Innlent

Þurftu ekki að yfirtaka skuldir Icesave

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Íslenskir og breskir lögmenn túlka tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar á þá vegu að að íslenska innistæðutryggingasjóðnum, og þar með íslenska ríkinu, bar ekki að ábyrgjast Icesave-skuldbindingar Landsbankans. Svo virðist sem Evrópusambandið hafi óttast ef íslenskir skattgreiðendur tækju ekki á sig ábyrgðina gæti bankakerfi Evrópu riðað til falls. Þetta fullyrðir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, frambjóðandi til formanns Framsóknarflokksins, á bloggsíðu sinni.

Sigmundur vísar í skýrslu nefndar sem skipuð var fulltrúum frá seðlabanka, fjármálaráðuneyti, viðskiptaráðuneyti og iðnaðarráðuneyti Frakklands og unnin var árið 2000. Eitt af því sem fjallað er um í skýrslunni eru hinar samræmdu innistæðutryggingar Evrópusambandsins. Formaður nefndarinnar sem vann skýrsluna var Jean-Claude Trichet, núverandi bankastjóri Evrópska seðlabankans. Hann var þá seðlabankastjóri Frakklands.

Skýrslan sem nefndin skilaði af sér er áhugaverð lesning, að mati Sigmundar. „Það sem er þó sérstaklega áhugavert fyrir Íslendinga er kafli sem fjallar um innistæðutryggingasjóði. Eitt af því sem fjallað er um í kaflanum eru hinar samræmdu innistæðutryggingar Evrópusambandsins, sem yfirleitt er vísað til í umræðu um ábyrgð vegna Icesave-reikninga. Þar segir: „Enda þótt það markmið [með samræmdu reglunum] að auka stöðugleika bankakerfisins hafi komið skýrt fram, er kerfið sem komið var á í Frakklandi, eins og í flestum löndum sem hafa formleg innistæðutryggingakerfi, ekki til þess ætlað að fást við kerfiskrísu.""

Sigmundur segir í lokaorðum sínum að Jón Sigurðsson og bandamenn hans í sjálfstæðisbaráttunni hafi barist áratugum saman við ofurefli og beittu þar sleitulaust fyrir sig lögum og mörghundruð ára gömlum samningum.

„Kjörorðið var ,,eigi víkja!" Það er ekki nema von að Jón sé þungur á brún þar sem hann stendur á Austurvelli og starir á Alþingishúsið."

Skrif Sigmundar er hægt að lesa hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×