Eldsúr sælgætisvökvi skaðaði fimm ára stúlku 18. nóvember 2009 14:57 „Sour Blast" sælgætisvökvi.
Ungri stúlku voru í dag dæmdar skaðabætur upp á rúmar þrjár milljónir króna, en árið 2003 keypti hún sælgæti sem sköðuðu á henni lungun. Tímamótadómur segir lögfræðingur stúlkunnar. Árið 2003 þegar stúlkan var fimm ára gömul keypti hún „Sour Blast" sælgætisúða í Biðskýlinu í Njarðvík. Um er að ræða eldsúran vökva sem seldur er í úðabrúsa og er eingöngu ætlaður til notkunar í afar smáum skömtum hverju sinni. Vökvans er neytt þannig að honum er sprautað upp í munn, beint úr umbúðunum. Stúlkunni tókst hinsvegar að opna brúsann og drekka vökvann. Við það svelgdist henni á og hluti af vökvanum rann ofan í lungu barnsins. Nú, tæpum sex árum síðar, hefur hún ekki enn náð fullum bata þrátt fyrir umfangsmikla læknismeðferð. Hún hlaut varanlegt mein þannig að miðblað hægra lunga loftist ekki eðlilega og mun ekki nýtast henni til öndunar. Þar að auki er talin aukin hætta á endurteknum sýkingum þarna. Varanlegur miski stúlkunnar er metin 8%, og einnig varanleg örorka hennar. Ívar Pálsson lögmaður stúlkunnar hefur verið með málið síðan árið 2005. Hann segir að um tímamótadóm sé að ræða. Þetta sé í annað sinn sem skaðabætur séu dæmdar á grundvelli laga um skaðsemisábyrgð frá árinu 1991 en í fyrsta sinn sem bætur séu dæmdar vegna annars en ófullnægjandi leiðbeininga. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að nammið sjálft sé hættulegt vegna lágs sýrustigs, umbúðirnar ófullnægjandi og varúðarorð á umbúðum ófullnægjandi. Fyrirtækið CU2 ehf., sem er innflutningsaðili vökvans, auk Biðskýlsins í Njarðvík voru dæmd til að greiða móður stúlkunnar fyrir hennar hönd rúmar 3,4 milljónir króna auk vaxta. Núverandi framkvæmdarstjóri CU2 segist í samtali við fréttastofu hafa keypt fyrirtækið árið 2003. Hann hafi ekki vitað af fyrrgreindu dómsmáli þegar hann keypti fyrirtækið, en muni greiða þær skaðabætur sem um getur í dómnum. Hann segir fyrirtækið aldrei hafa selt umrætt sælgæti frá því hann keypti fyrirtækið, og veit ekki til þess að það sé selt hér á landi.
Mest lesið Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Erlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Innlent Fleiri fréttir „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Sjá meira