Fleiri
Meirihluti vill álver í Helguvík 11.4.2009 08:00 Siðfræðingur hættir í SUS Stefán Einar Stefánsson viðskiptasiðfræðingur hefur sagt sig úr stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna, SUS. 11.4.2009 06:30 Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir stúlku Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Evu Lind Guðjónsdóttur, f. 12 nóvember 1994 en hennar er saknað síðan á fimmtudagsmorguninn, 9. apríl síðastliðinn. 10.4.2009 21:48 Bjarni og Þorgerður funda með Guðlaugi Bjarni Benediktsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson funda nú um stöðu flokksins í skugga frétta um að flokkurinn hafi tekið við 30 milljónum króna frá FL Group og 25 milljónum króna frá Landsbankanum í árslok 2006. Komið hefur fram að mikil ókyrrð hefur verið í flokknum frá því að fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá málinu á þriðjudag og er hávær krafa um að upplýst verði um framvindu málsins. 10.4.2009 19:04 Segja annarleg sjónarmið að baki umræðu um ábyrgð Guðlaugs Formenn tólf sjálfstæðisfélaga í Reykjavík segj að það hljóti að liggja annarleg sjónarmið að baki því að draga nafn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns inn í umræðu um styrki til Sjálfstæðisflokksins. 10.4.2009 18:47 Sakaði þingmann Sjálfstæðisflokksins um að aka á sig Þingflokksfundi sjálfstæðismanna sem átti að halda í Valhöll klukkan þrjú var frestað þar til síðar í dag. Margir þingmenn voru mættir til fundarins þegar ákveðið var að bíða með fundarhöldin. Þar á meðal var Ragnheiður Ríkharðsdóttir en hún fékk óblíðar móttökur mótmælenda sem hindraði 10.4.2009 15:41 Struku frá Stuðlum Fjórar stúlkur struku frá Stuðlum, meðferðarheimili ríkisins fyrir unglinga við Fossaleyni, eftir hádegið í dag. Að sögn lögreglunnar á hofuðborgarsvæðinu eru stúlkurnar komnar í leitirnar og munu væntanlega fara aftur upp á Stuðla. Lögreglan segir að stúlkurnar hafi ekki verið komnar langt á veg þegar þær fundust aftur. 10.4.2009 15:13 Bjarni og Guðlaugur ræddu um styrkina Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, átti fund með Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmanni flokksins, vegna hárra fjárstyrkja sem flokkurinn fékk í árslok 2006. Þetta kemur fram í viðtali við Bjarna sem var birt hér á Vísi í gærkvöld. Í viðtalinu kemur fram að Bjarni og Guðlaugur hafi farið yfir málið og skipst á skoðunum á hreinskiptin hátt. 10.4.2009 13:42 Vinstri grænir fengu hæst 1 milljón króna Hæsti styrkur sem Vinstri hreyfingin grænt framboð fékk á árinu 2006 var frá Samvinnutryggingum en hann nam einni milljón króna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem VG sendi frá sér í dag. Þar segir að áður en lög um fjármál flokkanna voru samþykkt hafi Vinstri græn unnið eftir eigin reglum að öll fjárframlög yfir 500 þúsund krónum skyldu birt í ársreikningi, þ.e. hver gaf og hversu mikið. Samvinnutryggingar séu eina tilfellið sem þetta hafi átt við um. 10.4.2009 13:23 Hvolsvallarlögregla herðir umferðareftirlit Lögreglan á Hvolsvelli verður með sérstakt hálendiseftirlit á láði og í lofti um páskahelgina. Sérstaklega verður fylgst með ástandi ökumanna, bæði hvað varðar ölvunar-, fíkniefna- og svo utanvegarakstur. 10.4.2009 12:24 Framsóknarmenn birta ekki bókhald fyrir árið 2006 Framsóknarflokkurinn ætlar ekki að greina frá því hverjir veittu framlög til flokksins árið 2006. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem flokkurin sendi frá sér fyrir stundu. Hæsti einstaki styrkur sem flokknum hafi verið veitt hafi numið 5 milljónum króna en heildarframlög lögaðila um 30 milljónum króna. 10.4.2009 12:15 Útlendingar trúa því að Íslandi hafi verið lokað Fjölmargir útlendingar trúa því að Ísland hafi orðið gjaldþrota síðasta haust og hreinlega verið lokað. Þetta segir viðskiptaráðherra og að miklu máli skipta að uppgjörið vegna bankahrunsins verði sanngjarnt og gagnsætt til að endurvekja trú alþjóðasamfélagsins á íslensku viðskiptalífi. 10.4.2009 12:03 Sundlaugarnar opnar í dag Laugardalslaug og Árbæjarlaug eru opnar frá klukkan tíu til sex í dag, föstudaginn langa. Þjónustuhús Ylstrandarinnar í Nauthólsvík er opið í dag frá ellefu til eitt og á annan í páskum frá fimm til sjö í eftirmiðdaginn. 10.4.2009 09:59 Víða hægt að skíða í dag Skíðasvæði eru víðast hvar opin landsmönnum í dag. Hlíðafjall opnaði klukkan níu í morgun og verður opið til klukkan fimm síðdegis, opið er á skíðasvæðinu á Dalvík frá klukkan tíu til fimm og í Tindastóli og á Siglufirði verður jafnframt opið til klukkan fimm. Þá verður opið í Bláfjöllum til klukkan fimm. Fjölmenni var á skíðum á Akureyri og á Ísafirði í gær og á Siglufirði voru um 1400 manns á skíðum. 10.4.2009 09:55 Sjá næstu 50 fréttir
Skíðasvæði víða opin Skíðasvæðið á Siglufirði er opið til klukkan fjögur í dag. Egill Rögnvaldsson, umsjónarmaður, segir að veðrið í fjallinu sé afar gott. Páskaeggjamót hefst klukkan eitt og í framhaldinu klárast ratleikur á skíðasvæðinu. Garpamót hefst klukkan þrjú. 12.4.2009 10:01
Hálka og hálkublettir víða Aðalleiðir á Suðurlandi eru auðar en hálkublettir eru á Lyngdalsheiði. Það er hálka og skafrenningur á Holtavörðuheiði en hálkublettir á nokkrum öðrum heiðum á Vesturlandi. 12.4.2009 09:52
Róleg nótt hjá lögreglu Gærkvöldið og nóttin virðist hafa verið róleg hjá lögreglunni víðsvegar um landið ef frá er talið þegar sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út á Akranesi í gær vegna ölvaðs og vopnaðs manns. 12.4.2009 09:49
Beita þurfti klippum á Bústaðavegi Slökkvilið þurfti að beita klippum til að ná þremur út úr bifreið sem ekið var á ljósastaur á mótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar á þriðja tímanum í nótt. Fólkið var flutt á slysadeild en að sögn lögreglu er þau ekki mikið slösuð. 12.4.2009 09:24
Sérsveitin kölluð út vegna vopnaðs manns Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð að einkahúsi á Presthúsabraut á Akranesi í gærkvöldi. Þar var ölvaður og vopnaður maður handtekinn sem gisti fangageymslur lögreglunnar á Akranesi í nótt. Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, verður yfirheyrður síðar í dag. Hann var einn í húsinu. 12.4.2009 09:02
Þarf að svara til saka fyrir fjöldamorð Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa neitað hinum 89 ára gamla Ivan Demjanjuk um undanþágu um að framselja hann ekki til Þýskalands. Hann er sagður hafa aðstoðað við morð á 29 þúsund gyðingum þegar hann starfaði sem fangavörður í útrýmingarbúðum í síðari heimsstyrjöldinni. 12.4.2009 08:00
Guðlaugur: Öfl innan Sjálfstæðisflokksins vinna gegn mér Guðlaugur Þór Þórðarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ákveðin öfl innan Sjálfstæðisflokksins hafi unnið gegn sér. Hann hefur ekki íhugað að segja af sér. 11.4.2009 20:15
„Þetta virtist allt svo dökkt“ Sjónskert kona á níræðisaldri var rænd um hábjartan dag í Vogahverfinu í gær. Þjófurinn náði sjö þúsund krónum, leigubílakorti frá Blindrafélaginu og húslyklum. Þjófurinn er ófundinn en konan biður hann að skila persónulegum munum sínum. 11.4.2009 20:10
Sigurjón tók einn ákvörðun um risastyrkinn til Sjálfstæðisflokksins Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, tók ákvörðunina um að styrkja Sjálfstæðisflokkinn um 25 milljónir einn og óstuddur. Hinn bankastjóri bankans og bankaráðið komu hvergi nærri ákvörðuninni. Þessi styrkur var meðhöndlaður á allt annan hátt en 5 milljóna króna styrkurinn sem var veittur fyrr á árinu 2007. 11.4.2009 19:50
Enn er lýst eftir Evu Lind Lögreglan á Suðurnesjum lýsir enn eftir Evu Lind Guðjónsdóttur en hennar hefur verið saknað síðan á fimmtudagsmorguninn, 9. apríl. Hún er 15 ára. 11.4.2009 20:01
Strætó með litla þjónustu um páskahelgina Strætó bauð ekki upp á neina þjónustu í gær, og ekki verður heldur hægt að taka strætó á morgun, páskadag. 11.4.2009 19:42
Ámælisvert að þiggja tugmilljóna styrki Varaformaður Framsóknarflokksins segir ámælisvert að Sjálfstæðisflokkurinn skyldi þiggja tugmilljóna styrki frá fyrirtækjum eftir að stjórnmálaflokkarnir höfðu náð samkomulagi um breytingar á lögum varðandi styrki til þeirra og stutt í að ný lög tækju gildi. 11.4.2009 19:21
„Ég held ekki nei“ Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í kvölfréttum Stöðvar 2 að hann teldi að bæði Kjartan Gunnarsson og Andri Óttarsson, fyrrum framkvæmdastjórar flokksins, hafi haft vitneskju um styrkina eftir að styrkirnir komu í hús eins og Bjarni orðaði það. 11.4.2009 19:01
Meintur árásarmaður ekki lengur í haldi lögreglu Lögreglan hefur slepp karlmanni um sjötugt sem grunaður er um að hafa stungið konu á fimmtugsaldri í íbúð í Meðalholti í morgun. Maðurinn neitar sök en konan heldur því staðfestlega fram að maðurinn hafi stungið sig. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins. 11.4.2009 18:17
Steini í Kók sá um FL-styrkinn fyrir Sjálfstæðisflokkinn Þorsteinn Jónsson, oft kenndur við Kók, og Steinþór Gunnarsson fyrrverandi yfirmaður verðbréfadeildar Landsbankans segjast hafa staðið fyrir söfnun hárra styrkja frá FL Group og Landsbankanum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Það hafi þeir gert eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður hafði samband við þá og upplýsti að fjárhagsstaða flokksins væri mjög bágborin. Guðlaugur hafi ekki haft frekari afskipti af málinu, segja þeir félagar í yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér í dag. 11.4.2009 16:51
Þing verður rofið um miðja næsta viku Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, telur að Alþingi verði rofið um miðja næstu viku vegna komandi þingkosninga. Hann segir að semja verði um frumvörp sem ágreiningur er um. 11.4.2009 15:31
Bjarni í beinni útsendingu í kvöldfréttum Rætt verður við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 sem hefjast klukkan hálf sjö. Mikið hefur verið fjallað um risastyrki sem Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 2006 skömmu áður en lög um hámarksframlög til stjórnmálaflokka tóku gildi. Rætt verður við Bjarna um málið. 11.4.2009 18:20
Ástþór býður munaðarleysingjum í Sjálfstæðisflokknum um borð Lýðræðishreyfingin xP, sem Ástþór Magnússon er forsvari fyrir, hefur safnað tilskyldum fjölda meðmælenda og frambjóðenda í öllum kjördæmum landsins og verða framboðslistar lagðir fram á þriðjudag. 11.4.2009 17:14
Umhverfisfræðingar gagnrýna auglýsingu sjálfstæðismanna Félag umhverfisfræðinga gagnrýnir nýlega auglýsingu þingmanna Sjálfstæðisflokksins um frumvarp til breytinga á stjórnarskrá. Félagið harmar að Sjálfstæðisflokkurinn skuli slíta úr samhengi umsögn félagsins og frábiður sér að faglegar umsagnir um þingmál séu misnotaðar í pólitískum tilgangi. 11.4.2009 15:49
Atvinnulausir rúmlega 17.500 Atvinnuleysi heldur áfram að aukast og nú eru 17.552 manns án atvinnu á landinu öllu. Hafa verður í huga að sá hópur sem ekki er að fullu atvinnulaus fer stækkandi, það er að segja þeir sem eru á hlutabótum á móti hlutastarfi. Á vef Vinnumálastofnunnar segir að yfir 3000 manns eru á hlutabótum. 11.4.2009 13:45
Stefnir í hörmulegan kosningaósigur Sjálfstæðisflokksins Hremmingar Sjálfstæðisflokksins nú eru þær alvarlegastu sem hann hefur lent í í rúm 20 ár og jafnvel frá upphafi. Þetta sagði Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Gunnar Helgi sagði jafnframt að það stefni í hörmulegan kosningaósigur hjá Sjálfstæðisflokknum. 11.4.2009 12:29
Maður á áttræðisaldri í haldi vegna hnífsstungu Rétt fyrir klukkan sex í morgun barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að kona á fimmtugsaldri hefði verið stungin í heimahúsi í Austurborginni. 11.4.2009 12:17
Framsókn mun birta yfirlit yfir styrki Framsóknarflokkurinn mun væntanlega birta yfirlit yfir þau fyrirtæki sem styrktu flokkinn árið 2006 á allra næstu dögum, en verið er að leita samþykkis þeirra fyrirtækja sem veittu styrkina fyrir birtingu upplýsinganna. 11.4.2009 12:02
Endurskoðandi gerði athugasemdir við risastyrki FL og Landsbankans Haukur Leósson, endurskoðandi Sjálfstæðisflokksins, gerði athugasemdir við risastyrki FL Group og Landsbankans til flokksins við endurskoðun ársreikningsins 2006. Þær athugasemdir virti meðal annars Kjartan Gunnarsson, þáverandi framkvæmdastjóri flokksins, að vettugi. 11.4.2009 12:00
Framhaldið í höndum Bjarna - ekki næst í Sigurjón eða Halldór Engar ákvarðanir voru teknar á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins sem haldinn var í gærkvöldi. Þingmenn samþykktu að framhald málsins yrði í höndum Bjarna Benediktssonar, formanns flokksins. 11.4.2009 10:07
Kjartan vissi um styrkina Heimildir sem fréttastofan telur öruggar fullyrða að Kjartan Gunnarsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins hafi vitað af tugmilljóna styrkjum FL Group og Landsbanka til Sjálfstæðisflokksins fyrir áramótin 2006 - 2007, en hann hefur ítrekað fullyrt í fjölmiðlum að hann hafi ekki vitað af þessum greiðslum fyrr en Stöð 2 greindi frá þeim á miðvikudag. 11.4.2009 10:00
Skíðasvæðin víða opin Allir sem mæta í lopapeysu á skíðasvæðið í Dalvík fá óvæntan glaðning „Heiðrum íslensku sauðkindina og fyllum fjallið af mislitum lopapeysum,“ segir Einar Hjörleifsson umsjónarmaður. Hinir Svarfdælsku Bakkabræður mæta á svæðið. Útbúinn hefur verið sérstök braut fyrir snjóþotur og stigasleða. Skíðasvæðið verður opnar klukkan 10 og verður opið til 17. 11.4.2009 09:33
Víða hálka Fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni að víðsvegar um landið eru hálka og hálkublettir. Aðalleiðir á Suðurlandi eru auðar en hálkublettir eru á Lyngdalsheiði. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði en hálkublettir á nokkrum öðrum heiðum á Vesturlandi. 11.4.2009 09:21
Ók utan í allt að sex bíla Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Lögreglumenn handtóku mann grunaðan um að aka undir áhrifum áfengis eftir að hann ók á og utan í fjórar til sex kyrrstæðar bifreiðar í Grettisgötu. Samkvæmt lögreglu er bifreiðarnar talsvert skemmdar. 11.4.2009 09:03
Rannsakar styrki til flokka Styrkir til stjórnmálaflokka eru meðal þess sem Rannsóknarnefnd um bankahrunið mun skoða við vinnu sína. Þetta segir Tryggvi Gunnarsson, sem sæti á í nefndinni. 11.4.2009 09:00
Kona flutt á slysadeild eftir hnífsstungu Rétt fyrir klukkan sex í morgun barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að kona hefði verið stungin í Austurborginni. Konan var flutt á slysadeild en mun ekki vera í lífshættu samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Karlmaður var handtekinn vegna málsins. 11.4.2009 08:37
Siðfræðingur hættir í SUS Stefán Einar Stefánsson viðskiptasiðfræðingur hefur sagt sig úr stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna, SUS. 11.4.2009 06:30
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir stúlku Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Evu Lind Guðjónsdóttur, f. 12 nóvember 1994 en hennar er saknað síðan á fimmtudagsmorguninn, 9. apríl síðastliðinn. 10.4.2009 21:48
Bjarni og Þorgerður funda með Guðlaugi Bjarni Benediktsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson funda nú um stöðu flokksins í skugga frétta um að flokkurinn hafi tekið við 30 milljónum króna frá FL Group og 25 milljónum króna frá Landsbankanum í árslok 2006. Komið hefur fram að mikil ókyrrð hefur verið í flokknum frá því að fréttastofa Stöðvar 2 sagði frá málinu á þriðjudag og er hávær krafa um að upplýst verði um framvindu málsins. 10.4.2009 19:04
Segja annarleg sjónarmið að baki umræðu um ábyrgð Guðlaugs Formenn tólf sjálfstæðisfélaga í Reykjavík segj að það hljóti að liggja annarleg sjónarmið að baki því að draga nafn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns inn í umræðu um styrki til Sjálfstæðisflokksins. 10.4.2009 18:47
Sakaði þingmann Sjálfstæðisflokksins um að aka á sig Þingflokksfundi sjálfstæðismanna sem átti að halda í Valhöll klukkan þrjú var frestað þar til síðar í dag. Margir þingmenn voru mættir til fundarins þegar ákveðið var að bíða með fundarhöldin. Þar á meðal var Ragnheiður Ríkharðsdóttir en hún fékk óblíðar móttökur mótmælenda sem hindraði 10.4.2009 15:41
Struku frá Stuðlum Fjórar stúlkur struku frá Stuðlum, meðferðarheimili ríkisins fyrir unglinga við Fossaleyni, eftir hádegið í dag. Að sögn lögreglunnar á hofuðborgarsvæðinu eru stúlkurnar komnar í leitirnar og munu væntanlega fara aftur upp á Stuðla. Lögreglan segir að stúlkurnar hafi ekki verið komnar langt á veg þegar þær fundust aftur. 10.4.2009 15:13
Bjarni og Guðlaugur ræddu um styrkina Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, átti fund með Guðlaugi Þór Þórðarsyni, þingmanni flokksins, vegna hárra fjárstyrkja sem flokkurinn fékk í árslok 2006. Þetta kemur fram í viðtali við Bjarna sem var birt hér á Vísi í gærkvöld. Í viðtalinu kemur fram að Bjarni og Guðlaugur hafi farið yfir málið og skipst á skoðunum á hreinskiptin hátt. 10.4.2009 13:42
Vinstri grænir fengu hæst 1 milljón króna Hæsti styrkur sem Vinstri hreyfingin grænt framboð fékk á árinu 2006 var frá Samvinnutryggingum en hann nam einni milljón króna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem VG sendi frá sér í dag. Þar segir að áður en lög um fjármál flokkanna voru samþykkt hafi Vinstri græn unnið eftir eigin reglum að öll fjárframlög yfir 500 þúsund krónum skyldu birt í ársreikningi, þ.e. hver gaf og hversu mikið. Samvinnutryggingar séu eina tilfellið sem þetta hafi átt við um. 10.4.2009 13:23
Hvolsvallarlögregla herðir umferðareftirlit Lögreglan á Hvolsvelli verður með sérstakt hálendiseftirlit á láði og í lofti um páskahelgina. Sérstaklega verður fylgst með ástandi ökumanna, bæði hvað varðar ölvunar-, fíkniefna- og svo utanvegarakstur. 10.4.2009 12:24
Framsóknarmenn birta ekki bókhald fyrir árið 2006 Framsóknarflokkurinn ætlar ekki að greina frá því hverjir veittu framlög til flokksins árið 2006. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem flokkurin sendi frá sér fyrir stundu. Hæsti einstaki styrkur sem flokknum hafi verið veitt hafi numið 5 milljónum króna en heildarframlög lögaðila um 30 milljónum króna. 10.4.2009 12:15
Útlendingar trúa því að Íslandi hafi verið lokað Fjölmargir útlendingar trúa því að Ísland hafi orðið gjaldþrota síðasta haust og hreinlega verið lokað. Þetta segir viðskiptaráðherra og að miklu máli skipta að uppgjörið vegna bankahrunsins verði sanngjarnt og gagnsætt til að endurvekja trú alþjóðasamfélagsins á íslensku viðskiptalífi. 10.4.2009 12:03
Sundlaugarnar opnar í dag Laugardalslaug og Árbæjarlaug eru opnar frá klukkan tíu til sex í dag, föstudaginn langa. Þjónustuhús Ylstrandarinnar í Nauthólsvík er opið í dag frá ellefu til eitt og á annan í páskum frá fimm til sjö í eftirmiðdaginn. 10.4.2009 09:59
Víða hægt að skíða í dag Skíðasvæði eru víðast hvar opin landsmönnum í dag. Hlíðafjall opnaði klukkan níu í morgun og verður opið til klukkan fimm síðdegis, opið er á skíðasvæðinu á Dalvík frá klukkan tíu til fimm og í Tindastóli og á Siglufirði verður jafnframt opið til klukkan fimm. Þá verður opið í Bláfjöllum til klukkan fimm. Fjölmenni var á skíðum á Akureyri og á Ísafirði í gær og á Siglufirði voru um 1400 manns á skíðum. 10.4.2009 09:55