Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tilboð Landsbankans til Seðlabankans var örþrifaráð Tilboð Björgólfs Thors og Landsbankamanna til Seðlabankans um sameiningu við Glitni - er fráleitt örþrifaráð manna sem voru í afneitun fram á síðustu stundu, segir Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræði. Björgólfur hugðist með þessu gefa saman tvo dauðvona sjúklinga, hjónabandið hefði orðið stutt og þeim varla barna auðið, segir þrautreyndur bankamaður. 29.10.2008 18:36
Uppsagnir hjá BYGG: Enn eitt áfallið „Þetta er enn eitt áfallið á byggingamarkaði,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Samiðnar um uppsagnir hjá byggingafyrirtækinu BYGG. „Þetta er viðbót við hina 400 sem við vissum um þannig að þetta fer að nálgast 600 manns sem hafa misst vinnuna í þessari hrinu,“ segir hann. Hann segir stýrivaxtahækkun hafa endanlega gert út um vonir manna til að halda einhverju atvinnulífi hér gangandi. 29.10.2008 17:50
Sótti fund hinnar Norðlægu víddar ESB í Rússlandi Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, sótti í gær fyrir hönd Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, fyrsta utanríkisráðherrafund hinnar Norðlægu víddar Evrópusambandsins, sem haldin var í Sankti Pétursborg í boði Rússlands. 29.10.2008 17:47
Árni vill skoða upptöku færeyskrar krónu Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði það til á Alþingi í dag að skoðað yrði að taka upp færeyska krónu í samfloti með Færeyingum. 29.10.2008 17:13
BYGG segir upp 160 - Nánast öllum hefur verið sagt upp Byggingafyrirtækið BYGG sagði í dag um 160 starfsmönnum upp störfum. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi hjá fyrirtækinu fyrr í dag. 29.10.2008 16:43
Fjölmargar fregnir af uppsögnum úti á landi Þær berast ört fréttirnar af uppsögnum víða á landinu þessa dagana. Á vef stéttarfélagsins Bárunnar á Suðurlandi kemur fram að samkvæmt heimildum félagsins hafi tvö fyrirtæki í byggingaiðnaði á Selfossi ákveðið að segja öllu sínu starfsfólki upp störfum. 29.10.2008 16:31
Íslensk stjórnvöld í óformlegum samskiptum við Kínverja um lán Íslensk stjórnvöld hafa verið í óformlegum samskiptum við Kínverja um hugsanlegt lán. Þetta staðfesti Geir H. Haarde forsætisráðhera í samtali við fréttamann Stöðvar 2 í dag. 29.10.2008 16:20
Segir LÍN brjóta jafnræðisreglu Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, sendi á dögunum fyrirspurn til Lánasjóðs íslenskra námsmanna sökum meints brots á jafnræðisreglu. 29.10.2008 15:42
Skjálfti ekki eins stór og listinn sýndi Jarðskjálfti varð við Goðabungu um klukkan hálfþrjú í dag og reyndist hann rúmlega tveir á Richter en ekki 3,2 eins og jarðskjálftalisti á heimasíðu Veðurstofunnar gaf til kynna. 29.10.2008 15:25
Geir segir stýrivaxtahækkun hafa verið óhjákvæmilega Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að stýrivaxtahækkun Seðlabankans í gær hafi verið óhjákvæmileg. Hún hafi ekki verið skilyrði af hálfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins heldur samkomulag á milli ríkisstjórnarinnar og sjóðsins. Þetta er það sama og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra hafa sagt. 29.10.2008 15:13
Kallað eftir afstöðu stjórnarflokkanna til stýrivaxtahækkunarinnar Kallað var eftir svörum við því hvort stýrivaxtahækkun Seðlabankans í gær nyti stuðning ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkanna í umræðum á Alþingi í dag. 29.10.2008 14:25
Stýrivaxtahækkun ekki skilyrði IMF heldur tillaga ríkisstjórnarinnar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að hækkun Seðlabankans á stýrivöxtum í 18 prósent hafi ekki verið „ákvörðun eða skilyrði" Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þetta kom fram í viðtali við hana á RÚV í hádeginu. Árni Mathiesen fjármálaráðherra, tók í sama streng í samtali við fréttamann Stöðvar 2 í gær þar sem hann sagði engin skilyrði hafa verið sett fyrir þessu af hálfu sjóðsins. Hins vegar sé hækkunin í samræmi við það samkomulag sem gert var við IMF. 29.10.2008 14:23
Bifröst býður Færeyingum ókeypis skólavist á næsta ári Í ljósi þeirrar miklu velvildar sem að Færeyingar hafa sýnt íslensku þjóðinni undanfarið hefur Háskólinn á Bifröst ákveðið að bjóða tveimur færeyskum námsmönnum upp á skólavist endurgjaldslaust, á næsta skólaári. 29.10.2008 14:10
Luku lofsorði á lán Færeyinga Þingmenn luku í dag lofsorði á þá ákvörðun Færeyinga að bjóða Íslendingum lán vegna þeirra erfiðleika sem gengið hefðu yfir. 29.10.2008 14:08
Rannsókn á tveimur stórum fíkniefnamálum að ljúka Rannsókn á tveimur stórum fíkniefnamálum sem upp hafa komið á þessu ári er á lokastigi en bæði tengjast þau smygli með bílum í Norrænu. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er þó ekki hægt að tilgreina nákvæmlega hvenær rannsókn lýkur en í framhaldinu verða málin send saksóknara. 29.10.2008 13:20
Stjórnvöld styðji við menntun og þekkingarsköpun í kreppunni Stúdentaráð Háskóla Íslands segir mikilvægt að styðja vel við menntamál og þekkingarsköpun í núverandi kreppu til þess að stuðla að viðreisn og nýjum tímum. 29.10.2008 12:46
Opna símamiðstöð til að berjast fyrir málstað Íslendinga Í tengslum við heimasíðuna indefence hefur verið opnuð símamiðstöð, þar sem námsmönnum býðst að hringja frítt í vini sína og ættingja erlendis til að vekja athygli á málstað íslensku þjóðarinnar gagnvart breskum stjórnvöldum. 29.10.2008 12:30
Ingibjörg skrifaði ekki bréf til breskra þingmanna Vísir sagði frá því í morgun að breska blaðið Independent fullyrði að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hafi skrifað breskum þingmönum bréf þar sem hún fordæmir notkun þarlendra stjórnvalda á hryðjuverkalögum til að frysta eignir íslenskra banka. Samkvæmt upplýsingum frá Urði Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa Utanríkisráðuneytisins skrifaði Ingibjörg hinsvegar ekkert bréf. 29.10.2008 12:22
Segir Seðlabankann að setja af stað fjöldagjaldþrot í sjávarútvegi Seðlabankinn er vísvitandi að setja af stað fjöldagjaldþrot í sjávarútvegi, segir formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar um hækkun stýrivaxta í gær. Jafnvel stöndugustu sjávarútvegsfyrirtæki eru nú sögð berjast upp á líf og dauða. 29.10.2008 12:15
Um 70 sagt upp hjá Formaco Formaco hefur sagt upp öllum starfssamningum, um 70 talsins, vegna samdráttar á byggingarmarkaði og erfiðleika á gjaldeyrismarkaði. 29.10.2008 12:13
Númer sem byrja á 0088 ekki öll slæm „Við höfum ekki fengið svona inn á borð hjá okkur," segir Margrét Stefánsdóttir upplýsingafulltrúi Símans. Vísi barst í gær tilkynning frá starfsmanni Símans þar sem varað er við því að hringja aftur í númer sem byrja á 0088, hafi fólk misst af símtali frá slíkum númerum. Um svikamyllu sé að ræða og fólk tapi þúsundum króna á símtalinu. 29.10.2008 12:04
Brotist inn í grunnskólann á Ísafirði Tilkynnt var um innbrot í húsnæði grunnskólans á Ísafirði við Austurveg í morgun. 29.10.2008 11:20
Ingibjörg segir bresk stjórnvöld hafa rústað Íslandi Breska blaðið Independent fullyrðir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hafi sent breskum þingmönnum bréf þar sem hún fordæmir notkun þarlendra stjórnvalda á hryðjuverkalögum til að frysta eignir íslenskra banka. 29.10.2008 11:00
Allt í lagi hjá Nova Vísir sagði frá því fyrir stundu að bilun hefði komið upp í farsímakerfi Nova. Nú er hinsvegar búið að komast fyrir þá bilun. 29.10.2008 10:08
Segir rekstur Iceland Express ganga vel Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Iceland Express, segir gjaldþrot danska flugfélagsins Sterling engin áhrif hafa á rekstur Iceland Express. Félögin eru bæði í eigu Fons en Matthías bendir á að engin fjárhagsleg tengsl séu á milli þeirra. 29.10.2008 09:57
Mótmælahópar sameinast á laugardag Sættir hafa náðst í deilum tveggja hópa sem stóðu fyrir mótmælum í borginni um síðustu helgi. Þeir hafa nú sameinað krafta sína og blása til kröftugra mótmæla á laugardaginn kemur. 29.10.2008 09:36
Bilun hjá Nova Bilun hefur komið upp í farsímakerfi Nova sem lýsir sér þannig að ekki er hægt að hringja hefðbundin símtöl, en myndsímtöl og sms smáskilaboð virka. 29.10.2008 09:18
Ríflega 800 börn ættleidd á 18 árum Ríflega 800 börn voru ættleidd hér á landi á árunum 1990-2007 samkvæmt nýrri samantekt Hagstofunnar. Á vef stofnunarinnar kemur fram að í 375 tilvikum var um að ræða stjúpættleiðingu en frumættleiðingar voru 433, þar af 124 hérlendis. 29.10.2008 09:03
Opið á skíðasvæðinu í Tungudal í dag Skíðasvæði Ísfirðinga í Tungudal var opnað að hluta til í gær en ekki er algengt að hægt sé að opna á þessum tíma árs. Barnalyfta svæðisins var opin milli klukkan 17 og 19 og verður það aftur í dag eftir því sem segir í tilkynningu Ísafjarðarbæjar. 29.10.2008 08:52
Björguðu hundi í Heiðmörk Lögreglu- og björgunarmönnum tókst á sjöunda tímanum í gærkvöldi að bjarga hundi, sem fallið hafði ofan í tíu metra djúpa gjá í Heiðmörk og gat sig hvergi hrært. 29.10.2008 07:16
Dómsátt vegna landhelgisbrots Hákonar ÞH Síldveiðiskipið Hákon ÞH hélt út frá Tromsö í Noregi í gærkvöldi, eftir að dómsátt var gerð í máli skipstjórans fyrir meint landhelgisbrot í lokuðu hólfi í norskri lögsögu á laugardag. 29.10.2008 07:10
Færeyingar rétta fram hjálparhönd Íslendingar fá um sex milljarða króna gjaldeyrislán frá Færeyingum. Lögmaður Færeyja segir Færeyinga hafa upplifað svipaðar þrengingar og Íslendingar gangi nú í gegnum. Hann sé viss um að Íslendingar muni standa sterkir upp. 29.10.2008 00:01
Skoðanamunur Þorgerðar og Geirs ,,Það vekur athygli að tvisvar sinnum á stuttum tíma kemur fram þónokkuð mikill áherslumunur hjá Geir og Þorgerði og þá er ég tala um afstöðu þeirra til stýrivaxtahækkunarinnar og í Evrópumálum," segir Einar Mar Þórðarson, stjórnmálafræðingur, aðspurður um ólíka afstöðu ráðherra Sjálfstæðisflokksins til stýrivaxtahækkunar Seðlabankans í morgun. 28.10.2008 22:20
Skýrslur teknar af ungmennum - Fimm af gjörgæsludeild Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur rætt við nokkur þeirra ungmenna sem slösuðust illa í gassprengingunni í vinnuskúr í Grundargerði í gærkvöldi og tekið af þeim skýrslu. Sigurbjörn Víðir Eggertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir lögreglan hafi rætt við þá sem hafi treyst sér til þess í dag. 28.10.2008 21:37
Tvær grímur farnar að renna á Rússana? Svo virðist sem efasemda sé farið að gæta hjá Rússum um að lána Íslendingum fé ef marka má orð aðstoðarfjármálaráðherra landsins, Dmítrí Pankin. 28.10.2008 20:42
Undarleg ákvörðun Seðlabankans Það er undarlegt að Seðlabankinn skuli hafa hækkað stýrivexti þegar seðlabankar um allan heim hafa lækkað vextina, að mati Jóns Daníelssonar prófessors í fjármálum við London School of Economics. 28.10.2008 20:30
Stýrivaxtahækkun smjörklípa Davíðs? ,,Eftir að hafa horft á Kompásþáttinn frá í gærkvöldi opnuðust augu mín fyrir því að stýrivaxtahækkunin frá í morgun væri einhver snjallasta "smjörklípa" sem Davíð hefur kynnt á ferli sínum sem stjórnmálamaður. Hver er að tala um Icesave í dag?" segir Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, í pistli á heimasíðu sinni í dag og bætir við að hún geri sér grein fyrir að ekki gantast með mál að þessari stærðargráðu. 28.10.2008 19:45
61 þúsund manns mótmæla framferði Breta Tæplega 61 þúsund manns hafa skrifað nafn sitt við þjóðarávarp til Breta á netsíðunni Indefence, en síðan var opnuð á fimmtudaginn 22. október. Undirskriftirnar verða afhentir innan skamms. 28.10.2008 19:31
90% treysta ekki Davíð sem seðlabankastjóra Níutíu prósent þjóðarinnar treysta ekki Davíð Oddssyni í stóli seðlabankastjóra samkvæmt nýrri könnun sem gerð var fyrir fréttastofu Stöðvar 2. Mikill meirihluti sjálfstæðismanna styður ekki veru hans í Seðlbankanum. 28.10.2008 18:30
Marorka fær umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs Forsvarsmenn fyrirtækisins Marorku tóku í kvöld við umhverfisverðlaunum Norðurlandaráðs sem veitt voru ásamt öðrum verðlaunum í tengslum við þing ráðsins í Helsinki. 28.10.2008 20:53
Evrusali í Hafnarfirði Gengið á evrunni er 200 krónur en ekki 152 eins og Seðlabankinn segir. Þetta fullyrðir að minnsta kosti gjaldeyrisbraskari í Hafnarfirði sem Fréttastofa Stöðvar 2 ræddi við í dag. 28.10.2008 19:10
Blikur á lofti um álversframkvæmdir Allir bankarnir þrír sem hugðust lána til álversframkvæmda í Helguvík eru komnir í þrot og ríkir óvissa um fjármögnun verkefnisins. Blikur er einnig á lofti um undirbúning álvers við Húsavík. 28.10.2008 19:00
Leynigos fyrir 35 árum Neðansjávargos við Landeyjar um fimm kílómetra undan suðurströndinni fyrir 35 árum er komið á opinberan lista yfir eldgos á Íslandi á tuttugustu öld. Jarðfræðingar efast þó um að nægar sannanir séu til fyrir þessu leynigosi. 28.10.2008 18:53
Samkomulag um háspennulínu Deilur sem staðið hafa misserum saman um nýja háspennulínu til Suðurnesja hafa verið leystar með samkomulagi Landsnets, Hafnarfjarðarbæjar og Voga. 28.10.2008 18:46
Þorgerður Katrín: Stýrivaxtahækkun Seðlabankans óheppileg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti í 18%, vera afar óheppilega. Hún segir tímabært að skoða alvarlega inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evrunnar. 28.10.2008 18:34