Innlent

Kona flutt á slysadeild eftir hnífsstungu

Rétt fyrir klukkan sex í morgun barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að kona hefði verið stungin í Austurborginni. Konan var flutt á slysadeild en mun ekki vera í lífshættu samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Karlmaður var handtekinn vegna málsins.

Ekki fengust frekari upplýsingar hjá lögreglu um málið að svo stöddu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×