Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hverjum klukkan glymur Tveir útlendingar, sem búsettir eru hér á landi, klifruðu í nótt upp vinnupallana á Hallgrímskirkju í Reykjavík og fóru inn í klukknaportið. Þar fóru þeir að hringja kirkjuklukkunum með því að slá í þær með verkfærum, sem þar eru á vegum verktakans, sem vinnur að viðgerð á turninum. 8.9.2009 07:15
Náttúruminjasafnið í kössum næstu árin Fjárveitingar til Náttúruminjasafns Íslands, sem er eitt höfuðsafna þjóðarinnar, verða skornar niður um allt að fjórðung. Þá er rætt um breytt hlutverk Þjóðmenningarhússins og jafnvel lokun þess, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Forstöðumaður Þjóðmenningarhússins hafnar því. 8.9.2009 06:00
Verðmætt þýfi fannst við húsleit í Reykjavík Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann gríðarlega mikið magn þýfis í gær. Karlmaður á þrítugsaldri, sem er af erlendu bergi brotinn, var handtekinn og verður að líkindum farið fram á gæsluvarðhald yfir honum í framhaldinu. 8.9.2009 06:00
Segir Ísland ekki stefna í greiðsluþrot Ísland stefnir ekki í greiðsluþrot þrátt fyrir að skuldir þjóðarbúsins séu nú orðnar 233 prósent af landsframleiðslu, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. 8.9.2009 05:00
Telur að ráðið hafi farið að lögum Formaður þjóðleikhúsráðs segir að vel geti verið að betra hefði verið að fá einhvern annan en ráðið, til að veita umsagnir um hæfni þeirra sem sóttu um stöðu þjóðleikhússtjóra. 8.9.2009 04:00
Tugir sektaðir á landsleiknum Lögreglan sektaði fimmtíu til sextíu bíleigendur sem höfðu lagt bílum sínum ólöglega meðan þeir horfðu á landsleik milli Íslands og Noregs á Laugardalsvelli síðastliðinn laugardag. 8.9.2009 03:00
Vill skýr svör ríkisins og Alcoa Sveitarstjóri Norðurþings hefur óskað eftir fundi með iðnaðarráðherra til að knýja á um að viljayfirlýsing um byggingu álvers á Bakka við Húsavík verði framlengd. 8.9.2009 02:30
Veitt strax þegar laun lækka Velferðarráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð. Breytingin felur í sér að nú eiga um 200 fjölskyldur með um 300 börn á framfæri rétt á sérstakri fjárhagsaðstoð. Þessi fjárhagsaðstoð er viðbót við þá aðstoð sem Reykjavíkurborg hefur veitt barnafjölskyldum fyrr á árinu. 8.9.2009 02:00
Á endanum skipt í krónur Ljóst er að þeirrar tilhneigingar gætir hjá útflutningsfyrirtækjum að geyma gjaldeyri á gjaldeyrisreikningum í stað þess að skipta honum í krónur, sem hjálpar ekki við að styrkja gengi krónunnar, segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. 8.9.2009 01:00
Erlendir hönnuðir sniðgengu Icelandic Fashion Week Klofningur varð á milli tískuhönnuða sem áttu að koma fram á Icelandic Fashion Week um helgina í Reykjanesbæ á Ljósanótt og skipuleggjanda kvöldsins. Bandaríski tískuhönnuðurinn Daria Shapiro sendi fréttatilkynningu á Vísi vegna klofnings sem varð á milli þrettán hönnuða og skipuleggjanda viðburðarins, Kolbrúnar Aðalsteinsdóttur. 7.9.2009 20:02
Sátu klofvega á hval Tveim mönnum við Steingrímsfjörð tókst að ávinna sér það mikið traust hjá steypireyði á dögunum að hún leyfði þeim að sitja klofvega á bakinu á sér. Þeir telja að hvalurinn hafi beinlínis beðið þá um að losa kaðal sem fastur var um sporðinn. 7.9.2009 18:51
Hvar er Karen? Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Karen Lind Sigurpálsdóttur, 14 ára. Karen Lind er grannvaxin, með meðalsítt, litað dökkt hár og blá augu. Síðast sást til ferða hennar á Selfossi föstudaginn 4 s.l. 7.9.2009 19:43
Fíkniefnasmyglarar réðu burðardýr í gegnum blaðaauglýsingu Catalina Mikue Ncogo réð burðardýr til þess að flytja næstum 400 grömm af kókaíni frá Amsterdam til Íslands í gegnum blaðaauglýsingu. Þetta fullyrti annað burðardýrið við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Vísir hefur áður greint frá málinu, en burðardýrin, sem voru tvær belgískar konur, 26 og 31 árs gamlar voru báðar dæmdar í tíu mánaða fangelsi fyrir smyglið. Þær voru handteknar í Leifsstöð við komuna til landsins þann 12 apríl síðastliðinn. 7.9.2009 16:29
Fossinn Hverfandi sést á ný Fossinn Hverfandi, yfirfallsfoss Kárahnjúkavirkjunar, tók að myndast nú síðdegis þegar Hálslón fylltist og vatn byrjaði að seitla niður yfirfallsrennu lónsins. Í sínum mesta ham verður hann aflmesti foss Evrópu þegar hann fellur meira en tvöhundruð metra niður í Hafrahvammagljúfur. 7.9.2009 18:49
Innbrot og stútur undir stýri Tilkynnt var um innbrot nú í morgun í fyrirtæki úti á Granda en þar hafði nokkru af tölvubúnaði verið stolið að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 7.9.2009 17:30
Þýsku ferðamennirnir heilir á húfi Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru komnar að þýsku ferðamönnunum sem lenti í vandræðum norðan Hofsjökuls fyrr í dag. Reyndist fólkið heilt á húfi eftir að hafa fest bifreið í Tjarnarkvísl, en náði að komast úr honum og á bakka árinnar án þess að blotna mikið. 7.9.2009 16:47
Svanhildur Hólm ráðin í Valhöll Svanhildur Hólm Valsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu. 7.9.2009 15:57
Stiglitz fundar með ráðherrum Fundur bandaríska hagfræðingsins Joseph Stiglitz og nokkurra ráðherra ríkisstjórnarinnar hófst á fjórða tímanum. Fyrr í dag hélt Stiglitz fyrirlestur í Háskóla Íslands þar sem fullt var út af dyrum. 7.9.2009 15:42
Ísland í dag á næturvakt með löggunni Ísland í dag setti sig í spor lögreglumanna á helgarvakt um lipna helgi og verður afraksturinn sýndur í þætti kvöldsins. Þar kynnumst við lífi lögreglumanna en vaktin byrjaði klukkan 11 á laugardagskvöld og stóð til sjö að morgni sunnudags. 7.9.2009 15:24
Séra Gunnar hvorki átti né mátti Gunnar Björnsson sýndi af sér háttsemi sem prestur hvorki á né má sýna af sér gagnvart sóknarbörnum. Þetta kemur fram í niðurstöðu úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar í máli Gunnars sem hefur verið í leyfi frá störfum sem sóknarprestur á Selfossi eftir að hann var kærður fyrir tæpum tveimur árum fyrir kynferðisbrot gagnvart ungum stúlkum sem voru sóknarbörn hans. 7.9.2009 15:13
Þýskir ferðamenn í vandræðum í Tjarnarkvísl Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Norðvesturlandi eru nú á leið til aðstoðar þýsku ferðafólki sem lenti í vandræðum norðan Hofsjökuls fyrir skammri stundu. Að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar var ferðafólkið að þvera Tjarnarkvísl þegar áin tók bílinn. 7.9.2009 15:04
Ísland ekki á dagskrá hjá AGS í næstu viku Fyrsta endurskoðun á áætlun Íslands verður ekki tekin fyrir í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington þann 14. þessa mánaðar þrátt fyrir að svo segi í dagskrá AGS á vefnum. Tómas Brynjólfsson á efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu forsætisráðuneytisins staðfestir þetta í samtali við Vísi. 7.9.2009 14:35
Dæmdur fyrir innbrotstilraun á Litla-Hraun Þrítugur maður var í dag sakfelldur fyrir eignaspjöll en honum var gefið að sök að hafa klippt göt á tveimur stöðum á vírgirðinguna sem umlykur Fangelsið á Litla Hrauni. Atburðurinn átti sér stað í mars en fangaverðir sáu manninn í öryggismyndavélum og var hann handtekinn á staðnum. 7.9.2009 13:45
Þingmenn fengu ekki inni á Fiskistofu Árni Múli Jónasson lögfræðingur hefur verið skipaður fiskistofustjóri, frá 1.september til fimm ára. Frá sama tíma hefur Þórði Ásgeirssyni verið veitt lausn frá störfum að eigin ósk, en hann hefur stýrt Fiskistofu frá stofnun hennar. 7.9.2009 12:41
Landsvirkjun verði rannsökuð 15 ár aftur í tímann Náttúruverndarsamtök Íslands telja brýnt að aðkoma Landsvirkjunar að ákvörðunum sveitarstjórna síðastliðin 10 til 15 ár um virkjanaframkvæmdir verði rannsakaðar í þaula. Samtökin hafa sent Svandísi Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, bréf og vilja að hún hlutist til þannig að skipulagsbreytingar vegna virkjana í neðri Þjórsá verði gerðar ómerkar á grundvelli vanhæfis sveitarstjórnarmanna. 7.9.2009 12:35
Þingeyingar vilja framlengja við Alcoa Sveitarstjórn Norðurþings vill að viljayfirlýsing við Alcoa um álver á Bakka, sem rennur út um mánaðamótin, verði framlengd fram á næsta ár og hefur óskað eftir fundi með ríkisstjórninni um málið í þessari viku. 7.9.2009 12:06
Réttað yfir Fillipseyja-genginu Aðalmeðferð í máli ríkissaksóknara gegn ofbeldisgengi Filippseyinga fer fram í héraðsdómi í dag. Alls eru átta ákærðir en þeir réðust að tveimur lögreglumönnum og veittu þeim áverka. 7.9.2009 12:01
Fótboltakappi vill verða formaður Pétur Georg Markan, knattspyrnumaður úr Val og varaþingmaður Samfylkingarinnar, gefur kost á sér til formennsku í Hallveigu, ungum jafnaðarmönnum í Reykjavík. Pétur vakti athygli í sumar fyrir að skora mark þegar átta sekúndur voru liðnar af leik Vals gegn ÍBV. 7.9.2009 11:14
Tvö þúsund manns vilja reisa minnisvarða um mótmælanda Íslands Rúmlega 2000 manns vilja reisa minnisvarða um Helga Hóseasson sem lést á elliheimilinu Grund í gærmorgun, 89 ára að aldri. Helgi hefur oft verið nefndur mótmælandi Íslands. Einna þekktastur var Helgi fyrir kröftug mótmæli sín gegn ríki og kirkju en hann vildi ógilda skírnarsáttmála sinn. 7.9.2009 10:48
Lögreglan leitar skemmdarvarga á torfæruhjólum Lögreglan á Suðurnesjum leitar að tveimur aðilum sem voru á torfæruhjólum, eða svokölluðum krossurum, í Hamradal á Djúpavatnsleið um klukkan þrjú í gær. 7.9.2009 10:19
Þýðir ekkert fyrir Steingrím að skæla Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, segir að Vinstri græn séu jafn ábyrg fyrir aðildarumsókn að Evrópusambandinu og Samfylkingin. Ekki þýði fyrir Steingrím J. Sigfússon, formann VG, að skæla yfir örlögum sínum. 7.9.2009 09:55
Mældist á 160 kílómetra hraða Tvítugur ökumaður var stöðvaður eftir að hafa mælst á of miklum hraða í grennd við Þorlákshöfn í gær. Hann sagðist ekki hafa tekið eftir stöðvunarmerkjum lögreglu og hélt áfram norður Þrengslaveginn og nam ekki staðar fyrr en skammt var ófarið að Suðurlandsvegi. 7.9.2009 07:14
Eldur í bílskúr í Grindavík Eldur kviknaði í bílskúr í Grindavík laust fyrir miðnætti og kölluðu húsráðendur á slökkvilið. Þeim hafði hins vegar tekist að slökkva eldinn áður en slökkviliðið kom og þurfti það aðeins að reykræsta skúrinn. 7.9.2009 07:08
Stórtækir sígarettuþjófar ófundnir Lögregla leitar enn þjófs eða þjófa sem brutust inn í áfengisverslunina á Selfossi í fyrrinótt og stálu þaðan hundrað kartonum af sígarettum. Þeir virðast hins vegar ekki hafa snert við áfenginu, sem þar er innandyra. 7.9.2009 07:03
Stiglitz fundar með ráðherrum í dag Bandaríski hagfræðingurinn Joseph Stiglitz mun hitta nokkra ráðherra úr ríkisstjórn Íslands seinni part dags í dag til að ræða um efnahagsástandið. 7.9.2009 06:30
Ábendingar um svik færri en áður „Ábendingunum hefur aðeins fækkað frá því sem var þegar átakið var fyrst kynnt að ráði. Þá fengum við tæplega hundrað ábendingar, enda var auglýsingaherferð sett af stað,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. Milli sextíu og sjötíu ábendingar um atvinnuleysisbótasvik bárust stofnuninni í ágúst. Síðan í maí hefur fólki gefist tækifæri til að leggja inn nafnlausar ábendingar til Vinnumálastofnunar og Ríkisskattstjóra um svik á vinnumarkaði. 7.9.2009 06:00
Leigumarkaður í jafnvægi og húsaleiga fer hækkandi „Verðið hefur staðið í stað og það er heldur að maður heyri það hjá leigjendum að verðið sé að fara upp aftur. En ég get þó ekki sagt að ég sjái það marktækt á tölum,“ segir Hildur Ketilsdóttir hjá Leigulistanum. Hildur segir það sína tilfinningu að meira jafnvægi sé á leigumarkaði en til dæmis var á vormánuðum. „Það var mjög mikið framboð í vor, við vorum með allt að þúsund íbúðir á skrá en höfum undanfarin ár verið með 200 íbúðir á skrá að jafnaði.“ 7.9.2009 05:30
Sameing háskólanna rædd Menntamálaráðherra fundar í dag með stjórnendum háskólanna um sameiningu ákveðinnar starfsemi skólanna. Er þar sérstaklega horft til stoðþjónustunnar, að innritun verði sameiginleg. 7.9.2009 05:30
Telur samning um HS gegn anda laga Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur sent bæjarstjóra og bæjarstjórn Reykjanesbæjar bréf þar sem hún lýsir þeirri skoðun sinni að samningur bæjarfélagsins við HS orku, um afnot af orkuauðlindum í eigu bæjarins, gangi lengra en gert er ráð fyrir í lögum um afnotarétt á jarðhita og vatnsréttindum. Ráðherra telur að leigutíminn, 65 ár, sé of langur. 7.9.2009 05:00
Barnahjálpin í Keníu í miklum kröggum Lágt gengi íslensku krónunnar hefur haft afar slæm áhrif á hjálparstarf ABC barnahjálpar í Keníu. Að sögn Guðrúnar Margrétar Pálsdóttur, formanns samtakanna, er nauðsynlegt að fá aukið fjármagn ef samtökin eiga að geta sinnt áfram öllum þeim börnum sem nú dvelja á barnaheimilinu í Keníu, en samtökin styðja um sex hundruð börn og þar af eru eitt hundrað og sextíu börn í heimavist. 7.9.2009 05:00
Segir kæru FME aðför gegn skynsemi Fyrsta sakamálið sem sérstakur saksóknari, Ólafur Hauksson, tók til rannsóknar, var meint brot blaðamannsins Kristins Hrafnssonar á bankaleynd. Kristinn birti upplýsingar um lánveitingar Kaupþings til Róberts Tchenguiz og forsvarsmenn Fjármálaeftirlitsins (FME) telja að með því hafi hann rofið bankaleynd. 7.9.2009 04:30
Óvænt vitneskja í máli Bretanna Mál skilanefndar Kaupþings gegn breska fjármálaráðuneytinu var flutt munnlega fyrir breskum áfrýjunardómstól hinn 1. júlí. 7.9.2009 04:00
Skoða stofnun orkusamlaga Til skoðunar er í iðnaðarráðuneytinu að stofna sérstök félög um orkuframkvæmdir og fá lífeyrissjóði og erlenda fjárfesta að borðinu. Iðnaðarráðherra segir að mjög mikilvægt sé að hefja framkvæmdir til að geta selt orku, vöntun sé á henni í dag. 7.9.2009 03:45
Átján ára tekinn á 180 „Hann er mjög heppinn vegna þess að hann var stöðvaður áður en hann olli sjálfum sér og öðrum skaða,“ segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. 7.9.2009 03:00
Loftgæði bætt í höfuðborginni Stefnt er að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í Reykjavík um 35 prósent til ársins 2020 og um 73 prósent til ársins 2050, samkvæmt loftslags- og loftgæðastefnu Reykjavíkurborgar. 7.9.2009 03:00