Stúlka sló strák með flösku í fésið 1. október 2008 15:36 Frá Héraðsdómi Reykjaness.
Nítján ára stúlka var í Héraðsdómi Reykjaness í morgun sakfelld fyrir að slá pilt í andlitið með bjórflösku. Við höggið brotnaði flaskan og pilturinn skarst á nefi og efri vör. Sauma þurfti nítján spor í andlit piltsins en stúlkan var dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Stúlkan neitaði að hafa slegið piltinn vísvitandi, hún hefði borið fyrir sig hendi þegar hann reyndi að slá til hennar. Aðdragandi árásarinnar var sá að pilturinn kom ásamt félögum sínum í samkvæmi sem haldið var í húsi við Vatnsendaveg í Kópavogi. Vinur stúlkunnar hefði lent í stimpingum við félaga piltsins en við það varð stúlkan „mjög æst og með móðursýki". Pilturinn bað stúlkuna um að skipta sér ekki af en þá hafi hún slegið hann í höfuðið með fyrrgreindum afleiðingum. Við skýrslutöku hjá lögreglu sagði stúlkan að pilturinn hefði sparkað í bringu vinar síns þar sem þau sátu í stól á bakvið hús. „Ákærða kvaðst hafa staðið upp og reynt að stoppa þetta og sagt við hann að hann sparki ekki í sitjandi mann. Þá hefði hann sagt við hana: „Þegiðu druslan þín." Hún hefði þá rifið flöskuna af honum og spurt hvað hann væri að gera með hana og hann svarað: „Þér kemur það ekki við, komdu með flöskuna druslan þín." Hann hafi svo kýlt í áttina til hennar, en hún sett hendina með flöskuna á móti til að verjast högginu. Við það hafi flaskan farið í andlitið á honum og brotnað og hann hefði dreift glerbrotunum yfir andlitið." Héraðsdómi þóttu skýringar stúlkunnar ekki trúverðugar og var hún því sakfelld með fyrrgreindum afleiðingum.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Gervigreindin gerir vart við sig í kosningabaráttunni Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Sjá meira