Innlent

ESB aðildarviðræður útheimta fjörutíu ársverk þýðenda

Utanríkisráðuneytið.
Utanríkisráðuneytið. Mynd/Valli

Utanríkisráðuneytið hefur auglýst eftir tíu þýðendum vegna þess að þýðingarmiðstöð ráðuneytisins hefur ekki annað verkefnum sínum. Fjölga þurfi þýðendum til að vinna upp uppsafnaðan hala.

Þýðingarmiðstöðin hefur séð um þýðingar vegna EES samningsins og þar starfa 27 manns. Ekki hafa verið gerðar ráðstafanir vegna væntanlegra aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Ætla má að hátt í fjörutíu ársverk þýðenda fylgi þeim viðræðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×