Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hjálpa fólki sem á erfitt andlega Stofnaður hefur verið nýr sjóður til styrktar þeim sem eiga erfitt andlega. Sjóðurinn nefnist „ÞÚ GETUR!" og er nýtt afl í baráttunni fyrir forvörnum og geðheilsueflingu. 28.10.2008 16:10
Viðskiptanefnd fundaði um Bretaviðræður Óvíst er hvenær viðræður Íslendinga við bæði Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans halda áfram. Þetta var meðal þess sem fram kom á fundi viðskiptanefndar Alþingis í morgun. Rætt var um stöðu viðræðnanna og um tryggingasjóð innistæðueigenda á fundinum en nokkrir gestir skýrðu nefndarmönnum frá stöðu mála. 28.10.2008 16:01
Vg vill að hætt verði við loftrýmisgæslu Breta Þingflokkur Vinstri - grænna hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að Alþingi feli ríkisstjórninni að tilkynna Bretum og yfirstjórn Atlantshafsbandalagsins að fyrirhuguð loftrýmisgæsla Breta á Íslandi í desember falli niður. 28.10.2008 14:33
Vilja að listaverkasafn bankanna verði í eigu þjóðarinnar Þrír þingmenn úr jafnmörgum flokkum hafa lagt fram frumvarp sem tryggja á að öll þau listaverk sem voru í eigu stóru bankanna þriggja verði í eigu þjóðarinnar áfram. 28.10.2008 14:17
Sakaði Guðna um að sitja í kjöltu seðlabankastjóra Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sakaði í dag Guðna Ágústsson, formann Framsóknarflokksins, um að sitja í kjöltu Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra með því að ganga fremst í flokki við að verja Davíð. Þetta kom fram í máli ráðherrans í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag. 28.10.2008 14:02
Mannvit verkfræðistofa opnar í Búdapest Mannvit verkfræðistofa hefur opnað skrifstofu í Búdapest í Ungverjalandi. Í tilefni opnunarinnar efndi Mannvit til ráðstefnu þar ytra undir yfirskriftinni „Græn orka“ þar sem fjallað var um nýjungar og tækifæri í orkumálum fyrir sveitarfélög og fyrirtæki í Ungverjalandi. Jafnframt voru kynnt þau verkefni sem Mannvit hefur unnið að á sviði jarðhitanýtingar í Ungverjalandi undanfarin tvö ár. 28.10.2008 13:54
Sektuð fyrir stóla- og hjólböruþjófnað Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karl og konu til að greiða 30 þúsund króna sekt hvort fyrir gripdeild með því að hafa stolið tveimur stólum og hjólbörum sem stóðu fyrir utan hús í Hveragerði. 28.10.2008 13:24
Hálfs árs fangelsi fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í hálfs árs fangelsi fyrir ýmis brot, þar á meðal ítrekuð umferðarlagabrot og eina líkamsárás. 28.10.2008 13:18
Siðferðileg skylda að lækka eldsneytisverð strax Íslensku olíufélögin eru aftur farin að hækka álagningu á bensín og olíu, samkvæmt útreikningum Félags íslenskra bifreiðaeigenda, eftir að hafa lækkað álagninguna í september. 28.10.2008 13:00
Umtalsverð stækkun á hrygningarstofni þorsks Umtalsverð stækkun mælist á hrygingarstofni þorsks. Hafrannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson eru nú bæði í leiðöngrum til að kanna ástand botnfiskstofna og bíða menn spenntir nánari fregna. 28.10.2008 12:53
Frjálslyndir mótmæla stýrivaxtahækkun Þingflokkur Frjálslynda flokksins mótmælir hækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands. Í yfirlýsingu frá flokknum segir að lækkað hefði átt stýrivexti til þess að vinna gegn atvinnuleysi og styrkja grundvöll framleiðslufyrirtækjanna. 28.10.2008 12:44
Geir: Stýrivaxtahækkun er varnaraðgerð Bæði Geir H. Haarde forsætisráðherra og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segja stýrivaxtahækkun Seðlabankans í morgun lið í aðgerðum stjórnvalda samkvæmt samkomulagi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. 28.10.2008 12:36
Reyndum að gera það sem hægt var Við reyndum að gera það sem hægt var eru viðbrögð Geirs H. Haarde forsætisráðherra um tilboð Landsbankans til að sameinast Glitni með fjárframlagi frá ríkinu - daginn áður en ríkið keypti meirihluta í Glitni. 28.10.2008 12:19
Guðni kallar eftir heildstæðum tillögum um aðgerðir Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segist skilja að vilji sé fyrir því að koma böndum á gengi krónunnar, en telur að hin mikla vaxtahækkun kunni að hafa alvarlegar afleiðingar. 28.10.2008 12:14
Símasvindl: Ekki hringja tilbaka í 0088 Síminn varar fólk við að hringja til baka í númer sem byrja á 0088. Það landsnúmer er ekki til en fólk er rukkað um þúsundir króna þegar hringt er í númerin. Undanfarið hefur borið á því að fólk fær hringingu úr þessum númerum, 1-2 stuttar hringingar, og þegar hringt er tilbaka tapar fólk þúsundum króna á þessu eina símtali. 28.10.2008 11:56
Skúrinn var verkfæra- og kaffiskúr - Áverkar ungmennanna alvarlegir Vinnuskúrinn í Grundargerði í Reykjavík, þar sem alvarleg slys urðu á ungmennum eftir gassprengingu í gærkvöldi, var verkfæra- og kaffiskýr fyrir starfsmenn Garðyrkjunnar í Reykjavík. 28.10.2008 11:56
Davíð ekki að íhuga að segja af sér - Krónan enn heppilegur gjaldmiðill Davíð Oddsson, formaður stjórnar Seðlabanka Íslands, segist ekki vera að íhuga að segja af sér sem seðlabankastjóri eins og farið hefur verið fram á í mótmælum að undanförnu. 28.10.2008 11:42
Stýrivaxtahækkun hluti af samkomulagi við IMF Stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands upp í 18 prósent í dag er hluti af samkomulagi sem gert var við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þetta kom fram í máli Davíðs Odddssonar, formanns stjórnar Seðlabankans. 28.10.2008 11:01
Indefence.is í útrás á átta tungumálum Tæplega sextíu þúsund manns hafa nú skráð nafn sitt við þjóðarávarp til Breta á síðunnni Indefence.is. Í ávarpinu er notkun breskra stjórnvalda á hryðjuverkalögum til að frysta eignir íslenskra banka í Bretlandi er mótmælt. 28.10.2008 10:53
Slógust á skemmtistað í Eyjum Lögreglan á Vestmannaeyjum var kölluð að skemmtistað í bænum aðfaranótt laugardagsins vegna líkamsárásar 28.10.2008 10:42
Vilhjálmur: Þetta er hræðilegt „Þetta er meira en ég reiknaði með, þetta er alveg hræðilegt,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins þegar hann er spurður út í stýrivaxtahækkun Seðlabankans. 28.10.2008 10:39
Beðið eftir svörum frá Seðlabanka Evrópu og Bandaríkjanna Seðlabanki Íslands hefur beðið Seðlabanka Evrópu og Bandaríkjanna um lán til þess að takast á við yfirstandandi fjármálaerfiðleika. Frá þessu greindi Geir H. Haarde forsætisráðherra á blaðamannafundi í Helsinki í morgun. 28.10.2008 10:08
Sló mann í höfuðið með glerflösku Sautján ára piltur hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega árás á annan mann á Akureyri í sumar. 28.10.2008 09:52
Dæmd fyrir að reyna að stela lyfjum í íbúðum geðfatlaðra Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt konu í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotist inn í þjónustuíbúðir geðfatlaðra í Vallartúni á Akureyri og leitað þar að lyfjum til að stela. 28.10.2008 09:38
Steingrímur J: Hin kalda hönd IMF er lögst á stýrið Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG óttast að stýrivaxtahækkun Seðlabankans sé aðeins forsmekkurinn af því sem koma skal þegar IMF fer að ráðskast með málin hér á landi. „Ég vissi þetta upp á mína tíu fingur að það yrði mjög stíf krafa af þeirra hálfu að keyra á svona harðlínupeningastefnu og það myndi þýða mjög vonda hluti í vöxtum,“ segir hann. 28.10.2008 09:38
Telur stýrivaxtahækkun skynsamlega til að styðja við krónuna Yngvi Örn Kristinsson, aðalhagfræðingur Landsbankans, telur að sú ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti um sex prósent hafi verið skynsamleg. „Þetta er væntanlegt gert til þess að styðja við gengi krónunnar meðan við förum í gegnum það sem eftir er að verðbólgukúfnum," segir Yngvi. 28.10.2008 09:30
Seðlabankinn hækkar stýrivexti í 18 prósent Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 6 prósentustig, úr tólf prósentum í 18. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. 28.10.2008 09:04
Íslendingar með formennsku í norrænu ráðherranefndinni á næsta ári Íslendingar gegna formennsku í norrænu ráðherranefndinni á næsta ári og mun Geir H. Haarde kynna formennskuáætlunina á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki í dag. 28.10.2008 09:02
Enn engar upplýsingar um tildrög sprengingar Sex unglingar liggja enn á sjúkrahúsi, þar af einn á gjörgæsludeild Landsspítalans, eftir sprengingu sem varð í vinnuskúr borgarinnar í svonefndum Grundargerðisgarði í smáíbúðahverfinu í Reykjavík í gærkvöldi. 28.10.2008 08:30
Óútskýrð ljós sáust á himni Ljósfyrirbrigði sást á himni við suðurströndina undir klukkan ellefu í gærkvöldi og bárust lögreglunni á Hvolsvelli, í Vestmannaeyjum og Veðurstofunni nokkrar tilkynningar um það. 28.10.2008 08:09
Bílbruni við Krókháls Eldur kviknaði í mannlausum bíl sem stóð á bílastæði við Krókháls í Reykjavík í nótt. 28.10.2008 07:08
Undirskriftasöfnun þeirra sem vilja kosningar Vefsíðan kjosa.is hefur verið opnað en þar er að finna undirskriftalista þeirra sem vilja fram fari Alþingiskosningar. 28.10.2008 17:51
Heyrði hrikaleg hljóð og sá blóðuga unglinga Áslaug Þóra Harðardóttir, íbúi í Grundargerði, þar sem eldur kveiknaði út frá gasi í skúr í kvöld sagði í seinnifréttum Ríkissjónvarpsins að hún hafi heyrt mikla sprengingu og talið að um jarðskjálfta hafi verið að ræða. Fljótlega hafi hún áttað sig á því að svo væri ekki því hún heyrði mikil hróp og hrikaleg hljóð. Í framhaldinu hafi blóðug ungmenni flúið frá slysstaðnum. Sjálf hafi hún aðstoðað brennda stúlku. 27.10.2008 22:07
Troðfullt á borgarafundi - Ríkisstjórninni líkt við persónur úr Englum alheimsins Troðfullt var út úr dyrum á opnum borgarfundi sem efnt var til í Iðnó í kvöld þar sem ræða átti stöðu þjóðarinnar. 27.10.2008 21:31
Viðtalið við Björgólf Thor í Kompási Í fréttaskýringaþættinum Kompási var í kvöld rætt við Björgólf Thor Björgólfsson. Þáttinn er hægt að nálgast hér. 27.10.2008 21:47
Bústaðakirkja opnuð í kjölfar gassprengingar Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins beinir þeim tilmælum til þeirra sem voru á slysstað í Grundargerði þegar eldur kveiknaði út frá gasi í skúr í kvöld gefi sig fram og mæti í Bústaðakirkju. Samkvæmt lögreglunnni á höfuðborgarsvæðinu verður upplýsingum safnað saman og sálræn aðstoð veitt. Óljóst er hvort fleiri hafi verið í skúrnum þegar hann sprakk. 27.10.2008 21:39
Hannes Smárason: Of geyst farið í útrásinni Hannes Smárason segist ætla að leggja allt sitt fé í að byggja upp íslenskt samfélag að nýju. Of geyst hafi verið farið í útrásinni en auðvelt sé að gagnrýna það sem aflaga fór eftirá. 27.10.2008 19:00
Mynda starfshóp til að fylgjast með ástandinu á Íslandi Norrænu forsætisráðherrarnir hafa ákveðið að mynda starfshóp sem ætlað er að fylgjast með hverjar þarfir Íslendinga verði eftir að hafa fengið lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. 27.10.2008 22:18
Sex ungmenni flutt á slysadeild með brunasár Sex ungmenni voru fyrir stundu flutt á slysadeild með brunasár eftir að eldur kviknaði að öllum líkindum út frá gasi í litlum skúr í Grundagerði í Reykjavík í kvöld. 27.10.2008 20:35
Þrír af árásarmönnunum á Hverfisgötu handteknir Lögreglan handtók fyrir skömmu þrjá af fjórum árásármönnum sem ruddust inn í hús við Hverfisgötu með bareflum á laugardagskvöldið og börðu fjóra menn sem þar búa. Tveir íbúanna voru fluttir á slysadeild með höfuðáverka. 27.10.2008 20:28
Evróputal er flótti frá raunveruleikanum ,,Mér finnst þetta Evróputal vera flótti frá raunveruleikanum," sagði Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, í Kastljósi í kvöld. 27.10.2008 20:02
Ekkert ferðaveður á Mývatns- og Möðrudalsöræfum Stórhríð er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði og ekkert ferðaveður. Mikið hvassviðri, skafrenningur og éljagangur er víða norðan og austanlands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 27.10.2008 19:34
Vissi ekki af tilboði breskra yfirvalda varðandi Icesave Forsætisráðherra og Seðlabankinn segjast ekki hafa vitað af tilboði breskra fjármálayfirvalda um að færa Icesave reikninga undir breska ábyrgð með hraði. Forsætisráðherra segist ekki hafa vitað um tvö hundruð milljarða punda lánaósk Landsbankans því til tryggingar. Björgólfur Thor Björgólfsson segir bæði forsætisráðherra og Seðlabankann hafa vitað af þessu og fara því með rangt mál. 27.10.2008 19:26
Hagnast vel á síldveiði Hásetahlutur á einu síldveiðiskipanna fór í 4,4 milljónir fyrir einn mánuð nýlega og er þetta hæsti skiptahlutur sem sögur fara af hérlendis. Hásetahlutur fyrir árið í heild stefnir í tuttugu milljónir króna á nokkrum skipanna. 27.10.2008 19:07
Heppin bankastjóri missti af verðlausum kaupum Tæknin kom í veg fyrir hlutabréfakaup Birnu Einarsdóttur, núverandi bankastjóra Nýja Glitnis, í Glitni og um leið í veg fyrir gjaldþrot viðkomandi, sem hefði þýtt að hún mætti ekki sinna starfinu. 27.10.2008 19:00