Fleiri fréttir

Hugmyndir Davíðs um þjóðstjórn hafa enga þýðingu

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir ríkisstjórnina ekki sitja með hendur í skauti í því erfiða efnahagsástandi sem nú dynur á þjóðinni. Hann segir hugmyndir Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra um þjóðstjórn hugmyndir manns út í bæ sem ekki hafi þýðingu á hinum pólitíska vettvangi.

Skaði í efnahagslífinu hefur áhrif á fíkniefnaneytendur

Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi segir það vitað mál að skaði í efnahagslífinu hafi áhrif á vímuefnaneyslu fólks. Hann segir það aðallega vera fíkla og yngsta fólkið sem dragi úr neyslunni þar sem sá hópur hefur úr minni peningum að spila. Hann býst því ekki við aukningu inni á Vogi til lengri tíma litið en óttast aukningu annarra geðrænna vandamála.

Enginn tilgangur með þjóðstjórn

„Við erum með ríkisstjórn sem er með mjög styrkan þingmeirihluta og ég sé ekki fyrir mér að þjóðstjórn geti skilað einhverju umfram þá stjórn sem situr í dag," segir Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur.

Hefur ekki rætt hugmyndir um þjóðstjórn

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna vill lítið tjá sig um hugmyndir Davíðs Oddssonar um að hér þurfi að koma á fót þjóðstjórn. Hann segir hugmyndirnar þó undirstrika að ástandið sé alvarlegt og ekki sé skrýtið að svoleiðis komi upp. Fréttablaðið segist hafa heimildir fyrir því á forsíðu í morgun að Davíð hafi tvisvar viðrað þessa hugmynd sína undanfarið.

Stjórnvöld geta ekki setið með hendur í skauti

Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir stjórnvöld ekki geta setið með hendur í skauti eins og ástandið í þjóðfélaginu sé nú. Forða verði fjölda fólks frá gjaldþroti sem nú blasi við.

Mikill samdráttur í nýskráningum bíla

Nýskráningar bíla á fyrstu níu mánuðum ársins reyndust nærri 11.900 og er það nærri þriðjungsfækkun frá sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í Hagvísum Hagstofunnar.

Síldveiðiskipin komin inn í norska lögsögu

Síldveiðiskipin, sem eru að veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum eru nú komin inn í norska lögsögu, samkvæmt samningum Íslands og Noregs, en veiðin er sáratreg.

Læknar hafa náð samkomulagi við ríkið

Samninganefnd Læknafélags Íslands og samninganefnd ríkisins komust að samkomulagi um nýjan kjarasamning síðdegis í dag. Skrifað var undir nýjan samning hjá ríkissáttasemjara fyrr í kvöld.

Orð Geirs eru brandari

Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að orð Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, frá því í vor að botninum væri náð í efnahagskreppunni hljómi eins og brandari í dag.

Vilja stofna Efnahagsstofnun

Vinstri grænir vilja að stofnuð verði Efnahagsstofnun og mun þingflokkur flokksins leggja fram frumvarp þess efnis á Alþingi.

Haft í hótunum við starfsfólk Glitnis

Viðskiptavinir Glitnis höfðu í hótunum við starfsmenn í útibúum bankans í dag. Flestir sýndu þó stillingu, en fjöldi fólks hreyfði innistæður sínar í sjóðum og á reikningum.

Reyna að koma í veg fyrir þjóðnýtingu

Forsvarsmenn Glitnis reyna nú allt hvað þeir geta til að komast hjá þjóðnýtingu bankans. Hluthafafundur verður í næstu viku. Stjórnarmaður í Glitni segir að Seðlabankinn geti ekki einn staðið fyrir þessari aðgerð heldur þurfi allt fjármálalífið að koma að því að finna lausn fyrir íslenskt efnahagslíf.

Davíð þyrfti að verða 202 sentímetra hár.

Lengja þyrfti Davíð Oddsson um 24 sentímetra ef hæð hans ætti að samsvara gengisvísitölu krónunnar í dag. Fyrir tveimur vikum jafngilti vísitalan hæð seðlabankastjórans í sentímetrum.

Fjárlögin kynnt - Erfiðar tímar framundan

Það eru erfiðir tímar framundan sagði fjármálaráðherra þegar hann kynnti fjárlögin í dag. Gert er ráð fyrir samdrætti á næsta ári og tæpum 60 milljarða króna halla á rekstri ríkissjóð. Framkvæmdum við Sundabraut og Hátæknisjúkrahús hefur verið frestað.

Semja um að borga bara vexti

Dæmi eru um að afborganir á tuttugu milljón króna myntkörfuláni hafi hækkað um rúmar áttatíuþúsund krónur á tveimur árum. Forstöðumaður hjá fjárfestingarbanka segir marga semja um að borga bara vexti lánanna á meðan að krónan er svo veik.

Forseti ASÍ: Ástandið er skelfilegt

Ástandið er svo skelfilegt að tala mætti um neyðarástand, segir Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands, um hrikalegt gengisfall krónunnar síðustu sólarhringa.

Metnaðarleysi meirihluta borgarstjórnar

Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu harma metnaðarleysi meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur í leiksskólamálum sem endurspeglast í ákvörðun þeirra um að hefja heimgreiðslur til foreldra barna á biðlista eftir leikskólaplássi.

45 teknir í Vesturbænum í dag

Brot 45 ökumanna voru mynduð á Neshaga í vesturbæ Reykjavíkur í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt við Melaskóla.

Samtök iðnaðarins: Talið skýrt og markið stefnu

Stjórn Samtaka iðnaðarins segir brýnt að tryggt eðlilegt flæði gjaldeyris á markaði með öllum tiltækum ráðum. ,,Það er nauðsynlegt til þess að koma fjármagni inn á uppþornaðan íslenskan lánamarkað. Seðlabankar um allan heim keppast við að smyrja hjól atvinnulífsins með lausafé. Það ætti íslenski Seðlabankinn líka að gera," segir í tilkynningu.

Jórunn í Strætó

Jórunn Frímannsdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík, var kjörin nýr stjórnarformaður Strætó bs. á síðasta stjórnarfundi byggðasamlagsins. Jórunn tekur við af Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarfulltrúa í Kópavogi, sem lét af formennsku eftir að hafa gegnt embættinu frá júlí 2006.

Hjólabátur bilaði fyrir utan Vík

Björgunarsveitin Víkverji í Vík var kölluð út klukkan háflfjögur í dag þegar skrúfa bilaði í hjólabát Dyrhólaferða sem var á siglingu fyrir utan Vík.

Þorsteinn stendur við orð sín í Kastljósi

Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis hefur sent frá sér yfirlýsingu varðandi það hvort samþykki stærstu hluthafa í Glitni hafi verið fengið áður en Seðlabankinn boðaði til blaðamannafundar þar sem tilkynnt var um yfirtöku ríkisins á 75 prósenta hlut í bankanum. Þorsteinn sagði í Kastljósi í gær að ekki hafi verið fengið samþykki stærstu hluthafa áður en boðað var til fundarins en Seðlabankinn vísaði þessu á bug í tilkynningu fyrr í dag.

Heimild í frumvarpi fyrir nýja lögreglustöð og fangelsi

Í nýju fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár er að finna heimildir til kaup eða leigu á ýmsum fasteignum fyrir stofnanir ríkisins. Þannig er gert ráð fyrir heimild til að kaupa sendiherrabústað í Pretoríu í Suður-Afríku, kaupa eða leigja hentugt húsnæði fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur, sem nú er við Lækjartorg, og að kaupa húsnæði fyrir Vinnumálastofnun.

Framlög til flestra ráðuneyta aukast

Greiðslur úr ríkissjóði til flestra ráðuneytanna tólf aukast á milli ára samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi 2009 sem lagt var fram í dag.

Hundrað milljarða viðsnúningur á mili ára

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2009 sem lagt hefur verið fyrir Alþingi mun verða hallarekstur á ríkissjóði sem nemur 56,9 milljörðum króna á næsta ári. Þetta er viðsnúningur frá fyrra ári en þá var gert ráð fyrir tæpum 40 milljörðum í tekjuafgang af rekstri ríkissjóðs. Ekki verður hafist handa við byggingu hátæknisjúkrahúss né lagningu Sundabrautar.

Stúlka sló strák með flösku í fésið

Nítján ára stúlka var í Héraðsdómi Reykjaness í morgun sakfelld fyrir að slá pilt í andlitið með bjórflösku. Við höggið brotnaði flaskan og pilturinn skarst á nefi og efri vör. Sauma þurfti nítján spor í andlit hans en stúlkan var dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Stúlkan neitaði að hafa slegið piltinn vísvitandi, hún hefði borið fyrir sig hendi þegar hann reyndi að slá til hennar.

Vill að öll þingmannamál fái afgreiðslu

Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, vill að öll frumvörp sem lögð eru fram á Alþingi fái afgreiðslu úr nefndum, hvort sem þau eru felld eða samþykkt.

Erfiðleikar ekki meiri en á fyrri tímum

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði við þingsetningu Alþingis í dag að vandamálin nú væru ekki meiri nú á fyrri tímum þegar Íslendingar börðust fyrir sjálfstæði og útfærslu landhelginnar. Þá sagði að erfiðleikarnir gæfu hvorki tilefni til uppgjafar né örþrifaráða. „Þvert á móti er þjóðin nú ríkulega búin að auðlindum, fjölþættri menntun og margþættri reynslu, nýtur velvildar hjá öllum ríkjum," sagði forsetinn.

Hald lagt á dóp á Akureyri

Lögreglan á Akureyri framkvæmdi húsleit í íbúð á Akureyri í gærkvöldi þar sem hún fann fíkniefni og tæki til fíkniefnaneyslu. Í húsleitinni fundust þrjú grömm af kannabisefnum og eitt gramm af amfetamíni.

Davíð boðaði ekki til fundar án samþykkis hluthafa

Þorsteinn Már Baldvinsson stjórnarformaður Glitnis var í viðtali í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Þar fór hann yfir aðdragandann að yfirtöku Ríkisins á 75% hlut í bankanum. Í máli Þorsteins kom meðal annars fram að Davíð Oddsson formaður bankaráðs Seðlabankans hefði boðað til blaðamannafundar á mánudagsmorgun áður en búið var að fá samþykki hjá hluthöfum bankans.

Var ekki með hjálm og fær því minni bætur

Húsasmiðjan hefur verið dæmd til að greiða starfsmanni millljónabætur eftir vinnuslys. Bæturnar hefðu þó orðið tvöfalt hærri hefði maðurinn verið með hjálm.

Hundrað manna hópuppsagnir um mánaðamótin

Vinnumálastofnun bárust í gær 4 tilkynningar um hópuppsagnir, allar frá fyrirtækjum í byggingariðnaði, samtals ríflega 100 manns. Allir aðilar nefna samdrátt í verkefnum og viðbrögð við erfiðleikum á markaði sem skýringar á uppsögnum.

Segist ekki hafa svikið Kristin

Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist ekki hafa gengið á bak orða sinna þegar hann lagði það til á þingflokksfundi á mánudaginn að Jón Magnússon yrði þingflokksformaður í stað Kristins H. Gunnarssonar. Ég hef ekki svikið einn né neinn segir Guðjón.

Sjá næstu 50 fréttir