Fleiri fréttir

Fékk áfall yfir dýrum ritföngum

Kona sem keypti sér ritföng í Eymundsson á dögunum fékk áfall þegar hún kom að kassanum og heyrði hvað vörurnar kostuðu.Konan missti nýlega vinnuna og í staðinn fyrir að fara á bætur, ákvað hún að fara í nám.

Nýr fyrirvari til að tryggja samþykki Breta og Hollendinga

Tryggja á að Hollendingar og Bretar fallist á fyrirvara við ríkisábyrgð á Icesave reikiningum Landsbankans, með nýjum fyrirvara við Icesave frumvarpið. Fjárlaganefnd vinnur að þessu á fundi sem nú stendur. Nefndarmenn reikna með því að málið verði afgreitt frá nefndinni í dag.

Mótmælendum sleppt úr haldi

Lögregla hefur sleppt úr haldi mótmælendum í samtökunum Saving Iceland sem hlekkjuðu sig við vinnuvélar á framkvæmdasvæði álversins í Helguvík.

Kate Winslet í mynd Friðriks Þórs

Breska stórleikkonan Kate Winslet mun taka að sér hlutverk móður Kela í heimildarmyndinni Sólskinsdrengnum sem kemur út með ensku tali í september næstkomandi.

Tólf flugvélar á vegum franska hersins lentar í Keflavík

Tólf flugvélar á vegum franska hersins lentu á Keflavíkurflugvelli fyrir stundu. Um er að ræða tvær flutningavélar og tíu orustuþotur. Vélarnar eru að ferja hermenn frá Evrópu til Brasilíu en ekki liggur fyrir af hvaða tilefni.

Úthluta 50 milljónum fyrir íslenskukennslu

Menntamálaráðuneytið hefur úthlutað 50 milljónum króna vegna námskeiða í íslensku fyrir útendinga síðari hluta árs 2009. Styrkirnir eru fyrir námskeið sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar.

Hannes Hólmsteinn: Steingrímur á að biðjast afsökunar

„Ef einhverjir eiga að biðjast afsökunar eru það þeir sem gerðu Icesave samningana,“ segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, spurður hvort að Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Landsbankans, eigi að biðja íslensku þjóðina afsökunar vegna þeirra byrðar sem á hana fellur vegna Icesave reikninga bankans. Að hans mati klúðraði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, Icesave málinu.

Skólastjórar meðvitaðir um erfitt ástand

Eflaust verður skólafólk vart við það að það eru erfiðleikar hjá sumum fjölskyldum, segir Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson, formaður Skólastjórafélags Íslands og skólastjóri Foldaskóla.

Utanferðum fækkar mikið

Aðeins tuttugu og þrjú Þúsund Íslendingar flugu til útlanda í júlímánuði síðastliðnum samanborið við 44 þúsund í fyrra. Þetta er því næstum helmings fækkun frá þvi í fyrra.

Fellibylurinn Bill: Sjö ára stúlka drukknaði

Sjö ára gömul stúlka lét lífið í Maine í Bandaríkjunum í gær þegar hópur fólks hafði komið saman á ströndinni til þess að fylgjast með ölduganginum sem fellibylurinn Bill framkallar á leið sinni upp með austurströnd Bandaríkjanna.

Konan sem stakk aðra var á reynslulausn

Konan, sem stakk aðra konu með eggvopni við Njálsgötu í Reykjavík á laugardagsmorgun, var á reynslulausn úr fangelsi, vegna fyrri afbrota, og er nú aftur komin í fangelsi til afplánunar síðasta dóms.

Slapp við að vera hýdd fyrir bjórdrykkju

Yfirvöld í Malasíu hafa óvænt ákveðið að láta lausa úr haldi fyrirsætuna Kartiku Shukarno sem á dögunum var dæmd til að hljóta sex vandarhögg fyrir að fá sér bjórglas á almannafæri.

Hraðakstur í Hörgárdal

Átta ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í Hörgárdal við Akureyri í gærkvöldi. Sá sem hraðast ók var á tæplega 130 kílómetra hraða og fær drjúga sekt.

Fjárlaganefnd fundar um Icesave

Fjárlaganefnd Alþingis kemur saman klukkan tíu til að ræða ríkisábyrgð vegna Icesave samninganna. Nefndin er með málið til umfjöllunar eftir að breytingartillögur við frumvarpið, eða fyrirvarar, voru samþykktar eftir aðra umræðu í þinginu á fimmtudag í síðustu viku.

Bíræfinn þjófur í Hveragerði

Töluverðum verðmætum var stolið úr íbúðarhúsi í Hveragerði í nótt og er þjófurinn ófundinn. Fyrst braust hann inn í gærkvöldi og fór þjófavarnakerfi í gang, með tilheyrandi viðbrögðum öryggisfyrirtækisins.

Hlekkjuðu sig aftur við grindverk og vinnuvélar - sex handteknir

12 manna hópur úr samtökunum Saving Iceland hlekkjaði sig við grindverk og vinnuvélar á athafnasvæði fyrirhugaðs álvers við Helguvík í Reykjanesbæ og reyndi að hefta för starfsmanna inn á svæðið. Sex voru handteknir af lögreglu í morgun.

Bankar mótmæla réttarbót

Bankarnir hafa eindregið lagst gegn frumvarpi um bætta stöðu skuldara, að sögn Lilju Móses­dóttir, formanns félagsmálanefndar. Hún er fyrsti flutnings­maður frumvarps sem hún segir hafa þann tilgang að leysa fólk úr skuldafangelsi.

Hringdi barnið inn veikt vegna fátæktar

Foreldri sautján ára drengs, sem hefja átti nám í menntaskóla, hringdi hann inn veikan fyrsta daginn. Ekki voru til peningar til að kaupa námsbækur og skólavörur handa honum.

Leyfisveiting tekin fyrir á miðvikudag

Menntaráð Reykjavíkur tekur umsókn Menntaskólans um starfsleyfi til umsagnar á miðvikudaginn, að sögn Kjartans Magnússonar, formanns menntaráðs. Eftir að ráðið hefur gefið umsögn fer umsóknin til menntamálaráðuneytisins, sem hefur endanlegt úrskurðarvald um hvort skólinn fái starfsleyfi eða ekki. Flestir grunnskólar Reykjavíkur hefja kennslu í dag.

Leituðu til ráðherra til að sækja bráðkvaddan mann

Björgunarsveitarmenn á Húsavík fullyrða að Landhelgisgæslan hafi hafnað beiðni þeirra um að þyrla sækti lík manns sem lést í fjallgöngu á fjallið Herðubreið. Svæðisstjóri björgunarsveitarinnar leitaði til dómsmálaráðherra og var þyrla frá Norðurflugi leigð til að ná í lík mannsins. Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir að aldrei hafi annað staðið til en að sækja líkið en ódýrari kostur hafi verið valinn en að senda stóra björgunarþyrlu.

Stefnan sett á að kljúfa hljóðmúrinn

Hátt í hundrað manns fylgdust með þegar öflugustu eldflaug sem smíðuð hefur verið af Íslendingum var skotið á loft frá Höskuldarvöllum, nálægt fjallinu Keili, um klukkan hálfþrjú í gær. Eldflaugin, sem vó átta kíló, náði þúsund kílómetra hraða og 2.700 metra hæð á 25 sekúndum. Fallhlíf var í flauginni svo hún gæti svifið til jarðar.

Ernir farnir að verpa á Suðurlandi

Arnarungar sem komust á legg í sumar voru 36 og hafa þeir ekki verið fleiri í manna minnum. Íslenski hafarnarstofninn telur nú um 65 pör og urpu 45 þeirra í vor. Varp misfórst hjá 19, þar á meðal hjá parinu sem fylgst var með á vefmyndavél Arnarsetursins.

Kröfuhafar beita málshöfðun sem tæki í samningaviðræðum

Kröfuhafar bankanna beita málshöfðun sem tæki í viðræðum um endurskipulagningu bankanna, segir prófessor í hagfræði. Haldi þeir málunum til streitu, eftir að þeir eru orðnir hluthafar að bönkunum, gætu þeir skaðað sína eigin hagsmuni.

Fall krónunnar: Flugeldasýningin styttri en í fyrra

Um eitt hundrað þúsund manns fylgdust með flugeldasýningunni í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Sýningin var þó styttri en í fyrra og kenna forsvarsmenn hátíðarinnar falli krónunnar um, því sömu krónutölu hafi verið varið til flugeldakaupa.

Hafa flutt út 80 tonn af sælgæti frá áramótum

Útflutningur á íslensku sælgæti hefur tekið kipp í efnahagskreppunni og er sælgætisgerðin Freyja komin í útrás. Fyrirtækið hefur sent út um 80 tonn af súkkulaði og öðru góðgæti frá áramótum.

Fólk greiði ekki meira af lánum en upphaflega greiðsluáætlun

Hæstaréttarlögmaður hvetur fólk til þess að greiða eingöngu af lánum í samræmi við upphaflega greiðsluáætlun og ekki krónu meira. Hann segir efnhagshrunið og óðaverðbólgu hafa breytt öllum forsendum lána og ákvæði í lögum verndi fólk fyrir því.

Lögregla rannsakar vettvang skemmdarverks

Tæknideild lögreglu heimsótti hús Sigurðar Einarssonar, fyrrum bankastjóra Kaupþings, í dag til að rannsaka skemmdarverk sem unnin voru á húsi hans í nótt.

Sáttanefnd Borgarahreyfingarinnar mistókst

Atburðarás reyndist of hröð og flókin til að sáttanefnd Borgarahreyfingarinnar tækist að ná árangri og fá alla aðila til að ná sáttum, að því er kemur fram í tilkynningu sáttanefndarinnar til félagsmanna Borgarahreyfingarinnar.

Týndi símanum og sogaðist inn í sakamál

„Ég týndi símanum mínum í bænum. Svo fór fólk að fá einhver skringileg SMS úr símanum mínum. Á sunnudagsnóttina var síðan farið að áreita einhverja hátt setta menn," segir Gyða Björg Sigurðardóttir, tvítugur Reykvíkingur.

Hátt í hundrað áhorfendur fylgdust með eldflaugarskoti

Öflugustu eldflaug, sem Íslendingar hafa smíðað til þessa, var skotið á loft frá Höskuldarvöllum nálægt fjallinu Keili laust fyrir klukkan hálfþrjú. Eldflaugarskotið heppnaðist vel, þrátt fyrir töluverðan vind, en hann varð til þess að flaugin fór ekki þráðbeint upp í loftið heldur sveigði hún talsvert undan vindinum.

Skilaði sér ekki eftir göngu og reyndist snúinn á fæti

Björgunarsveitinar Brimrún frá Eskifirði og Ársól frá Reyðarfirði voru kallaðar út klukkan 00:40 í nótt vegna manns sem hafði ekki skilað sér eftir göngu á Hólmatind. Ættingjar fóru að óttast um manninn þegar líða fór að miðnætti og báðu um aðstoð.

Nokkrir hlauparar fengu Glitnismedalíur

Einhverjir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka fengu verðlaunapeninga merkta þrotabúi Glitnis, en ekki styrktaraðila hlaupsins, eftir hlaupin í gær.

Hús Sigurðar Einarssonar lakkað í nótt

Skemmdarvargar sprautuðu hús Sigurðar Einarssonar, fyrrum bankastjóra Kaupþings, með rauðu lakki í nótt. Tilkynning um atvikið barst fjölmiðlum klukkan rúmlega tíu í morgun frá sömu aðilum og tilkynntu um skemmdarverk á bíl Björgólfs Thors í nótt.

Geta ekki mætt í skóla vegna fátæktar foreldra

„Það sem ýtti mér af stað er að foreldrar hafa verið að hringja í mig út af börnum sem mættu ekki í skólann fyrsta daginn, því þau hafa ekki getað keypt bækur," segir Þórhallur Heimisson, prestur við Hafnarfjarðarkirkju, í samtali við fréttastofu.

Yfir 100 þúsund manns í bænum og allt fór vel fram

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fór allt mjög vel fram í miðborginni í gær miðað við mannfjöldann sem þar var. Lögregla telur að um 100 til 110 þúsund manns hafi verið í miðborginni þegar mest var í kringum flugeldasýningu Menningarnætur í gær.

Eldflaugarskot á Reykjanesskaga í dag

Öflugustu eldflaug, sem Íslendingar hafa smíðað til þessa, verður skotið á loft á Reykjanesskaga eftir hádegi í dag. Eldflaugafélagið Amateur Icelandic Rocketry stendur fyrir eldflaugarskotinu, sem verður klukkan eitt á Höskuldarvöllum nálægt fjallinu Keili.

Sjá næstu 50 fréttir