Innlent

Opið á skíðasvæðinu í Tungudal í dag

MYND/GVA

Skíðasvæði Ísfirðinga í Tungudal var opnað að hluta til í gær en ekki er algengt að hægt sé að opna á þessum tíma árs. Barnalyfta svæðisins var opin milli klukkan 17 og 19 og verður það aftur í dag eftir því sem segir í tilkynningu Ísafjarðarbæjar.

Starfsfólk vinnur nú að því að setja upp höldur í Sandfells- og Miðfellslyftum og ætti að takast að opna þær á næstu dögum ef veður setur ekki stórt strik í reikninginn. Starfsfólk á eftir að troða svæðið í efri lyftum og má búast við að það eigi eftir að taka einhvern tíma. Ákveðið hefur verið að rukka ekki í lyftur svæðisins í þessari viku þar sem ekki verður boðið upp á fulla þjónustu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×