Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forsetinn stappar stálinu í landsmenn Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hyggst stappa stálinu í landsmenn með því að heimsækja á næstu dögum vinnustaði, skóla, samfélagsstofnanir, byggðarlög og hjálparmiðstöðvar. 12.10.2008 19:27
Skaftárhlaup með þeim stærstu í manna minnum Hlaupið í Skaftá er með þeim stærstu í manna minnum. Það á upptök sín í hitakatli undir Vatnajökli og sendir nú tuttugufalt meðalrennsli niður eftir farveginum til sjávar. Búist er við að flóðið nái hámarki í byggð í kvöld en þegar sjást merki þess að byrjað sé að sljákka í ánni inni á hálendi. 12.10.2008 19:04
„Ég reiddist bara fyrir hönd þjóðarinnar" „Já já já, þetta var flottur þáttur,“ sagði Egill Helgason í Silfrinu inntur eftir því hvort hann hafi verið ánægður með þáttinn í dag. Óhætt er að segja það bókstaflega að sínum augum líti hver Silfrið eftir einvígi þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, stjórnarformanns Baugs, í þættinum. 12.10.2008 17:07
Stefnt að því að ráða nýjan forstjóra Landsvirkjunar í mánuðinum Búið er að ræða við nokkra umsækjendur um forstjórastarfið í Landsvirkjun, að sögn Ingimundar Sigurpálssonar stjórnarformanns Landsvirkjunar. 12.10.2008 16:41
Forsetinn sækir Íslendinga heim Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heimsækir á næstu dögum vinnustaði, skóla, samfélagsstofnanir, byggðarlög og hjálparmiðstöðvar. 12.10.2008 15:27
Færeyski togarinn í höfn Varðskipið Týr kom fyrir stundu til Reykjavíkur með færeyska togarann Rasmus Effersöe í togi eftir fjögurra daga siglingu skipanna frá austurströnd Grænlands. 12.10.2008 14:37
Aðgerðir vegna greiðsluerfiðleika kynnt hjá ÍLS á næstunni Aðgerðir til að stoða þá sem eiga í greiðsluerfiðleikum hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) verða kynntar á næstu dögum. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra í Silfri Egils. 12.10.2008 14:02
Töldu fullvíst að Kjartan væri að tala um Davíð Yfirlýsing Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, um að hann hafi í ræðu sinni á flokksráðsfundi í gær ekki gagnrýnt Davíð Oddsson kom fundargestum á óvart. Þeir töldu fullvíst að hann væri að tala um Davíð þegar hann frábað sér að vera kallaður óreiðumaður. 12.10.2008 12:14
Hið stóra bókhald guðdómsins „Öll erum við veitendur og þiggjendur í hinu stóra bókhaldi guðdómsins. Nú er tími umhyggju og samstöðu. Síðar kemur að tíma uppgjörsins þegar reikningar verða greiddir og sagan skrifuð,“ sagði biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, í messu í Seltjarnarneskirkju klukkan 11 í morgun. 12.10.2008 11:51
Þorgerður Katrín kallar eftir stöðugleika Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að umræða um tengsl Íslendinga við Evrópusambandið verði ekki lengur háð á sömu forsendum og verið hafi til þessa. 12.10.2008 10:58
Eldur í ruslagámi við Hólabrekkuskóla Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins slökkti eld í ruslagámi við Hólabrekkuskóla í Breiðholti í nótt auk þess að dæla vatni út úr íbúðarhúsnæði við Skúlagötu 12.10.2008 10:09
Sex grunaðir um ölvunar- eða fíkniefnaakstur í Borgarnesi Lögregla í Borgarnesi hafði í nógu að snúast frá klukkan þrjú í nótt. Þá voru afskipti höfð af einum ökumanni sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. 12.10.2008 09:50
Nokkuð um ölvunarakstur í nótt Talsvert var af fólki í miðbæ Reykjavíkur í nótt en ölvun lítil að sögn lögreglu. Sex manns eru grunaðir um ölvunarakstur eftir nóttina og einn um akstur undir áhrifum fíkniefna. 12.10.2008 09:39
Kreppan stórbætir umferðarmenningu Lögreglan á Blönduósi stöðvaði ekki einn einasta ökumann fyrir of hraðan akstur í dag. Þegar vakthafandi varðstjóri var inntur skýringa á því hvað slík rólegheit ættu að þýða hjá frægustu hraðagildru landsins 11.10.2008 20:43
Fylgdu manni inn í íbúð og réðust á hann Tveir menn voru handteknir í dag eftir að hafa veist að 37 ára gömlum manni á heimili hans við Tunguveg í Reykjavík upp úr hádegi. 11.10.2008 20:02
Ingibjörg Sólrún heim í næstu viku Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra er væntanleg til landsins um miðja næstu viku. Niðurstöður rannsókna sem hún gekkst undir í gær voru góðar, að sögn Kristrúnar Heimisdóttur, aðstoðarmanns hennar, og töldu læknar því að henni væri óhætt að ferðast heim. 11.10.2008 19:07
Rennsli Skaftár sextánfaldast Rennsli Skaftár hefur sextánfaldast frá því að hlaup hófst í ánni í morgun og mældist nú síðdegis 1.100 rúmmetrar á sekúndu við Sveinstind. 11.10.2008 19:03
Segja Háskólann í Reykjavík ekki á flæðiskeri staddan „Háskólinn í Reykjavík hefur safnað mjög sterkum sjóðum á seinustu tveimur árum og innan við fimm prósent af tekjum skólans hafa komið frá aðilum sem hafa lagt upp laupana síðustu daga 11.10.2008 17:39
Vilja Sparisjóð Mýrasýslu aftur Byggðaráð Borgarbyggðar hefur óskað eftir viðræðum við ríkisstjórn Íslands um framtíð Sparisjóðs Mýrasýslu með það í huga að færa eignarhaldið aftur heim í hérað. Þetta er gert í ljósi þess hvernig staða Kaupþings er nú og að stofnuð hefur verið skilanefnd yfir bankann innanlands. 11.10.2008 15:36
Mannið ykkur upp og styðjið Íslendinga Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Noregi, Siv Jensen, formaður Framfaraflokksins, lýsti í ræðu á flokksráðstefnu í Björgvin í dag, miklum áhyggjum vegna væntanlegs risaláns Íslands frá Rússlandi og taldi að það gæti haft alvarlegar pólitískar afleiðingar fyrir norðurslóðir. 11.10.2008 15:33
Kraumandi ferðatilboð til ódýrustu höfuðborgar norðursins Reykjavík er orðin ódýrasta höfuðborg á Norðurlöndum í kjölfar hinna efnahagslegu hamfara sem Ísland hefur sætt og vefútgáfa Jyllandsposten danska gerir sér mat úr þessu með því að hafa ferðaábendingu vikunnar Íslandsferð. 11.10.2008 15:23
Gæsluvarðhald í 190 kílóa málinu framlengt um sex vikur Gæsluvarðhaldsúrskurðir yfir hollenskum karlmanni og Íslendingi, sem grunaðir eru um að hafa staðið að smygli á rúmum 190 kílógrömmum af fíkniefnum 10. júní síðastliðinn 11.10.2008 14:52
Geir sakar bresk stjórnvöld um að knésetja Kaupþing Forsætisráðherra sakar bresk stjórnvöld um að hafa gert aðför að Íslendingum síðustu daga og knésett Kaupþing. Hann ræddi við flokksmenn sína í Valhöll í morgun. 11.10.2008 13:49
Nýja-Ísland, hvenær kemur þú? „Getum við byrjað að reka Nýja-Ísland með gamla gjaldmiðlinum?“ spurði Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins, í viðtali við Björn Inga Hrafnsson í þættinum Markaðurinn með Birni Inga nú fyrir hádegið. 11.10.2008 12:37
Stórt Skaftárhlaup hafið úr eystri katli Hlaup er hafið í Skaftá og er um stórt hlaup að ræða úr eystri katlinum. Að sögn Snorra Zóphóníassonar hjá Vatnamælingum gaf sjálfvirkur mælir við Sveinstind aðvörun klukkan sjö í morgun. 11.10.2008 11:37
Slasaðist er heimatilbúinn flugeldur sprakk Maður um tvítugt slasaðist töluvert á hendi og hlaut skurð á enni þegar heimatilbúinn flugeldur sprakk í höndum hans í Hafnarfirði um ellefuleytið í gærkvöldi. 11.10.2008 10:20
Eldur í gaskút í garðhúsi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að heimahúsi í Hafnarfirði um fjögurleytið í nótt vegna elds í garðhúsi. Kviknaði hafði í gaskút í garðhúsinu og brotnuðu nokkrar rúður. 11.10.2008 09:52
Skírteinið upptækt eftir ofsahraða á Sæbrautinni Einn var tekinn fyrir of hraðan akstur á Sæbrautinni í nótt. Hann ók á 121 kílómetra hraða miðað við klukkustund en hámarkshraði þar er 60. Ökumaðurinn er nítján ára og bíður hans sekt og ökuleyfissvipting. 11.10.2008 09:48
Hraðakstur og innbrot í umdæmi Borgarneslögreglu Lögreglan í Borgarnesi hafði afskipti af einum ökumanni í nótt vegna gruns um ölvun við akstur. Þá varð þriggja bíla árekstur við Hvalfjarðargöngin í gærkvöldi en þar var að sögn lögreglu aðeins um minni háttar nudd að ræða. 11.10.2008 09:45
Lögreglan leitar enn að strokupilti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að Viðari Marel Magnússyni en ýst var eftir Viðari í gærkvöldi. Ekki hefur lögreglu tekist að hafa upp á Viðari en vitað er af honum einhversstaðar á höfuðborgarsvæðinu. 10.10.2008 21:09
Hollendingur hringdi í Björn Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra segist hafa fengið símtal frá Hollendingi síðdegis á bloggsíðu sinni í kvöld. Hann segir Hollendinginn hafa lýst því hversu illa væri talað um Ísland og Íslendinga í Hollandi. 10.10.2008 20:45
„Sjaldan hafa orð valdið jafnmiklum skaða“ Skúli Helgason framkvæmdarstjóri Samfylkingarinnar segir að sjaldan hafi orð valdið jafnmiklum skaða í íslensku samfélagi en þau orð sem Davíð Oddsson lét falla í eftirminnilegum Kastljósþætti í vikunni. Hann segir skaðann hlaupa á þúsundum milljarða króna. 10.10.2008 20:39
Aðalhagfræðingur IMF vonar að Ísland þiggi aðstoð Gylfi Zoega prófessor í þjóðhagfræði sagði í fréttum Sjónvarpsins nú í kvöld að aðalhagfræðingur Alþjóða gjaldeyrissjóðsins væri boðinn og búinn að veita íslendingum hjálp á þessum erfiðu tímum. Hann sagði aðalhagfræðingin einnig vona að íslendingar þegðu hjálp sjóðsins. 10.10.2008 19:13
Íbúi á Skagaströnd vann 45 milljónir í Happdrætti Háskólans Einstaklingur á Skagaströnd fékk þau gleðilegu tíðindi í kvöld að hann hefði unnið 45 milljónir í aðalútdrætti Happdrættis Háskóla Íslands. Hæsti vinningur hjá Happdrætti Háskólans er 5 milljónir á einfaldan miða, en þar sem hinn heppni hafði keypt fimmfaldan miða auk fjögurra einfaldra á sama númer varð heildarvinningsfjárhæðin 45 milljónir. 10.10.2008 19:28
Íslendingar prjóna sig út úr kreppunni Margir landsmenn virðast bregðast við kreppunni með því að prjóna. Sala á garni og lopa í hannyrðaverslunum hefur tekið kipp síðustu daga og í gær var slegið met í versluninni Tinnu þegar selt var garn sem dugar í 244 peysur. 10.10.2008 18:48
Gjaldeyrishöft tekin upp eftir tveggja áratuga hlé Gjaldeyrishöft voru tekin upp í landinu að nýju í dag eftir tveggja áratuga hlé. Gjaldeyrir fyrir mat, lyfjum, olíuvörum og opinberum kostnað erlendis nýtur forgangs. 10.10.2008 18:42
Philip Green á Íslandi - fundaði með viðskiptaráðherra Philip Green, einn ríkasti maður Bretlands, fundaði ásamt Baugsmönnum með viðskiptaráðherra í dag. Stjórnarformaður Baugs segir fyrirtækið skaðast vegna milliríkjadeilu Íslands og Bretlands. 10.10.2008 18:30
Hótar breskum yfirvöldum málsókn Ísland er ekki gjaldþrota eru skilaboð Geirs Haarde forsætisráðherra til íslensku þjóðarinnar, nú þegar íslenskt efnahagslíf er í frjálsu falli Hann hótar því að Íslendingar fari í mál við bresk stjórnvöld vegna skaða sem ummæli þeirra og aðgerðir hafa valdið. 10.10.2008 18:30
Beðið með að taka ákvörðun um IMF Engar ákvarðanir munu verða teknar um aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fyrr en Árni Mathiesen snýr aftir til baka frá Washington þar sem hann sækir ársfund sjóðsins og Alþjóðabankans. Árni mun þó ekki vera í samningaviðræðum ytra heldur aðeins hitta menn og ræða málin. 10.10.2008 17:18
Ísland kynnt sem ódýr áfangastaður á CNN Fjallað var um Ísland sem ódýran ferðamannastað á bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN í gær. Þar var bent á að fjármálakreppan hefði leitt til þess að íslenska krónan hefði hrunið, mörgum ferðamönnum til mikillar ánægju. Þrátt fyrir að landið sé að verða fórnarlamb lausafjárkreppunnar þá segi forsvarsmenn ferðaþjónustunnar að allt starfi eðlilega hér á landi. 10.10.2008 16:49
Nýr Glitnir verður til um helgina Nýr Glitnir verður til með formlegum hætti um helgina og nýr bankastjóri settur. Hið sama mun gerast með Kaupþing á fyrstu dögum í næstu viku. Þetta kom fram í máli Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra á blaðamannafundi hans og Geirs Haarde nú klukkan fjögur. 10.10.2008 16:27
Brown vill leysa deiluna við Íslendinga Geir H. Haarde forsætisráðherra fékk í dag bréf frá Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, þar sem hann lýsir vilja til þess að leysa deilur landanna vegna íslenskra banka í Bretlandi. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsætisráðherra í Iðnó í dag. 10.10.2008 16:00
Tryggt verði að grunnþjónusta hins opinbera skerðist ekki Samgönguráðherra og stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hafa sent frá sér yfirlýsingu um að tryggja verði að grunnþjónusta hins opinbera skerðist ekki þrátt fyrir tekjusamdrátt og kostnaðarhækkanir. 10.10.2008 15:52
Strokufangar af Litla-Hrauni dæmdir Tveir karlar hafa verið dæmdir í sex og átta mánaða fangelsi fyrir að hafa strokið af Litla-Hrauni og að hafa í framhaldinu stolið ýmsum munum og einnig bíl . Þeir voru gripnir á höfuðborgarsvæðinu eftir flóttatilraun sína. Hún átti sér stað 3. október í fyrra. 10.10.2008 15:45
Sigurjón kveður Sigurjón Árnason fyrrverandi bankastjóri Landsbankans kvaddi samstarfólk sitt í dag og sendi öllum starfsmönnum bankans tölvupóst. 10.10.2008 15:42