu og notið hámarksverndar hér á landi. Stúlkan, sem er litháísk, tæplega tvítug, er talin í stórhættu af hálfu sakborninga, eða manna sem þeir þekkja hér. 12.1.2010 04:00
Mun minna af gulldeplu í ár Gulldepluveiðin í upphafi árs er mun minni en í fyrra, segir Albert Sveinsson, skipstjóri á Faxa RE, skipi HB Granda. Hann segir að skipum hafi fjölgað frá því í fyrra og svæðið, sem er lítill blettur í Grindavíkurdýpinu, sem veitt er á þoli það illa. Alls eru skipin tíu sem stunda veiðarnar. 12.1.2010 04:00
Íþróttafélög og skógrækt keppa Skógrækt Reykjavíkur í samstarfi við Gámaþjónustuna býður nú Reykvíkingum að sækja til þeirra gömul jólatré fyrir 800 krónur stykkið, og gróðursetja eitt tré í Heiðmörk fyrir hvert tré sem þannig safnast. 12.1.2010 03:15
Tveir til læknis eftir umferðarslys við Hvolsvöll Ökumaður og farþegi voru fluttir til skoðunar hjá lækni eftir að bíll hafnaði utan vegar og hvolfdi vestan við Rauðalæk, í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli, um fimmleytið í dag. Talið er að meiðsl þeirra séu ekki alvarleg. Mikil hálka er í umdæminu að sögn lögreglunnar. 11.1.2010 21:49
Aðstoðuðu konu í Húsavíkurfjalli Björgunarsveitarmenn og lögregla á Húsavík eru á leið upp á Húsavíkurfjall til að aðstoða konu sem slasaðist í fjallinu í kvöld. Hvorki er vitað um tildrög slyssins né hvers eðlis meiðsl konunnar eru. 11.1.2010 20:46
Þrettán sjálfstæðismenn vilja í bæjarstjórn á Akureyri Þrettán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri vegna sveitastjórnakosninganna í vor. Framboðsfrestur rann út klukkan sjö í kvöld. 11.1.2010 22:00