Fleiri fréttir

Erfitt að innheimta arð eigenda Sjóvár

Fjármálaráðherra telur að það verði tæknilega erfitt að innheimta til baka þann arð sem eigendur Sjóvár greiddu sjálfum sér á undanförnum árum. Ríkið lagði í byrjun mánaðarins 16 milljarða króna í félagið til að bjarga því frá þroti.

Kvikan suðvestur af Þórsmörk

Jarðskjálftavirknin í Eyjafjallajökli, sem rakin er til glóandi kviku í iðrum jarðar, er aðeins um fimm kílómetra suðvestur af Básum, einu helsta gistisvæði ferðamanna í Þórsmörk. Þar varð í fyrrakvöld skjálfti sem mældist tæp þrjú stig.

Plastbátur strandaði í Arnarfirði

Lítill plastbátur var með þrjá Þjóðverja um borð strandaði í innanverðum Arnarfirði síðdegis í gær. Björgunarsveitir frá Bíldudal og Tálknafirði voru kallaðar út en báturinn hafði strandað á Langanesi. Þjóðverjarnir höfðu verið á sjóstangveiðum og amaði ekkert að þeim. Skipverjunum var bjargað um borð í annan bát og þeirra bátur tekinn í tog.

Fjórir stútar í Borgarnesi

Fjórir voru teknir vegna gruns um ölvun við akstur í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í nótt. Að öðru leyti var nóttin nokkuð róleg í umdæminu.

Ekið á stúlku í Herjólfsdal

Ekið var á stúlku í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum seint í gærkvöld með þeim afleiðingum að hún handleggsbrotnaði.

Varð undir lyftara í höfninni í Vestmannaeyjum

Lyftari valt í höfninni í Vestmannaeyjum með þeim afleiðingum að rist ökumannsins varð undir lyftarahúsinu á níunda tímanum í gærkvöldi. Maðurinn var fluttur á sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum þar sem hann gekkst undir aðgerð.

Sjö gistu fangageymslur í Reykjavík

Sjö gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Nokkuð margir lögðu leið sína í miðbæinn að sögn lögreglu og var nokkuð um ölvun. Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur í nótt. Þeir sem gista fangageymslur eru þar ýmist vegna ölvunar eða slagsmála en nokkuð var um smá pústra í miðbænum í nótt.

Áfall fyrir áform stjórnvalda um endurreisn

Synjun Evrópska fjárfestingarbankans á láni til virkjanaframkvæmda Orkuveitu Reykjavíkur er áfall fyrir áform stjórnvalda um endurreisn efnahagslífsins, að mati stjórnarformanns Orkuveitunnar. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir hins vegar að Orkuveitan megi ekki láta máta sig; - hún verði að leita lána annarsstaðar.

Skildu árabát eftir við Örfirisey

Mannlaus árabátur sást á reki við Örfirisey í dag og var Landhelgisgæsla beðin um að svipast um eftir skipreka mönnum úr lofti. Lögregla fékk svo símtal um fimmleytið frá manni sem sá til tveggja manna koma að landi við olíutankana á Örfirisey og skilja bátinn eftir.

Himnar loga og hús nötra á Þingvöllum

Arndísi Guðnadóttur og fjölskyldu brá heldur betur í brún þegar sumarbústaður sem þau dvelja í fór að nötra eftir að þrumur og eldingar skullu á. Arndís hélt fyrst að eldingu hefði lostið niður í bústaðinn en svo var ekki. Himnarnir loga hreinlega á Þingvöllum að sögn Arndísar og gengur á með miklum skúrum.

Lúxushótel á hálendinu gengur framar vonum

Rekstur eina lúxushótelsins á hálendi Íslands hefur gengið framar vonum. Hótelhaldarinn, Friðrik Pálsson, segir gríðarleg tækifæri í ferðaþjónustu á hálendinu.

Svelgur í Sigöldu og öfugur foss

Risastór svelgur og öfugur foss sjást nú við Sigöldu en þar stendur yfir fyrsta meiriháttar viðhald á virkjuninni frá því hún var gangsett fyrir þrjátíu og tveimur árum. Sigölduvirkjun hefur reynst hin mesta gullnáma á starfstíma sínum, hún útrýmdi olíukyndingunni á sínum tíma og hefur síðan skilað um áttatíu milljörðum króna í tekjur fyrir þjóðarbúið.

Segja umræðu um Vaðlaheiðargöng ómálefnalega

Stjórn Eyþings segir að umræða um Vaðlaheiðargöng hafi verið ómálaefnaleg og hvetur samgönguráðherra til að standa við þau áform að ráðast í gerð ganga á þessum stað. Þetta kemur fram í samþykkt stjórnarinnar.

Kvikustreymi í Eyjafjallajökli gæti endað með eldgosi

Kvikustreymi sem hafið er undir Eyjafjallajökli gæti endað með eldgosi, að mati Páls Einarssonar, prófessors við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, en telur þó líklegast að eldvirknin endi sem kvikuinnskot undir yfirborði eldstöðvarinnar.

Níunda svínaflensutilfellið staðfest á Íslandi

Níunda tilfellið af svínainflúensu hefur verið staðfest hér á landi en um er að ræða karlmann á þrítugsaldri. Maðurinn tengist ekki þeim einstaklingum sem greinst hafa með svínainflúensu hér á landi og þá segir ennfremur á heimasíðu Landlæknis að maðurinn hafi ekki ferðast erlendis nýverið. Maðurinn er á batavegi.

Stálu tómum bjórkútum

Brotist var inn í félagsheimili Karlakórs Akureyrar um klukkan þrjú í nótt og höfðu innbrotsþjófarnir á brott með sér áfengi og nokkra tóma bjórkúta sem þeir væntanlega hafa talið að væru fullir. Lögreglan handtók mennina skömmu síðar en um var að ræða tvo tvítuga karlmenn. Töluverð ölvun var í miðbæ Akureyrar í nótt og mikið um pústra en alls fengu fimm að gista fangageymslur að sögn lögreglu.

Margir í miðbænum í nótt

Margir lögðu leið sína í miðbæ Reykjavíkur í nótt en þrátt fyrir það gekk nóttin stóráfallalaust fyrir sig. Nokkuð var um ölvun og eru maður og kona í haldi lögreglu vegna þess en þeim verður sleppt þegar þau hafa sofið úr sér.

Grillað í öllum görðum í kvöld

Stokkseyringar halda bryggjuhátíð í sjötta sinn nú um helgina. Undirtitill hátíðarinnar hefur alltaf verið „brú til brottfluttra“ og hafa brottfluttir alltaf sótt hátíðina vel.

Telja fórnarlambið aldrei munu ná sér

Ungur maður, Jón Kristinn Ásgeirsson, hefur verið ákærður fyrir að valda öðrum manni ævarandi örkumlum með því að aka á hann á Hummer-bifreið í janúar. Jón Kristinn er jafnframt ákærður, ásamt öðrum, fyrir að kveikja í húsi við Kleppsveg í byrjun júní og koma manni sem þar var innandyra í bráða lífshættu.

Greina áhrif aðildar

Samtök Iðnaðarins hafa hafið ítarlega greiningu á áhrifum aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Þetta kemur fram í fréttabréfi samtaka Iðnaðarins, Íslenskur iðnaður.

Rödd skynseminnar sigraði

Andrés Pétursson, formaður Evrópusamtakanna, segir rödd skynseminnar hafa sigrað á Alþingi í fyrradag.

Ekki stemning fyrir skynsemi

„Það er lítil stemning fyrir skynseminni í íslensku samfélagi um þessar mundir,“ segir Borgar Þór Einarsson, ritstjóri Lögmannablaðsins í ritstjóragrein nýjasta heftisins. Greinin ber heitið „Engin stemning fyrir skynseminni“.

Eru góðkunnar lögreglunni

Tvær íslenskar stúlkur, 18 og 19 ára gamlar, voru handteknar í Northampton í Englandi á fimmtudag eftir fjögurra daga alþjóðaleit. Faðir annarrar þeirra hafði hringt í lögregluna á Englandi og sagt að þær væru líklega á þessu svæði.

Réðust á öryggis­­vörð

Tveir ungir menn réðust á öryggisvörð í verslun 10-11 í Engihjalla í fyrrinótt. Hann hafði staðið piltana að þjófnaði í búðinni og ætlaði að hindra för þeirra. Þeir brugðust við með því að slá hann í jörðina og sparka í höfuð hans.

Ná til kosninga 2006 og 2007

Birta á fjárframlög til stjórnmálaflokka lengra aftur í tímann en lög gera ráð fyrir í dag. Þetta var samþykkt af öllum formönnum stjórnmálaflokkanna.

Efnahagsbrotadeild verði færð frá RLS

Skynsamlegt er að sameina Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og embætti fjögurra sérstakra saksóknara, að mati Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra. „Efnahagsbrotadeildin yrði við það færð frá ríkislögreglustjóra þar sem embætti sérstaks saksóknara er sjálfstætt og ekki hægt að hafa það undir ríkislögreglustjóra." Gert er ráð fyrir því í lögum að ráðherra geti lagt til að sérstakur saksóknari verði sameinaður öðrum lögregluembættum.

Hundur getur lesið af blaði

Dýraþjálfarinn Lyssa Rosenberg hefur kennt terríer-hundinum sínum Willow að hlýða skriflegum tilskipunum. Til dæmis teygir Willow loppu í loftið þegar hún sér orðið „veifaðu“. Einnig stendur hún upp þegar hún sér það skrifað.

Bændur smala Heimaklett

„Þetta er eldgömul hefð,“ segir Sigurmundur Einarsson, fjárbóndi með meiru í Vestmannaeyjum, sem ásamt öðrum fjáreigendum smalaði í fyrrakvöld útigöngufé í Heimakletti.

Var á vegg í Vilnius

stjórnmál Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingar, flutti ræðu á þingi á fimmtudag í umræðu um ESB-ályktun ríkisstjórnarinnar sem þykir óneitanlega mjög lík kafla úr bók Johns C. Maxwell um leiðtogahæfni, The Difference Maker frá 2006. Þessi texti var einnig notaður í Adidas-auglýsingaherferð árið 2006.

Hefði kosið eins og varamaðurinn

Við upphaf hins sögulega þingfundar á fimmtudag þegar greidd voru atkvæði um aðildarumsókn að Evrópusambandinu upplýsti þingforseti að Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, hefði tilkynnt forföll og kallað til varamann í sinn stað.

Ein í flokki 60 ára kvenna

Heilsa Þrettánda Laugavegshlaupið er haldið í dag og leggja 342 keppendur af stað hina 55 km löngu leið milli Landmannalauga og Þórsmerkur.

Endurskipulagning tefst

„Það er verið að takast á um ákveðna liði og þetta mun dragast um einhverja daga allavega,“ segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans. Hann segir óljóst hvenær endurfjármögnunarferli Landsbankans muni ljúka og það muni væntanlega dragast eitthvað.

Útsölur draga úr verðbólgu

Í spá IFS greiningar segir að Seðlabanki Íslands muni ekki ná verðbólgumarkmiði sínu fyrr en á öðrum ársfjórðungi næsta árs.

Ekkert sumarfrí fyrr en Icesave verður klárað

Forsætisráðherra stendur fastur á því að Alþingi fari ekki í sumarfrí fyrr en búið sé að afgreiða Icesave samkomulagið. Engin formleg samskipti hafa verið á milli Íslands annars vegar og Breta og Hollendinga hins vegar um mögulega fyrirvara Alþingis á samkomulaginu.

Ómanneskjulegt Dyflinarákvæði endurskoðað

Hælisleitendur verða ekki sendir rakleitt til þeirra aðildarríkis sem ber ábyrgð á hælisumsókn, samanber Dyflinnarreglugerð, heldur fái þeir viðbótavernd sé ástæða til en þetta er ein af tillögum sem nefnd á verum dómsmálaráðherra komst að.

Handtakan í Northampton: Grunur um alvarlegt innbrot

Íslensku stúlkurnar tvær sem voru handteknar í Northampton í Englandi á miðvikudaginn eru grunaðar um alvarlegt innbrot, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þær voru færðar fyrir rétt í London í dag.

Ísland gæti stokkið framfyrir önnur ríki í ESB

Stórnmálaskýrandi Associated Press fréttastofunnar í Brussel hefur eftir stjórnarerindreka þar í borg að Ísland kunni að stökkva framfyrir Króatíu sem átti að verða næsta aðildarríki Evrópusambandsins.

Pósthússtræti lokað til 10. ágúst

Ákveðið var í dag að loka Pósthússtræti alla daga vikunnar fram til 10. ágúst til að veita gangandi vegfarendum betra rými í miðborginni. Pósthússtræti hefur verið lokað vegna blíðviðris í 23 daga í sumar en nýbreytnin felst í því að loka götunni óháð veðri.

Brúðkaupum fækkar í kreppunni

Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur í Grafarvogi, segir að brúðkaupum hafi fækkað þónokkuð eftir að kreppan skall á. Hann segist hafa rætt við marga kollega sína sem segja sömu sögu.

Frumvarp um sérstakan saksóknara fyrir þingið eftir helgi

Allsherjarnefnd hefur lokið umfjöllun um breytingar á lögum um sérstakan saksóknara. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður allsherjarnefndar, segist vonast til þess að hún geti mælt fyrir frumvarpinu á næsta þingfundi.

Ágúst áfram rektor Landbúnaðarháskólans

Tvær umsóknir bárust um embætti rektors Landbúnaðarháskóla Íslands. Menntamálaráðherra hefur að fenginni umsögn háskólaráðs skipað Ágúst Sigurðsson, núverandi rektor, til áframhaldandi starfa fyrir Landbúnaðarháskólann.

Sjá næstu 50 fréttir