Innlent

Sérsveitin kölluð út vegna vopnaðs manns

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. MYND/Vilhelm
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð að einkahúsi á Presthúsabraut á Akranesi í gærkvöldi. Þar var ölvaður og vopnaður maður handtekinn sem gisti fangageymslur lögreglunnar á Akranesi í nótt. Maðurinn, sem er á fimmtugsaldri, verður yfirheyrður síðar í dag. Hann var einn í húsinu.

Lögreglu barst tilkynning um manninn á níunda tímanum. Í framhaldinu lokaði hún götunni og hafði samband við fólk í nærliggjandi húsum sem var beðið um að fara ekki út. Sérsveitin kom á staðinn tæpri klukkustund síðar. Það var síðan klukkan hálfellefu sem liðsmenn sérsveitarinnar fóru inn í húsið og handtóku manninn. Hann veitti ekki mótþróa og var í framhaldinu færður á lögreglustöð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×