Fleiri fréttir

Þrír Pólverjar sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag þrjá pólska karlmenn af ákæru um að hafa látið fyrir farast að koma landa sínum undir læknishendur þegar að hann veiktist lífshættulega mánudaginn 9. júní 2008

Þjófnaðarbrotum hefur fjölgað á árinu

Tilkynnt var um rétt tæplega 3.700 brot til lögreglunnar í nóvember á þessu ári sem eru færri brot en á sama tíma í fyrra en þá var tilkynnt um tæplega 5.600 brot.

Braust inn í björgunarskip og fór í siglingu

Björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Höfn í Hornafirði, Ingibjörgu, var stolið í morgun. Friðrik Jónas Friðriksson, formaður Björgunarfélags Hornafjarðar, segir að skipinu hafi verið siglt út úr höfninni um klukkan sjö en að menn hafi ekki áttað sig á því að skipið væri horfið fyrr en fór að birta.

Hagar greiði 315 milljónir fyrir brot á samkeppnislögum

Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Hagar, sem meðal annars rekur verslanirnar Bónus, Hagkaup og 10-11, sem hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með aðgerðum sem beindust gegn keppinautum félagsins á matvörumarkaði. Fyrirtækið verður sektað um 315 milljónir fyrir brot á samkeppnislögum.

Samþykkt að stofna þjónustumiðstöð fyrir blinda og sjónskerta

Alþingi samþykkti í gær frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra, um stofnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Sjónstöð Íslands verður lögð niður samhliða því að ný stofnun tekur til starfa. Lögin taka gildi 1. janúar næstkomandi.

Landsbankinn styrkir Hjálparstarf kirkjunnar

Landsbankinn hefur ákveðið að styrkja innanlandsdeild Hjálparstarfs kirkjunnar í stað þess að senda jólakveðjur og gjafir til viðskiptavina bankans. „Okkur hefur þótt vænt um að senda viðskiptavinum okkar kveðju undanfarin ár - en vitum að þeir munu meta það mikils að jólakveðjan þeirra renni í gott málefni," segir Elín Sigfúsdóttir, bankastjóri Landsbankans, en styrkurinn nemur þremur milljónum króna.

Opið í Bláfjöllum

Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opnað í gær, í fyrsta sinn í vetur. Í dag verða lyftur í gangi frá klukkan fjögur til klukkan níu í kvöld og um helgina er stefnt að því að hafa opið frá klukkan tíu á morgnana til sex á kvöldin.

Nýtt mál, sömu sakborningar

Það eina sem er sammerkt með Baugsmálinu og ákærum á hendur Jóni Ásgeiri og skildum aðilum, sem birtar voru í gær, er að um sömu sakborningana er að ræða. Þetta segir Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari efnahagsbrotadeildar og hafnar því að í raun sé verið að gefa út þriðju ákæruna í Baugsmálinu, - um allt aðrar sakagiftir sé nú að ræða.

Geir segir þörf á meiri niðurskurði

Geir Haarde forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin geri ráð fyrir þörf á meiri niðurskurði í fjárlögum fyrir árið 2010 en fyrir næsta ár, líkt og Poul Thomsen yfirmaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi hefur þegar bent á.

Þingmenn í yfirvinnu

Þingmenn úr öllum flokkum stjórnarandstöðunnar á þingi fóru fram á það í morgun að þingfundur standi ekki lengur en til miðnættis í kvöld. Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, sagði við upphaf fundar að þingmenn þurfi sennilega að funda lengur en til klukkan átta í kvöld.

Kompás-hestaníðingur greiðir sekt

Karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða 200 þúsund króna sekt í ríkissjóð, eða sæta 14 daga fangelsi, fyrir að fara illa með, hrekkja og meiða hross á hlaði við bæinn Vatnsenda í Elliðavatni í Kópavogi.

Félagsbústaðir leigja til að leigja

Borgarráð samþykkti í gær að fela stjórn Félagsbústaða að auglýsa eftir leiguíbúðum á almennum markaði til endurleigu fyrir þá sem eru á biðlista eftir húsnæði á vegum velferðarsviðs borgarinnar. Um er að ræða leigu- og þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara að fjölbreyttri stærð og gerð. Leitast verður við að tryggja félagslegan fjölbreytileika við val á húsnæði.

Barnaspítali Hringsins fær styrk

Barnaspítali Hringsins fékk í dag afhentan styrk að fjárhæð 750 þúsund krónur frá Avant. Það var Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Avant hf., sem afhenti styrkinn en hann rennur til starfsþróunarsjóðs Barnaspítalans. Í tilkynningu segir að þetta sé þriðja árið í röð sem Avant hf. styrkir spítalann með þessu hætti.

Ekki einu sinni skráður í Framsóknarflokkinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skipulagshagfræðingur og fyrrverandi fréttamaður segir fólk héðan og þaðan af landinu hafa haft samband við sig að undanförnu. Mikið af því fólki virðist vilja fá hann til formennsku í Framsóknarflokknum. Sigmundur segir sérstakt að framsóknarmenn vilji hann sem formann þar sem hann sé ekki einu sinni skráður í flokkinn. Hann segist ekki vera á leiðinni í pólitík sem stendur.

Frítekjumark öryrkja áfram 100 þúsund krónur

Alþingi samþykkti í gær frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, sem felur í sér að ákvæði um 100.000 króna frítekjumark á atvinnutekjur örorku- og endurhæfingarlífeyris mun gilda áfram þar til nýtt örorkumatskerfi hefur verið tekið í notkun. Að óbreyttu hefði ákvæðið fallið úr gildi 1. janúar næstkomandi.

Ríkisstjórnin fundaði í Alþingishúsinu

Ríkisstjórnarfundur var haldinn í morgun á heldur óvenjulegum stað, en ráðherrarnir komu saman í Alþingishúsinu. Yfirleitt eru fundirnir haldnir í Stjórnarráðinu eða í Ráðherrabústaðnum á Tjarnargötu. Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, sagði þó í samtali við Vísi að þetta sé ekki einsdæmi þó ekki sé algengt að halda fundina við Austurvöll.

Tvær leiðir færar ef breyta þarf stjórnarskránni vegna ESB-aðildar

Sé tekið mið af umræðunni í tilefni af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og síðari rökum má telja víst að ekki náist samstaða um aðild að Evrópusambandinu nema með breytingu á stjórnarskrá, að mati Davíðs Þór Björgvinssonar, dómara við Mannréttindastól Evrópu og prófessors við HR. Hann telur tvær leiðir færar sem eru þó ólíkar.

Stofnun embættis héraðssaksóknara frestað um ár

Stofnun nýs embættis héraðssaksóknara hefur verið frestað um ár en lögin áttu að taka gildi 1. janúar 2009. Vísir greindi frá því í september að gildistökunni yrði að öllum líkindum frestað.

Jólagjöfum stolið úr bílskúr á Selfossi

Þó nokkrum jólagjöfum var stolið úr ólæstum bílskúr á Selfossi undir kvöld í gær. Þær voru þar í kössum og átti eftir að pakka þeim inn. Lögreglan bendir á að það sé ekki nóg að varast jólagjafaþjófnað úr bílum, fólk þurfi líka að læsa bílskúrum sínum. Þjófurinn er ófundinn.

Stolinn bíll kominn í leitirnar

Bíllinn, sem lögreglan á Suðurnesjum leitaði vegna rannsóknar á umsvifum þjófagengis útlendinga hér á landi, er fundinn, en grunur lék á að flytja ætti bílinn úr landi í gámi ásamt þýfi.

Saknar nærveru Ingibjargar Sólrúnar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinar er ekki viðstödd umræðu um breytingar á eftirlaunum æðsta ráðamanna þjóðarinnar. Kristinn H. Gunnarsson þingmaður sagðist sakna þess að Ingibjörg væri ekki á svæðinu.

Eftirlaunafrumvarpið gengur ekki nógu langt

Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra lagði í kvöld fram frumvarp um breytingu á eftirlaunum forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara. Lagði Árni til að frumvarpinu yrði vísað til fjárlaganefndar. Kristinn H. Gunnarsson tók til máls sagði strax í kjölfarið og sagðist hafa vorkennt fjármálaráðherra að þurfa að flytja frumvarpið fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Hann sagði greinilegt að Árni hefði verið að flýta sér eins mikið og hann gæti.

Kráareigendur mótmæla áfengisgjaldinu harðlega

Félag Kráareigenda mótmælir harðlega aðförum stjórnvalda að veitingastöðum með hækkun áfengisgjalda. Með þessari hækkun eru stjórnvöld að beina viðskiptum frá veitingahúsum, sem eru einkarekin fyrirtæki, til vínbúða, sem eru í eigu ríkisins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu.

Við erum að falla á tíma

Grétar Mar Jónsson þingmaður Frjálslynda flokksins segir furðulegt að það þurfi frumvarp frá óbreyttum þingmanni til þess að samþykkja að farið verði í mál við breska ríkið vegna hryðjuverkalaganna sem sett voru á okkur. Fjárhagsleg fyrirgreiðsla úr ríkissjóði til málshöfðunar fyrir erlendum dómstólum var rædd á Alþingi í kvöld. Grétar segir þetta merki um rólegheit og aðgerðarleysi Ríkisstjórnarinnar í málinu.

Gáttaður á meintum skattalagabrotum

Tryggvi Jónsson fyrrverandi forstjóri Baugs segir ákæru sem Ríkislögreglustjóri lagði fram í dag koma sér mjög á óvart. Ákæran snýst m.a að meintum skattalagabrotum Tryggva þegar hann var forstjóri fyrirtækisins.

Fordæma fyrirhugaðan niðurskurð til Háskóla Íslands

Ungir jafnaðarmenn fordæma fyrirhugaðan niðurskurð til Háskóla Íslands og námsmanna. Í fjárlögum sem rædd eru nú á Alþingi liggja fyrir tillögur frá menntamálaráðuneytinu um 3% flatan niðurskurð á háskóla- og framhaldsskólastiginu.

Fjárfestið frekar í menntun en að fara á atvinnuleysisbætur

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir fólki að hugsa lengra og fjárfesta frekar í menntun en fara á atvinnuleysisbætur. Þorgerður var gestur Sölva Tryggvasonar í Íslandi í dag þar sem rædd voru málefni Háskólans og hugsanleg ráðherrastólaskipti í ríkisstjórn.

Svikin afhjúpuð

Ríkisskattstjóri hefur nú nöfn nær allra eigenda þeirra greiðslukorta sem skuldfærð eru af erlendum reikningum en notuð á Íslandi. Hópur fólks hefur þannig skotið tekjum undan skatti.

Grundvallarreglur um mannréttindi þverbrotnar

Jón Ásgeir Jóhannesson og þeir sem Ríkislögreglustjóri hefur ákært fyrir meint skattalagabrot hafa sent frá sér tilkynningu í kjölfar ákærunnar. Þar segir að hér sé enn á ferðinni gamla „Baugsmálið“ sem hófst með húsleit ríkislögreglustjóra hjá Baugi í ágúst 2002.

Slagveður og átta stiga hiti á aðfangadag

Það verður ekki glæsilegt jólaveðrið ef marka má spá Sigurðar „Storms“ Ragnarssonar veðurfræðings Stöðvar 2. Átta stiga hiti, rigning og hávaðarok.

Jón Ásgeir ákærður fyrir skattalagabrot

Helgi Magnús Gunnarsson settur Ríkislögreglustjóri hefur gefið út ákæru á hendur Jóni Ásgeir Jóhannessyni, Baugi Group og tengdum aðilum. Ákæran snertir meint skattalagabrot.

Teknir með rúmt kíló af kókaíni

Lögreglan á Keflavíkurvíkurflugvelli fann talsvert magn af kókaíni í Leifsstöð í vikunni. Tveir karlmenn hafa verið handteknir vegna málsins og úrskurðaðir í gæsluvarðhald.

Fimm mánuðir fyrir að ráðast á fyrrum unnustu

Karlmaður var í dag dæmdur af Hæstarétti í fimm mánaða fangelsi fyrir að hafa ráðist á fyrrum unnustu sína á heimili hennar á Akranesi 2. janúar 2008 og gripið í hár hennar, hárreytt hana og fellt í gólfið og eftir að hún hafi staðið upp tekið hana kverkataki og ýtt upp við vegg.

Hæstiréttur ómerkir átta mánaða fangelsisdóm

Hæstiréttur ómertki í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í desember í fyrra um að Jens R. Kane, flugmaður hjá Icelandair, skyldi sæta átta mánaða fangelsi fyrir ofbeldi gagnvart fyrrverandi unnustu sinni, á heimili þeirra.

Viðskiptaráðherra styrkir Mæðrastyrksnefnd

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, hefur ákveðið að feta í fótspor umhverfisráðherra og senda ekki út jólakort í ár í nafni ráðuneytisins. Í stað þess mun Mæðrastyrksnefnd hljóta styrk frá ráðuneytinu fyrir andvirði þess kostnaðar sem ella hefði farið í jólakort, eða tvöhundruð þúsund krónur.

Þriggja mánaða fangelsi fyrir að ráðast á lögreglumenn

Hæstiréttur dæmdi Algis Rucinskas í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa ráðist á tvo óeinkennisklædda lögreglumenn á Laugarvegi í janúar 2008. Frá refsingu dregst rúmlega viku gæsluvarðhaldsvist hans. Hæstiréttur staðfesti sýknudóm Héraðdsóms Reykjavíkur yfir Sarunas Urniezius félaga mannsins.

Megum veiða 3.000 tonn af þorski í Barentshafi

Á grundvelli Smugusamningsins verður íslenskum skipum heimilt að veiða á næsta ári, í rússneskri lögsögu í Barentshafi, 2937 tonn af þorski auk meðafla. Samkvæmt samningnum stendur Íslendingum jafnframt til boða að kaupa 1763 tonn af þorski, ef um semst.

Sjá næstu 50 fréttir