Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þriðjungur naugripabænda að komast í veruleg vandræði Um þriðjungur nautgripabænda er að komast í veruleg vandræði vegna hruns krónunnar. Það er alvarlegt mál nú þegar þörfin á íslenskum landbúnaðarvörum er meiri en nokkru sinni, segir búnaðarráðgjafi. 14.10.2008 12:17
Vonast eftir vaxtalækkun á næstunni Ríkisstjórnin vonast eftir að vaxtalækkun á næstunni og viðskiptaráðherra telur að hún geti orðið myndarleg. Forsætisráðherra segir að útlfytjendur hafi ekki flutt gjaldeyri heim og skorar á þá að gera það. 14.10.2008 12:03
Forsetinn frestar opinberri heimsókn til Þýskalands Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur í samráði við ríkisstjórnina ákveðið að fresta opinberri heimsókn sinni til Þýskalands, en hún var fyrirhuguð síðar í þessum mánuði. 14.10.2008 11:58
Neyslan minnkar en verðið hækkar Velta í dagvöruverslun dróst saman um 2,6 prósent á föstu verðlagi í september miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í nýjnum tölum frá Rannsóknarsetir verslunnarinnar. 14.10.2008 11:50
Vilja stóraukna markaðsherferð fyrir ferðaþjónustu Samtök ferðaþjónustunnar hvetja til stóraukinnar markaðsherferðar á erlendum mörkuðum svo strax sé hægt að auka gjaldeyrisflæði inn til landsins. 14.10.2008 11:28
Gengið lék greiðslukortanotendur í útlöndum grátt Gengi krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum sveiflaðist um allt að 50 prósent í síðustu viku, greiðslukortanotendum í útlöndum til mikillar armæðu. Þetta kemur fram á vef Neytendasamtakanna. 14.10.2008 11:23
Vel tekið á móti íslensku sendinefndinni í Moskvu Íslenska sendinefndin í Moskvu hefur fengið „frábærar móttökur“ í rússneska fjármálaráðuneytinu í morgun, að því er fréttastofa Reuters hefur eftir forsvarsmanni samninganefndarinnar Sturlu Pálssyni. Enn hefur ekki verið rætt um upphæð lánsins en í síðustu viku var tilkynnt um að Íslendingum stæði til boða lán upp á fjóra millarða evra frá Rússum. Gert er ráð fyrir að viðræður standi yfir fram á fimmtudag. 14.10.2008 11:16
Strandgæslusamstarf við Norðmenn Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Thrond Grytting, aðmíráll og yfirmaður heraflans í Norður Noregi, undirrituðu í síðustu viku samkomulag um samstarf á sviði strandgæslu, öryggismála, leitar og björgunar. 14.10.2008 11:12
Allt mælir með lagabreytingum til að auðvelda útflutning bíla Framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins segir að allt mæli með því að lögum verði breytt á þann veg að auðveldara verði að flytja notaða bíla úr landi. Með því megi meðal annars afla aukins gjaldeyris og flýta fyrir komu umhverfisvænni bifreiða í umferðina. 14.10.2008 11:03
Flóttafólkinu á Akranesi farnast vel - Mæðurnar í blaki Daglegt líf palestínska flóttafólksins sem kom til landsins fyrir rúmum mánuði gengur afar vel, að sögn Lindu Bjarkar Guðrúnardóttur verkefnastjóra hjá Akranesbæ. 14.10.2008 10:57
Krefja stjórnvöld um réttlát námslán Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að ríkisstjórn og yfirmenn banka landsins geri námsmönnum og öðrum sem staddir eru erlendis kleift að kaupa gjaldeyri og að námslán frá Lánasjóði íslenskra námsmanna verði greidd út mánaðarlega. 14.10.2008 10:21
Varað við hálku og hálkublettum víða um land Varað er við hálku og hálkublettum víða á landinu. Á Suðurlandi eru hálkublettir frá Selfossi og austur að Hvolsvelli og á Norðurlandi eru hálkublettir á Öxnadalsheiði og hálka er um Lágheiði. 14.10.2008 09:10
Mun færri ættleiddir í fyrra en árin á undan Umtalsvert færri einstaklingar voru ættleiddir hér á landi í fyrra miðað við árin á undan. 14.10.2008 09:06
Tveimur bílum stolið fyrir norðan Tveimur bílum var stoðið í umdæmi lögreglunnar á Akureyri í gær og fundust þeir báðir í nótt. 14.10.2008 07:25
Efnahagsáætlun í smíðum vegna viðræðna við IMF Íslensk stjórnvöld vinna nú að efnahagsáætlun sem lögð verður til grundvallar í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF). 14.10.2008 07:23
Samfylkingarmenn á Akureyri lýsa yfir stuðningi við sjónarmið Ingibjargar Sólrúnar Jafnaðarmenn á Akureyri lýsa yfir fullum stuðningi við þau sjónarmið sem formaður flokksins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur nýverið sett fram um Evrópusambandið. 13.10.2008 22:49
Á von á tíðindum í þessari viku „Ef við leitum til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á ég ekki von á öðru en að okkur verði tekið ágætlega," segir Árni Mathiesen fjármálaráðherra. Árni er staddur á ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem haldinn er í Washington. Hann tekur þó fram að enn sé ekki búið að taka ákvörðun um að leita eftir aðstoð. 13.10.2008 18:04
Dyravörður dæmdur fyrir kjaftshögg Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa í starfi sem dyravörður á veitingastað á Reyðarfirði slegið annan mann hnefahögg í andlitið þannig að hliðarframtönn brotnaði. 13.10.2008 20:48
Námsmenn erlendis enn í vandræðum með millifærslur Þrátt fyrir fyrirheit forsætisráðherra um að gjaldeyrisviðskipti séu að komast í eðlilegt horf geta námsmenn í útlöndum enn ekki fengið millifærslur frá íslenskum bönkum og kaupmenn ekki leyst út vörur frá birgjum. 13.10.2008 19:13
Atvinnuleysi eykst í október Rúmlega þrjúþúsnd einstaklingar eru atvinnulausir á Íslandi í dag. Þetta eru tæplega þúsund fleiri en voru atvinnulausir að meðaltali í síðasta mánuði en þá var atvinnuleysi á Íslandi 1,3%. Á höfuðborgarsvæðinu eru 1.935 einstaklingar skráðir atvinnulausir. Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunnar. 13.10.2008 16:33
ASÍ kemur á fót sérstakri aðgerðastjórn vegna efnahagsástands Alþýðusamband Íslands hefur komið á fót sérstakri aðgerðarstjórn með þátttöku landssambanda og stærstu félaga innan hreyfingarinnar. 13.10.2008 16:26
Mosfellsbær opnar ráðgjafartorg Vegna sérstakra aðstæðna í þjóðfélaginu hefur Mosfellbær í samráði við ýmsa aðila í bæjarfélaginu opnað ráðgjafartorg. ,,Markmiðið með ráðgjafartorginu er að samræma þjónustu og auðvelda aðgang að þjónustu og ráðgjöf á vegum aðila í Mosfellsbæ," segir í tilkynningu. 13.10.2008 16:22
Sektaður fyrir vörslu fíkniefna Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sektað karlmanna um rúmar 80 þúsund krónur fyrir að hafa í tvígang í desember í fyrra verið gripinn með hass í miðborginni. 13.10.2008 16:21
Vg vill tafarlausa rannsókn á viðskiptum bankastjórnenda Þingflokkur Vinstri - grænna hefur sent skilanefndum bankanna þriggja, Glitnis, Kaupþings og Landsbankans, bréf þar sem þess er krafist að þær beiti sér fyrir því að tafarlaust fari fram fari ítarleg rannsókn á öllum viðskiptum stærstu eigenda nefndra banka, bankaráðsmanna, bankastjóra og æðstu stjórnenda síðastliðna 12 mánuði, þar með töldum viðskiptum með hlutabréf. 13.10.2008 16:14
,,Það er allt í góðu lagi á Bakka" Umhverfismat fyrir Bakkaálver er í eðlilegu ferli, að sögn umhverfisráðherra. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði Þórunni á Alþingi fyrr í dag hvort það komi til greina að hennar hálfu að draga til baka ákvörðun um heilstætt umhverfismat vegna fyrirhugaðs álvers á Bakka. 13.10.2008 15:48
Vegurinn um Hólmaháls opnaður á ný Lögregla á Eskifirði hefur opnað á ný veginn um Hólmaháls en þar fór olíuflutningabíll út af veginum um hádegisbil. 13.10.2008 15:46
Vill greiða fyrir útflutningi bíla Geir H. Haarde forsætisráðherra vill að greitt verði fyrir því að hægt verði að flytja úr landi bíla sem í ljós hefur komið að ekki er þörf fyrir í landinu. Þetta sagði hann í svari við fyrirspurn varaþingmannsins Sigríðar Andersen úr Sjálfstæðisflokknum. 13.10.2008 15:35
Geir ósammála Ingibjörgu um ESB og fortíðina Geir H. Haarde forsætisráðherrra er ósammála Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra um að það jafngildi því að fara aftur til fortíðar að vilja ekki ganga í ESB. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins. 13.10.2008 15:19
Ríkisendurskoðun fylgist með ráðstöfun bankafjár Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur sent forseta Alþingis og forsætisnefnd þingsins bréf þar sem farið er fram á að Ríkisendurskoðun verði tafarlaust falið að kanna með hvaða hætti stofnunin skuli nú koma sem endurskoðunar- og eftirlitsaðili að ráðstöfun þeirra miklu fjármuna sem nú séu komnir í ríkisins hendur með yfirtöku bankanna. 13.10.2008 14:49
Bretar lána Landsbankanum hundrað milljónir punda Bresk stjórnvöld ætla að lána Landsbankanum hundrað milljónir punda, jafnvirði um 20 milljarða króna, til þess að sjá til þess að breskir viðskiptavinir bankans fái þá fjármuni sem þeir lögðu í bankanna aftur. 13.10.2008 14:35
Segir gróðahyggju vera sökudólginn Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, segir að samfélagið hafi orðið fyrir áfalli og standi á krossgötum. Sökudólgurinn er að hans mati ekki einhver einn eða nokkrir einstaklingar heldur hugmyndafræði og pólitísk stefna. 13.10.2008 13:58
Fimm þúsund lítrar láku úr olíubíl Talið er að fimm þúsund lítrar af svartolíu hafi lekið úr olíubíl sem valt á veginum um Hólmaháls milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar um hádegisbil í dag. 13.10.2008 13:47
Skemmdarvargar og þjófar á ferð á Suðurlandi Nokkuð var um skemmdarverk og þjófnaði í umdæmi lögreglunnar á Selfossi um helgina og í nótt. Þannig var brotist inn í tískuverslunina Lindina á Selfossi í nótt og skiptimynt stolið úr peningakassa. 13.10.2008 12:55
Olíubíll valt á Hólmahálsi Vegurinn um Hólmaháls milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar er lokaður sem stendur eftir að olíubíll valt á hálsinum. Ekki hafa fengist upplýsingar um hugsanleg meiðsl eða tjón en Vegagerðin segir óvíst hversu lengi vegurinn verður lokaður. 13.10.2008 12:42
Útilokar ekki aðkomu IMF Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins telur ólíklegt að flokkurinn breyti um stefnu í Evrópumálum. Arnbjörg Sveinsdóttiir útilokar ekki að stjórnvöld biðji Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um efnahagsaðstoð. 13.10.2008 12:34
Ekki búist við jafnharkalegum skelli hjá Glitni og Landsbankanum Uppsagnir eru yfirvofandi hjá Glitni og búist við að tilkynnt verði um þær í dag eða á morgun. Mikil óvissa er sögð ríkja meðal starfsfólks bankans. 13.10.2008 12:28
Höfum fjórum sinnum leitað til IMF Fjármálráðherra segir það ekki koma í ljós fyrr en í næstu viku hvort sótt verður um aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 13.10.2008 12:19
SI vilja að aðföng og hráefni fyrir iðnað verði tryggð Samtök iðnaðarins hafa óskað eftir því við Seðlabanka Íslands og bankastofnanir að gjaldeyrisskömtun sem gripið var til á föstudag bitni ekki íslenskum iðnaði sem í senn spari og afli þjóðinni nauðsynlegs gjaldeyris. 13.10.2008 12:07
Fjórir fíkniefnasalar handteknir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á föstudag fjóra karlmenn milli tvítugs og þrítugs í aðgerðum gegn sölu og dreifingu ólöglegra fíkniefna. 13.10.2008 11:59
Samkomulag um sundlaug Lilju Pálma Guðmundur Guðlaugsson sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar og fulltrúar frá verktakafyrirtækinu Sveinbjörn Sigurðsson hf. undirrituðu sl. föstudag samning um að fyrirtækið byggi sundlaug í Hofsósi. 13.10.2008 11:52
Skúlagötumál enn í rannsókn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsóknar enn andlát manns sem fannst í íbúð sinni við Skúlagötu í Reykjavík 1. september. Hinn látni var 68 ára gamall karlmaður og bjó hann einn. 13.10.2008 11:06
Fyrirtæki hafi samband við sendiráð Breta Fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins sem lent hafa í vandræðum með samskipti við bresk fyrirtæki og bankastofnanir er bent á að upplýsa breska sendiherrann á Íslandi um málið. 13.10.2008 09:34
Röng tilkynning um jarðarför Þau leiðu mistök urðu hjá Morgunblaðinu að jarðarför Gunnars Bæringssonar var auglýst í dag kl. 13. 13.10.2008 09:08
Kröfur um afsögn Seðlabankastjórnar rata í erlendar fréttir Krafa um afsögn bankastjórnar Seðlabankans hefur ratað í fréttir fyrir utan landsteinana. 13.10.2008 08:53
Íslenska sendinefndin flogin til Moskvu Sendinefnd á vegum Seðlabankans hélt í morgun áleiðis til Moskvu þar sem til stendur að taka lán upp á fjóra milljarða evra hjá Rússum. Í byrjun síðustu viku var fyrst greint frá láninu og sagt að allt væri klappað og klárt. 13.10.2008 08:46