Innlent

Atvinnulausir rúmlega 17.500

Atvinnuleysi heldur áfram að aukast og nú eru 17.552 manns án atvinnu á landinu öllu.

Hafa verður í huga að sá hópur sem ekki er að fullu atvinnulaus fer stækkandi, það er að segja þeir sem eru á hlutabótum á móti hlutastarfi. Á vef Vinnumálastofnunnar segir að yfir 3000 manns eru á hlutabótum.

Hagdeild Alþýðusambands Íslands spáir að atvinnuleysi nái hámarki á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Þá geta um 18 þúsund manns verið að fullu án vinnu sem svarar til um 10% atvinnuleysis, að mati hagdeildarinnar.

Á vef Vinnumálstofnunnar kemur fram að atvinnulausir karlar eru 11.150 en konurnar eru 6402 talsins. Á höfuðborgarsvæðinu eru 11.754 án atvinnu.

Um fjórtán þúsund manns fengu greiddar atvinnuleysisbætur um seinustu mánaðamót. Heildarupphæðin nam um tveimur milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×