Fleiri fréttir

Kreppan stórbætir umferðarmenningu

Lögreglan á Blönduósi stöðvaði ekki einn einasta ökumann fyrir of hraðan akstur í dag. Þegar vakthafandi varðstjóri var inntur skýringa á því hvað slík rólegheit ættu að þýða hjá frægustu hraðagildru landsins

Ingibjörg Sólrún heim í næstu viku

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra er væntanleg til landsins um miðja næstu viku. Niðurstöður rannsókna sem hún gekkst undir í gær voru góðar, að sögn Kristrúnar Heimisdóttur, aðstoðarmanns hennar, og töldu læknar því að henni væri óhætt að ferðast heim.

Rennsli Skaftár sextánfaldast

Rennsli Skaftár hefur sextánfaldast frá því að hlaup hófst í ánni í morgun og mældist nú síðdegis 1.100 rúmmetrar á sekúndu við Sveinstind.

Vilja Sparisjóð Mýrasýslu aftur

Byggðaráð Borgarbyggðar hefur óskað eftir viðræðum við ríkisstjórn Íslands um framtíð Sparisjóðs Mýrasýslu með það í huga að færa eignarhaldið aftur heim í hérað. Þetta er gert í ljósi þess hvernig staða Kaupþings er nú og að stofnuð hefur verið skilanefnd yfir bankann innanlands.

Mannið ykkur upp og styðjið Íslendinga

Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Noregi, Siv Jensen, formaður Framfaraflokksins, lýsti í ræðu á flokksráðstefnu í Björgvin í dag, miklum áhyggjum vegna væntanlegs risaláns Íslands frá Rússlandi og taldi að það gæti haft alvarlegar pólitískar afleiðingar fyrir norðurslóðir.

Kraumandi ferðatilboð til ódýrustu höfuðborgar norðursins

Reykjavík er orðin ódýrasta höfuðborg á Norðurlöndum í kjölfar hinna efnahagslegu hamfara sem Ísland hefur sætt og vefútgáfa Jyllandsposten danska gerir sér mat úr þessu með því að hafa ferðaábendingu vikunnar Íslandsferð.

Nýja-Ísland, hvenær kemur þú?

„Getum við byrjað að reka Nýja-Ísland með gamla gjaldmiðlinum?“ spurði Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, í viðtali við Björn Inga Hrafnsson í þættinum Markaðurinn með Birni Inga nú fyrir hádegið.

Stórt Skaftárhlaup hafið úr eystri katli

Hlaup er hafið í Skaftá og er um stórt hlaup að ræða úr eystri katlinum. Að sögn Snorra Zóphóníassonar hjá Vatnamælingum gaf sjálfvirkur mælir við Sveinstind aðvörun klukkan sjö í morgun.

Slasaðist er heimatilbúinn flugeldur sprakk

Maður um tvítugt slasaðist töluvert á hendi og hlaut skurð á enni þegar heimatilbúinn flugeldur sprakk í höndum hans í Hafnarfirði um ellefuleytið í gærkvöldi.

Eldur í gaskút í garðhúsi

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að heimahúsi í Hafnarfirði um fjögurleytið í nótt vegna elds í garðhúsi. Kviknaði hafði í gaskút í garðhúsinu og brotnuðu nokkrar rúður.

Skírteinið upptækt eftir ofsahraða á Sæbrautinni

Einn var tekinn fyrir of hraðan akstur á Sæbrautinni í nótt. Hann ók á 121 kílómetra hraða miðað við klukkustund en hámarkshraði þar er 60. Ökumaðurinn er nítján ára og bíður hans sekt og ökuleyfissvipting.

Hraðakstur og innbrot í umdæmi Borgarneslögreglu

Lögreglan í Borgarnesi hafði afskipti af einum ökumanni í nótt vegna gruns um ölvun við akstur. Þá varð þriggja bíla árekstur við Hvalfjarðargöngin í gærkvöldi en þar var að sögn lögreglu aðeins um minni háttar nudd að ræða.

Lögreglan leitar enn að strokupilti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að Viðari Marel Magnússyni en ýst var eftir Viðari í gærkvöldi. Ekki hefur lögreglu tekist að hafa upp á Viðari en vitað er af honum einhversstaðar á höfuðborgarsvæðinu.

Hollendingur hringdi í Björn

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra segist hafa fengið símtal frá Hollendingi síðdegis á bloggsíðu sinni í kvöld. Hann segir Hollendinginn hafa lýst því hversu illa væri talað um Ísland og Íslendinga í Hollandi.

„Sjaldan hafa orð valdið jafnmiklum skaða“

Skúli Helgason framkvæmdarstjóri Samfylkingarinnar segir að sjaldan hafi orð valdið jafnmiklum skaða í íslensku samfélagi en þau orð sem Davíð Oddsson lét falla í eftirminnilegum Kastljósþætti í vikunni. Hann segir skaðann hlaupa á þúsundum milljarða króna.

Aðalhagfræðingur IMF vonar að Ísland þiggi aðstoð

Gylfi Zoega prófessor í þjóðhagfræði sagði í fréttum Sjónvarpsins nú í kvöld að aðalhagfræðingur Alþjóða gjaldeyrissjóðsins væri boðinn og búinn að veita íslendingum hjálp á þessum erfiðu tímum. Hann sagði aðalhagfræðingin einnig vona að íslendingar þegðu hjálp sjóðsins.

Íbúi á Skagaströnd vann 45 milljónir í Happdrætti Háskólans

Einstaklingur á Skagaströnd fékk þau gleðilegu tíðindi í kvöld að hann hefði unnið 45 milljónir í aðalútdrætti Happdrættis Háskóla Íslands. Hæsti vinningur hjá Happdrætti Háskólans er 5 milljónir á einfaldan miða, en þar sem hinn heppni hafði keypt fimmfaldan miða auk fjögurra einfaldra á sama númer varð heildarvinningsfjárhæðin 45 milljónir.

Íslendingar prjóna sig út úr kreppunni

Margir landsmenn virðast bregðast við kreppunni með því að prjóna. Sala á garni og lopa í hannyrðaverslunum hefur tekið kipp síðustu daga og í gær var slegið met í versluninni Tinnu þegar selt var garn sem dugar í 244 peysur.

Hótar breskum yfirvöldum málsókn

Ísland er ekki gjaldþrota eru skilaboð Geirs Haarde forsætisráðherra til íslensku þjóðarinnar, nú þegar íslenskt efnahagslíf er í frjálsu falli Hann hótar því að Íslendingar fari í mál við bresk stjórnvöld vegna skaða sem ummæli þeirra og aðgerðir hafa valdið.

Beðið með að taka ákvörðun um IMF

Engar ákvarðanir munu verða teknar um aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrr en Árni Mathiesen snýr aftir til baka frá Washington þar sem hann sækir ársfund sjóðsins og Alþjóðabankans. Árni mun þó ekki vera í samningaviðræðum ytra heldur aðeins hitta menn og ræða málin.

Ísland kynnt sem ódýr áfangastaður á CNN

Fjallað var um Ísland sem ódýran ferðamannastað á bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN í gær. Þar var bent á að fjármálakreppan hefði leitt til þess að íslenska krónan hefði hrunið, mörgum ferðamönnum til mikillar ánægju. Þrátt fyrir að landið sé að verða fórnarlamb lausafjárkreppunnar þá segi forsvarsmenn ferðaþjónustunnar að allt starfi eðlilega hér á landi.

Nýr Glitnir verður til um helgina

Nýr Glitnir verður til með formlegum hætti um helgina og nýr bankastjóri settur. Hið sama mun gerast með Kaupþing á fyrstu dögum í næstu viku. Þetta kom fram í máli Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra á blaðamannafundi hans og Geirs Haarde nú klukkan fjögur.

Brown vill leysa deiluna við Íslendinga

Geir H. Haarde forsætisráðherra fékk í dag bréf frá Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, þar sem hann lýsir vilja til þess að leysa deilur landanna vegna íslenskra banka í Bretlandi. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsætisráðherra í Iðnó í dag.

Strokufangar af Litla-Hrauni dæmdir

Tveir karlar hafa verið dæmdir í sex og átta mánaða fangelsi fyrir að hafa strokið af Litla-Hrauni og að hafa í framhaldinu stolið ýmsum munum og einnig bíl . Þeir voru gripnir á höfuðborgarsvæðinu eftir flóttatilraun sína. Hún átti sér stað 3. október í fyrra.

Sigurjón kveður

Sigurjón Árnason fyrrverandi bankastjóri Landsbankans kvaddi samstarfólk sitt í dag og sendi öllum starfsmönnum bankans tölvupóst.

Gjaldeyrishöft sett á Íslendinga

Seðlabankinn hefur gripið til ráðstafana til að draga úr erlendum úttektarheimildum á kreditkortum, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá bankanum.

Tómas forstjóri Alcoa á Íslandi

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði, hefur verið skipaður í nýja stöðu forstjóra Alcoa á Íslandi. Aukin áhersla verður lögð á undirbúning fyrir fyrirhugað Bakkaálver.

Blaðamannafundur í beinni klukkan 16

Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur boðað til blaðamannafundar klukkan fjögur í dag í Iðnó. Þar mun hann líkt og undanfarna daga fara yfir stöðu efnahagsmála. Bein útsending verður frá fundinum á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni.

Framkvæmdastjóri LÍN: Mikilvægast að gjaldeyrisviðskiptin fari í gang

„Það er ljóst í stöðunni núna að það sem skiptir mestu máli er að gjaldeyrisviðskipti geti átt sér stað á milli Íslands og annnarra landa. Úrlausn þess máls er á könnu seðlabanka og fjármálaeftilits, þannig að það er lítið annað sem við getum gert annað en að vekja athygli þessara stjórnvalda á þessari stöðu,"

Bjóða upp á graut og spjall vegna efnhagslegs ofbeldis

Stígamót ætla að bjóða gestum og gangandi í heimsókn öll hádegi virka daga vegna þess sem efnahagslega ofbeldis sem landsmenn hafa gengið í gegnum seinustu daga, að sögn Guðrúnar Jónsdóttur talskonu Stígamóta.

Námsmenn erlendis kvíðnir

Námsmenn erlendis eru orðnir verulega kvíðnir vegna ástandsins í gjaldeyrismálum. Garðar Stefánsson, formaður Sambands íslenskra námsmanna erlendis, segir að það rigni athugasemdum yfir Sambandið frá fólki í vandræðum.

Atvinnuleysi 1,3 prósent í september

Atvinnuleysið í septembermánuði mælidst 1,3 prósent og jókst úr 1,2 prósentum í ágúst. Fram kemur á vef Vinnumálastofnunar að um 2.200 manns hafi að meðaltali verið atvinnulausir í september og er það aðeins um fjögurra prósenta aukning frá í ágúst.

Bílaumferð minnkandi á milli vikna

Svo virðist sem kreppan sé þegar farin að hafa áhrif á bílaumferð í borginni því hún mældist marktækt minni í vikunni sem er að líða en í vikunni á undan.

Nánast ómögulegt að fjármagna fyrirtæki

Nánast ómögulegt er fyrir fyrirtæki að fjármagna sig í dag segir, Þórólfur Mathhíasson, prófessor við Háskóla Íslands. Peningamarkaðssjóðir hafa hingað til verið lífæð atvinnulífsins en umtalsverðir fjármunir hafa tapast úr sjóðunum síðustu daga. Viðskiptaráðherra segir að enn sé verið að skoða hvað verður um innistæður í sjóðunum.

Sjá næstu 50 fréttir