Innlent

Stórtækir sígarettuþjófar ófundnir

Lögregla leitar enn þjófs eða þjófa sem brutust inn í áfengisverslunina á Selfossi í fyrrinótt og stálu þaðan hundrað kartonum af sígarettum. Þeir virðast hins vegar ekki hafa snert við áfenginu, sem þar er innandyra. Enginn viðist hafa orðið var mannaferða við verslunina um nóttina og hefur lögregla ekki enn vísbendingar um hverjir voru þarna á ferð. Smásöluandvirði tóbaksins er um 420 þúsund krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×