Fleiri fréttir Á þriðja tug manna slasaðir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir segir að á þriðja tug manna hafi slasast í jarðskjálftanum í dag. Enginn þó alvarlega svo vitað sé. Meiðslin eru allt frá skrámum og skurðum til beinbrota. 29.5.2008 20:06 Einangrunarföngum ekki hleypt út á Litla-Hrauni Fangi á Litla-Hrauni hafði samband við Vísi og vildi koma því á framfæri að ekki hafi öllum föngum í fangelsinu verið hleypt út en fyrr í dag greindi Vísir frá því að fangar hefðu verið fluttir út undir bert loft af ótta við frekari skjálfta á svæðinu. Hann var ósáttur við það og sagðist ósáttur við það sem hann kallaði mismunnun af hálfu stjórnenda fangelsins. 29.5.2008 19:51 29.5.2008 19:49
Sjá næstu 50 fréttir
Á þriðja tug manna slasaðir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir segir að á þriðja tug manna hafi slasast í jarðskjálftanum í dag. Enginn þó alvarlega svo vitað sé. Meiðslin eru allt frá skrámum og skurðum til beinbrota. 29.5.2008 20:06
Einangrunarföngum ekki hleypt út á Litla-Hrauni Fangi á Litla-Hrauni hafði samband við Vísi og vildi koma því á framfæri að ekki hafi öllum föngum í fangelsinu verið hleypt út en fyrr í dag greindi Vísir frá því að fangar hefðu verið fluttir út undir bert loft af ótta við frekari skjálfta á svæðinu. Hann var ósáttur við það og sagðist ósáttur við það sem hann kallaði mismunnun af hálfu stjórnenda fangelsins. 29.5.2008 19:51
Mikið tjón í Heiðarbrún í Hveragerði Þau Ingibjörg Garðarsdóttir og Róbert Hlöðversson eru búsett á Heiðarbrún 66 í Hveragerði en í þeirri götu virðist einna mesta eignatjónið í skjálftanum átt sér stað. Ingibjörg segist blessunarlega hafa verið stödd út á götu þegar skjálftinn reið yfir. Hún segist ekki hafa heyrt af meiðslum hjá þeim sem búsettir eru í götunni en tjónið er gífurlegt. 29.5.2008 19:12
300 björgunarsveitarmenn að störfum í Árnessýslu Yfir 300 björgunarsveitarmenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru nú að störfum á jarðskjálftasvæðinu í Árnessýslu. Flutt hafa verið tjöld og greiningastöðvar á svæðið. 29.5.2008 19:01
Stærstu eftirskjálftarnir yfir 4 á Richter Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hefur mikið af eftirskjálftum riðið yfir Suðurland eftir stóra skjálftann síðdegis. 29.5.2008 18:56
Fólk byrjað að tjalda á Eyrarbakka „Það allt í rúst, gersamlega allt í rúst," segir Róbert Guðmundsson íbúi á Eyrarbakka. Stofan hans er illa farið og segir hann að 32" sjónvarp hafi farið um koll og eins metra hátalarabox hafi tekið loftköstum. 29.5.2008 18:54
Öllum föngum á Litla Hrauni skipað að yfirgefa fangelsið Allir fangar í fangelsinu á Litla - Hrauni auk starfsfólks hefur safnast saman fyrir utan fangelsið vegna jarðskjáltans sem reið yfir nú fyrir skömmu. 29.5.2008 18:44
Heilsuhælið rýmt - Neyðartjöldum komið fyrir við Hótel Örk Heilsuhælið á Hveragerði var rýmt í dag skömmu eftir að jarðskjálftinn reið yfir. Sæmundur Ingibjartsson yfirsmiður á hælinu segir að rúmlega 130 manns hafi verið á hælinu þegar skjálftinn reið yfir en enginn hafi slasast. Flestir vistmenn eru farnir til síns heima. 29.5.2008 18:41
Sjúkrahúsið á Selfossi rýmt Heilbrigðisstofnun Suðurlands hefur verið rýmd vegna hættu á öðrum stórum skjálfta. Verið er að fara með fólk út í rútur en flestir halda þó ró sinni. 29.5.2008 18:33
Búið að opna Óseyrarbrú Aðeins Óseyrarbrú hefur verið lokað eftir skjálftann síðdegis en aðrir vegir eru opnir. Greinilegar skemmdir hafa orðið á brúnni en hún hefur nú verið opnuð. 29.5.2008 18:27
TM og Vís biðja fólk að taka myndir af skemmdum Tryggingamiðstöðin vill benda fólki sem orðið hefur fyrir tjóni af völdum jarðskjálfta á að taka ljósmyndir af skemmdunum og tilkynna tryggingafélagi sínu þær sem fyrst. Þegar málið hefur verið skoðað af tryggingafélagi ákvarða Viðlagasjóður og tryggingafélag næstu skref. 29.5.2008 18:23
Voru nýkomin úr hestaferð þegar skjálftinn reið yfir Fólk á vegum Eldhesta í Hveragerði var nýkomið úr hestaferð þegar skjálftinn reið yfir um fjögurleytið í dag. 29.5.2008 18:13
Rauði krossinn virkjar Hjálparsímann 1717 Rauði kross Íslands hefur virkjað neyðarvarnarkerfi sitt og opnað fjöldahjálparstöðvar í Hveragerði og Selfossi. Þá hefur Hjálparsíminn 1717 verið opnaður fyrir aðstandendur sem vilja spyrjast fyrir um afdrif skyldmenna. 29.5.2008 18:03
Staðfesti sýknudóm í fíkniefnabrotamáli Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm héraðsdóms yfir tveimur mönnum sem ákærðir voru fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot framið í ágóðaskyni. Öðrum manninum var gefið að sök að hafa flutt til landsins um 3,8 kíló af kókaíni, ætlað til söludreifingar. 29.5.2008 17:45
Rauði krossinn tekur á móti fólki við Hótel Örk Í Hveragerði getur fólk safnast saman á bílaplaninu nálægt Hótel Örk og mun viðbragðshópur Rauða krossins koma þangað innan stundar með aðstöðu.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björgum. 29.5.2008 17:21
Hæstiréttur þyngir dóm yfir kynferðisbrotamanni Hæstiréttur Íslands þyngdi í dag dóm yfir kynferðisbrotamanninum Anthony Lee Bellere. Anthony fékk fjögurra ára dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot gegn þremur stúlkum en Hæstiréttur þyngdi dóminn í dag í fimm ár. 29.5.2008 17:16
Mikið tjón í Eden en í lagi með Bóbó Sveingbjörg Guðnadóttir verslunarstjóri í Eden í Hveragerði segir allt vera í rúst í búðinni. „Það bara hrundi allt niður sem gat hrunið,“ segir Sveinbjörg sem segir þennan skjálfta þann stærsta sem hún hefur upplifað. Búðinni var lokað í kjölfarið. 29.5.2008 17:11
Stöðugt leitað eftir læknishjálp vegna skjálftans Stöðugur straumur fólks hefur verið á heilsugæslustöðina í Hveragerði frá því að skjálftinn reið yfir. 29.5.2008 17:10
Farsímakerfið liggur niðri við Þingvallavatn og Úlfljótsvatn Farsímakerfið liggur niðri við Þingvallavatn og Úlfljótsvatn. Að sögn Almannavarna fór ljósleiðari í sundur við Ljósafossvirkjun. Fólk er beðið um að nota ekki farsíma nema í ítrustu neyð. 29.5.2008 16:59
Lögreglan keyrir um með gjallarhorn í Hveragerði Lögreglan keyrir um götur Hveragerðis og biður fólk um að vera utandyra. Hætta er á eftirskjálftum og er fólk í nágrenninu beðið um að halda sig utandyra 29.5.2008 16:58
„Það bara fór allt á hliðina“ „Það bara fór allt á hliðina," segir Lárus Bjarnasoníbúi á Selfossi sem sendi Vísi myndir af heimili sínu eftir skjálftann. 29.5.2008 16:52
Allir í lagi á Sólheimum Guðmundur Ármann Pétursson forstöðumaður á Sólheimum vildi koma því á framfæri að enginn hefði slasast á Sólheimum í Grímsnesi. 29.5.2008 16:40
Fjöldahjálparstöð sett upp á Selfossi Fréttir berast nú af því að nokkrir hafi slasast á Selfossi og víðar á Suðurlandi af völdum skjálftans í dag. Samkvæmt Almannavörnum voru þeir fluttir á heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi en læknar þar eru hræddir um að skemmdir hafi orðið á byggingunni og því er ekki óhætt að taka við sjúklingum. Bygginging mun vera töluvert mikið skemmd og stendur til að rýma hluta hússins. 29.5.2008 16:39
Vegfarandi undir Ingólfsfjalli segist aldrei hafa lent í öðru eins Kristinn Guðlaugsson var á ferð í sendiferðabíl undir Ingólfsfjalli þegar jarðskjálftinn reið yfir. Hann segist aldrei hafa lent í öðru eins. 29.5.2008 16:32
Fólk beðið um að halda sig utandyra Þeir sem þarfnast aðstoðar vegna skjálftans eru beðið um að hafa samband við Neyðarlínuna,112. 29.5.2008 16:30
Grjóthrun í Herjólfsdal Lögregla í Vestmannaeyjum segir grjót hafa hrunið niður í Herjólfsdal en ekki hafi enn verið tilkynnt um neitt tjón af völdum jarðskjálftans sem fannst þó glöggt þar. Vestmannaeyingur sendi meðfylgjandi mynd af grjóthruninu. 29.5.2008 16:29
Skjálftinn grynnri en sá sem var árið 2000 „Þessi skjálfti er að vissu leyti verri en sá sem var árið 2000 því að þessi er grynnri en sá sem var þá," segir Sigurður Ragnarsson, veðurfræðingur á Stöð 2. 29.5.2008 16:28
Brúnt moldarský yfir Ingólfsfjalli -Ég hélt að húsið myndi hrynja og að við myndum öll deyja, sagði Ásdís Sigurðardóttir, sem býr í fjölbýlishúsi að Fossvegi 2 á Selfossi, í samtali við Vísi. 29.5.2008 16:17
Hélt að þetta væri mitt síðasta Bergljót Davíðsdóttir blaðamaður er búsett í Hveragerði og hún hélt að það væri hennar síðasta þegar jarðskjálftinn reið yfir nú fyrir skömmu. 29.5.2008 16:15
Allar björgunarsveitir í Árnessýslu kallaðar út Töluverðar skemmdir hafa orðið á húsum á Selfossi vegna skjálftan sem reið yfir á fjórða tímanum. Verið að virkja Samhæfingastöðina í Skógarhlíð. 29.5.2008 16:14
Búið að loka Ölfusárbrúnni Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi er búið að loka Ölfusárbrúnni á meðan verið er að kanna skemmdir á hennni. Einnig hefur vegur við gosströnd farið í sundur sem og á veginum við Eyrarbakka. 29.5.2008 16:13
Allsherjarútkall Landsbjargar Allar björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Árnessýslu hafa verið kallaðar út vegna jarðskjálftans. Einnig hafa sveitir á höfuðborgarsvæðinu og í Rangárvallarsýslum verið settar í viðbragðsstöðu. 29.5.2008 16:12
Öflugur jarðskjálfti - 6,1 á Richter Öflugur jarðskjálfti reið yfir klukkan 15:45 í dag. Jarðfræðingur á Veðurstofunni sagði í samtali við Vísi að líklega hefði hann verið rúmlega 6 á Richter kvarðanum, sennilega á bilinu 6,1- 6,3. Upptök skjálftans voru í Ölfusi, nær Reykjavík en Suðurlandsskjálftarnir sem riðu yfir sumarið 2000. 29.5.2008 15:48
Slökkvilið kallað út í Kópavogi Tilkynnt var um reyk frá íbúðarhúsi í Skólagerði í vesturbæ Kópavogs fyrir stundu. Slökkvilið er á vettvangi en ekki er meira vitað um málavöxtu eins og er, að sögn lögreglu. 29.5.2008 15:41
Jarðskjálfti við Ingólfsfjall Jarðskjálfti sem mældist 3,2 á Richter varð við suðvesturenda Ingólfsfjalls, um 5 km norðvestur af Selfossi, í dag klukkan 14:41. Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að skjálftinn hafi orðið á um 5 kílómetra dýpi og að skjálftar séu ekki óalgengir á þessum slóðum. 29.5.2008 15:31
Játaði að hafa slegið öryggisvörð 10 11 með flösku Tuttugu og þriggja ára gamall maður játaði við þingfestingu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun að hafa slegið öryggisvörð 10 11-verslunar í höfuðið með flösku í byrjun apríl. 29.5.2008 15:25
Brynjar ver Guðmund í Byrginu „Já það er rétt, Guðmundur Jónsson hefur beðið mig að verja sig í Hæstarétti og það ætla ég að gera,“ segir Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður. 29.5.2008 14:50
Ella Dís búin að fá tíma í Kína „Við erum búnar að fá tíma í ágúst en ef eitthvað losnar fyrr ætla þeir að hafa samband,“ segir Ragna Erlendsdóttir móðir hinnar tveggja ára gömlu Ellu Dísar sem Vísir hefur fylgst með undanfarið. Ella Dís er á leiðinni til Kína í stofnfrumumeðferð þann 15.ágúst. 29.5.2008 14:36
Matseðill Condoleezzu Rice leyndarmál Þau eru ekki mörg hernaðarleyndarmálin sem íslensk stjórnvöld bera ábyrgð á að varðveita en eitt hefur nú bæst á listann. 29.5.2008 14:36
Icelandair hleypur í skarðið fyrir JetX Farþegar á vegum Heimsferða hafa nú beðið í hálfan sólarhring eftir því að komast í sólina í Alicante á Spáni. Vélin sem átti að flytja þá í nótt bilaði í Palmas og er enn þar. JetX, flugfélagið sem flýgur fyrir Heimsferðir greip því til þess að fá vél leigða hjá Icelandair til þess að ferja fólkið og er áætluð brottför hennar klukkan fjögur í dag. 29.5.2008 14:13
Íslendingurinn hefur það sæmilegt eftir árásina Þórir Jökull Þorsteinsson sendiráðsprestur Íslands í Kaupmannahöfn fór og hitti Ragnar Davíð Bjarnason sem varð fyrir árás í söluturninum Bobbys Kiosk í fyrrinótt. Þórir segir Ragnar sæmilegan en reiknar með að hann verði á sjúkrahúsinu fram yfir helgi. 29.5.2008 13:36
Vonast til að geta dregið uppsagnir til baka JB byggingarfélag hefur sagt upp 28 starfsmönnum fyrirtækisins og munu uppsagnirnar taka gildi á morgun. 29.5.2008 13:15
Óskar vill að Orkuveitan endurskoði ákvörðun um Bitruvirkjun Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, lagði á fundi borgarráðs í dag tillögu um að Orkuveita Reykjavíkur endurskoði ákvörðun sína um að hætta við Bitruvirkjun. Tillögunni var frestað. 29.5.2008 13:09
Skólakrakkar fagna 100 ára afmæli Hafnarfjarðar Í tilefni af hundrað ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar sem nú stendur yfir tóku skólakrakkar í bænum höndum saman. Um 750 krakkar söfnuðust saman á túni í bænum og mynduðu merki bæjarins og töluna hundrað á túninu. 29.5.2008 12:56