Fleiri fréttir

Framúrstefnulegt lokapartí í kvöld

Aðdáendur EVE Online-fjölþátttökutölvuleiksins fylla Laugardalshöllina þessa dagana, en þar stendur nú yfir árleg ráðstefna aðdáenda leiksins. Rúmlega þúsund manns tóku í dag þátt í ýmsum viðburðum, segir Diljá Ámundadóttir, framleiðandi hjá CCP sem hannaði og selur tölvuleikinn.

Telur ekki tilefni til athugasemda

Umboðsmaður Alþingis telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við þá ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, þáverandi sjávarútvegsráðherra, að heimila hvalveiðar.

Kærir Akranesbæ vegna tölvusamnings

Tölvufyrirtækið Omnis hefur kært Akraneskaupstað til kærunefndar útboðsmála fyrir að framlengja samninga um tölvuþjónustu í bænum. Í tvígang hefur verið fallið frá útboði.

Ógildir ekki skipun ráðherra

Umboðsmaður Alþingis segir málsmeðferð iðnaðarráðuneytisins við skipan orkumálastjóra árið 2007 hafa verið ábótavant. Það eigi þó ekki að leiða til ógildingar á skipun ráðherra á orkumálastjóra.

Össur varar við stjórnarkreppu

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra varaði í gær bresk og hollensk stjórnvöld við því að með því að samþykkja ekki fyrirvara Alþingis við Ice­­save geti þau verið að ýta Íslandi út í stjórnarkreppu.

Húsleit á Árborgarsvæðinu

Lögreglan á Selfossi lagði hald á ætluð amfetamín eftir húsleit á Árborgarsvæðinu í dag. Lögreglan á Selfossi hefur ekki yfir fíknahundi að ráða en við húsleitina í dag naut hún aðstoðar fíkniefnahunds af Litla-Hrauni.

Ráðherra ræðir olíuleit á fundi iðnaðarnefndar

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, verður meðal gesta á fundi iðnaðarnefndar Alþingis á mánudagsmorgun. Á fundinum verður rætt um viljayfirlýsingu vegna atvinnuuppbyggingar á Norðurlandi og olíuleit á Drekasvæðinu.

Biðjum Breta og Hollendinga um sanngjarna lausn

Fjármálaráðherra hélt í dag til Istanbúl í Tyrklandi á ársfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem hann mun eiga viðræður við forráðamenn sjóðsins og fjármálaráðherra Bretlands og Hollands um Icesave deiluna. Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin muni ekki springa á þessu máli en treysti sér ekki að svo stöddu að leggja það aftur fyrir Alþingi.

Heyrnalausir kalla á úrbætur

Félag heyrnarlausra hvetur stjórnvöld til að fylgja eftir tillögum nefndar um úrbætur á högum þeirra og ganga frá miskabótum við þá sem urðu fyrir ofbeldi í Heyrnleysingjaskólanum á sínum tíma.

Joly: Ákærur gefnar út á næstu mánuðum

Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, segir að fyrstu ákærurnar vegna efnahagsbrota sem tengjast bankahruninu gætu komið í kringum í næstu áramót. Hún er ánægð með hvernig gangi með rannsókn mála en hún telur þó að fleiri starfsmenn vanti hjá embættinu. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.

Þyngri byrðar

Íslenska kjarnafjölskyldan þyrfti að greiða nærri hálfri milljóna króna meira í tekjuskatta á næsta ári - ef skattahækkun næsta árs legðist flöt á fjölskyldur landsins. Nærri hundrað milljarðar króna fara úr ríkissjóði á næsta ári til að greiða vexti. Barnabætur og vaxtabætur lækka frá þessu ári og tekjuskerðing bóta eykst.

Eiga yfir höfði sér milljarða króna skattgreiðslur

Háar skattgreiðslur vofa yfir flestum stjórnendum og millistjórnendum Glitnis, Kaupþings og annarra fyrirtækja sem voru á markaði, vegna söluréttarsamninga sem gerðir voru í góðærinu. Gert er ráð fyrir að greiðslurnar nemi milljörðum króna í heild, en hæstu gjöldin sem einstaklingur þarf að greiða fara yfir 300 milljónir króna.

Vill slíta samstarfi við AGS ef sjóðurinn stendur sig ekki

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Íslendingar eigi að segja upp samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn geti sjóðurinn ekki staðið við stuðning sinn við Íslendinga. Ríkisstjórnin ætti að íhuga stöðu sína þegar tveir stjórnarþingmenn vilji ekki vera í ríkisstjórn vegna Icesave.

Ömurleg skilaboð stjórnvalda

Ríkisstjórnin sendir ömurleg skilaboð, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann telur aðgerðir hennar gegn stóriðjuáformum ávísun á meiri kreppu. Forsætis- og fjármálaráðherra reyna að gera lítið úr áhrifum boðaðra orkuskatta og þeim töfum sem úrskurður umhverfisráðherra veldur Helguvíkurálveri.

Arnkötludalur loksins opnaður

Langþráður vegur um Arnkötludal, sem Vegagerðin nefnir Tunguheiði, var opnaður umferð klukkan fjögur í dag. Þar með styttist leiðin milli Hólmavíkur og Reykjavíkur um fjörutíu kílómetra og samfellt bundið slitlag er komið á milli Ísafjarðar og höfuðborgarinnar. Formleg vígsluathöfn er áformuð á föstudag eftir viku, þann 9. október.

Ragna vinsæl

Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra, er vinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar, en tæpur helmingur þjóðarinnar er ánægður með hennar störf. Þegar vinsældir ráðherra voru kannaðar í febrúar bar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, höfuð og herðar yfir aðra stjórnmálamenn.

Stuðningur við Framsóknarflokkinn eykst

Fylgi Framsóknarflokksins hefur ekki mælst meira í rúm sex ár samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Capacent Gallup. 18% þjóðarinnar myndu kjósa flokkinn ef kosið yrði núna, en en flokkurinn fékk 14,8% í þingkosningunum. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Lögreglan handtók innbrotsþjófa í nótt

Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í nótt en fullvíst þykir talið að þeir hafi sitthvað misjafnt á samviskunni. Þar á meðal eru tvö innbrot í Kópavogi. Karl á fertugsaldri var sömuleiðis handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglu á innbroti í vesturbæ Reykjavíkur en þýfi fannst í bíl mannsins. Þremenningarnir hafa allir komið við sögu hjá lögreglu áður.

Lögguníðingur í varðhaldi

Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðahaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Algis Rucinskas sem gekk í skrokk á tveimur lögreglumönnum og slasaði þá í fyrra en hann rauf endurkomubann þegar hann kom til landsins fyrr í vikunni. Maðurinn mun sitja í varðhaldi til 14. október.

Flugmenn mótmæla harðlega frumvarpi um rannsókn flugslysa

Stjórn Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) segir að ef Alþingi samþykkir lagafrumvarp samgönguráðherra um rannsókn samgönguslysa geti flugmenn ekki ábyrgst framhald á því góða samstarfi við flugmálayfirvöld varðandi flugslys og flugatvik, sem áunnist hefur undanfarin ár.

Býst við að niðurskurðurinn hafi áhrif á langveik börn

Fjárveiting í bætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna verður skert um tæp 36% og verður 104 milljónir á næsta ári í stað 162 milljóna á þessu ári. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpinu sem fjármálaráðherra kynnti í gær.

Býst við leiðindaveðri í dag

„Já það verður víða leiðindaveður á landinu í dag“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur Stöðvar 2 og Vísis.

Frestun stóriðjuframkvæmda magnar kreppuna

Frestun stórðjuframkvæmda um eitt ár myndi dýpka efnahagskreppuna verulega, og leiða til þess að samdráttur yrði ekki 1,9 prósent á næsta ári heldur nær fjórum prósentum, að mati fjármálaráðuneytis, sem áætlar að slíkt gæti leitt til tekjuminnkunar ríkissjóðs um allt að átta milljarða króna.

Útrásarvíkingum gert að greiða málskostnaðartryggingu

Björgólfur Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson þurfa að reiða fram mörg hundruð þúsund króna tryggingar ætli þeir sér að fá niðurstöðu í mál þeirra gegn Óskari Hrafni Þorvaldssyni fréttastjóra og Gunnari Erni Jónssyni fréttamanni á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis.

Vill samstöðu um kröfu á sanngjarnri málsmeðferð

„Þetta var ágætur fundur. Hann var mjög málefnalegur og þetta voru ágætis skoðanaskipti sem áttu sér stað á þessum fundi," sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, eftir fund í Stjórnarráðinu í dag. Hann, ásamt fulltrúum Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar, funduðu með leiðtogum ríkisstjórnarinnar í dag.

Hannes Hafstein fékk á sig brotsjó

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Hannes Þ. Hafstein frá Suðurnesjum, fékk á sig brotsjó á öðrum tímanum í nótt. Skipið var á leið á landsæfingu SL á sjó sem halda á fyrir utan Grundarfjörð á morgun.

Jöfnu kynjahlutfalli fagnað

Stjórn Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar fagnar því að nú er að nýju jafnt hlutfall kynjanna í ríkisstjórn Íslands. Í yfirlýsingu frá stjórninni er bent á að það hafi tekið íslenska lýðveldið 65 ár að ná því sjálfsagða jafnrétti að hafa ríkisstjórn skipaða jafn mörgum konum og körlum og nú hefur það gerst tvisvar sinnum á sama árinu.

Hvalveiðum mótmælt í London

Fjölmörg nátturuverndarsamtök hafa boðað til friðsamlegra mótmæla fyrir framan íslenska sendiráðið í London í dag. Á meðal samtaka sem þátt taka í mótmælunum má nefna Fund for Animal Welfare, Campaign Whale og Whale and Dolphin Conservation Society.

Bílvelta í Hveradölum - ófærð á Hellisheiði

Bílvelta varð í Hveradölum í gærkvöldi en þar voru aðstæður slæmar vegna veðurs. Ökumaðurinn var einn í bílnum og slasaðist hann ekki en bíllinn mun vera nokkuð skemmdur. Að sögn lögreglu var Hellisheiðin að mestu ófær fyrir fólksbíla í nótt og í morgun en á svæðinu er éljagangur og mikil hálka.

Stútur í árekstri í Mosfellsbæ

Árekstur varð í Mosfellsbæ í gærkvöldi þegar tveir bílar skullu saman. Lögregla kom á vettvang og þá kom í ljós að ökumaður annarar birfreiðarinnar reyndist vera ölvaður. Hann var handtekinn og gisti fangageymslur í nótt. Ökumaður og farþegi í hinum bílnum voru fluttir á slysadeild til skoðunnar en að sögn lögreglu er ekki um alvarleg meiðsl að ræða.

Bílþjófar í Hafnarfirði

Klukkan rúmlega ellefu í gærkvöldi urðu lögreglumenn í Hafnarfirði varir við stolna bifreið sem ekið var um götur bæjarins. Lögregla fór á eftir bílnum og skömmu síðar snarstoppaði bíllinn og ökumaður og farþegi þustu út og hurfu út í myrkrið.

Óttast að ný orkugjöld fæli erlenda fjárfesta í burtu

„Þessum gjöldum er beint gegn þeim fyrirtækjum í landinu sem eru á þeim buxum að byggja upp og skapa störf,“ segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu eiga orku-, umhverfis- og auðlinda­gjöld að skila ríkissjóði 16 milljarða tekjum á árinu 2010.

Samskipti við FME voru góð

Breska fjármálaeftirlitið segir að samskipti sín við íslenska fjármálaeftirlitið hafi verið afar góð í aðdraganda efnahagshrunsins. Þetta kemur fram á viðskiptasíðunni Complinet, en hún hafði birt ummæli Gunnars Andersen, forstjóra FME, um að betri samskipti eftirlitsstofnana hefðu getað komið í veg fyrir ýmis vandamál í kringum Kaupthing Singer & Friedlander.

273 milljóna viðbót til RÚV

Ríkisútvarpið fær 273 milljónir í auknar tekjur á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu, alls 3,2 milljarða króna.

Framlög til FME skorin niður

Fjárframlög til Fjármálaeftirlitsins verða skorin niður um 8,5 prósent á næsta ári. Eftirlitið fær 1.021,5 milljónir króna úr að spila, 94,5 milljónum minna en í ár, verði fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar að lögum.

Þremur sendiráðum lokað

Sendiráð Íslands í Róm og Pretoríu í Suður-Afríku verða lögð niður um áramót og einnig Fastanefnd Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Samtals kostaði rekstur þessara stofnana ríkissjóð um 162 milljónir króna á síðasta ári. Framlög til annarra sendiráða verða hins vegar hækkuð um 6 til 7 prósent vegna gengisáhrifa en stór hluti útgjalda við rekstur þeirra er í erlendri mynt.

Leiðbeiningar ekki fyrirmæli

Bandalag háskólamanna telur að það skorti á að forstöðumenn ríkisstofnana kanni aðrar sparnaðarleiðir en launaskerðingu. Það gerir athugasemdir við túlkun ýmissa ríkisstofnana á leiðbeiningum fjármálaráðuneytisins vegna aðhaldsaðgerða í ríkisfjármálum.

Sjá næstu 50 fréttir