Fleiri
Vill funda með ráðherra um reykingabann 1.2.2008 23:35 86% styðja Ólaf Ragnar sem forseta 1.2.2008 20:30 Valt á Holtavörðuheiði 1.2.2008 22:31 Fær pólitískt hæli 1.2.2008 19:53 Vísir.is besti afþreyingavefurinn 1.2.2008 19:36 Sextíu og fjögur prósent segjast óánægð með Ólaf 1.2.2008 18:31 Fjöldi fíkniefnahunda hefur þrefaldast frá 2000 1.2.2008 18:16 Hæstiréttur klofnaði í afstöðu til farbannsúrskurðar 1.2.2008 17:19 Eftirlitsaðilar bregðist við brotum á reykingabanni Heilbrigðisráðuneytið hefur sent út bréf til heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, Vinnueftirlitsins, Flugmálastjórnar og Siglingamálastofnunar, lögregluembætta, Umhverfisstofnunar og Lýðheilsustöðvar þar sem fram kemur hvernig hægt sé að bregðast við brotum á lögum um tóbaksvarnir. 1.2.2008 17:01 Fjörutíu árekstrar í borginni í dag Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir hátt í fjörutíu árekstra hafa verið tilkynnta til lögreglu það sem af er degi. 1.2.2008 16:28 Létust þar sem þeir voru ekki í bílbeltum Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lokið rannsókn á tveimur banaslysum sem urðu í fyrra. Í báðum tilvikum má rekja dauða ökumanna meðal annars til þess að þeir voru ekki bílbelti og köstuðust þeir af þeim sökum út úr bílum sínum. 1.2.2008 16:28 Grunaðir smyglarar áfram í gæsluvarðhaldi Tveir menn voru í Héraðsdómi Reykjaness í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að smygli á rúmlega fimm kílóum af amfetamíni og kókaíni. 1.2.2008 16:13 HB Grandi fór í öllu að lögum HB Grandi hafnar því algjörlega að hafa ekki farið að lögum í uppsögnum starfsfólks í fiskivinnslunni á Akranesi. 1.2.2008 16:08 Faxaflóahafnir vilja Sundabraut í göng Ný stjórn Faxaflóahafna tekur undir þá ályktun borgarráðs að Sundabraut skuli leggja í göngum. Þá ítrekar félagið vilja sinn til að koma að framkvæmd verkefnisins. 1.2.2008 16:02 Nærri 300 Land Cruiser jeppar afhentir í janúar Ekkert lát virðist vera á bílakaupgleði landans ef marka má tölur sem Bílgreinasambandið hefur tekið saman. 1.2.2008 15:35 Launavandræði á Hvarfi bænum að kenna Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, segir það bæjarkerfinu að kenna að ekki voru til peningar til þess að greiða starfsfólki á leikskólanum hvarfi laun í morgun. Hann segir að reikningur sem bærinn átti að greiða hafi ekki verið greiddur og því hafi rekstraraðilar leiksskólans ekki átt fyrir launakostnaði. 1.2.2008 15:33 Skilyrði sett fyrir kaupum Kaupþings á hlut í Einkaklúbbnum Samkeppniseftirlitið hefur sett skilyrði fyrir kaupum Kaupþings á 49 prósenta hlut í Einkaklúbbnum ehf. sem nú ber heitið Ekort. 1.2.2008 15:26 SGS kallar eftir skilvirkari mótvægisaðgerðum vegna kvótaskerðingar Forysta Starfsgreinasambands Íslands kallaði eftir skilvirkari mótvægisaðgerðum vegna kvótaniðurskurðar á fundi sínum með forsætisráðherra, utanríkisráðherra og sjávarútvegsráðherra í dag um málefni fiskvinnslufólks. 1.2.2008 15:03 Stóð til að loka leikskólanum Hvarfi í dag vegna ógreiddra launa Foreldrar barna á leikskólanum Hvarfi í Vatnsendahverfi í Kópavogi fengu hringingu frá leikskólanum í dag og þau beðin um að sækja börnin sín. Ástæðan var sú að starfsmenn leikskólans höfðu ekki fengið greidd laun og því ætti að loka skólanum. Að sögn Eddu Guðrúnar Guðnadóttur, trúnaðarmanni starfsmanna á Hvarfi, kom þó ekki til þess þar sem laun voru greidd þegar fréttirnar fóru að kvisast út. 1.2.2008 14:44 Faxaflóahafnir tilbúnar til viðræðna við HB Granda Stjórn Faxaflóahafna lýsir sig reiðubúna að hefja þegar í stað viðræður og samvinnu við HB Granda ef félagið vilji byggja upp framtíðarstarfsemi sína á Akranesi. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundir stjórnarinnar í dag. 1.2.2008 14:12 Össur vill samstarf við ESB á sviði jarðhitamála Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra efndi í dag til ráðstefnu í Brussel í boði orkumálastjóra framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. 1.2.2008 14:03 Ný stjórn Orkuveitu Reykjavíkur kemur saman til fyrsta fundar Ný stjórn Orkuveitu Reykjavíkur kemur saman til síns fyrsta fundar nú klukkan tvö. Þar verða ýmis mál á dagskrá, þar á meðal málefni Reykjavík Energy Invest. 1.2.2008 13:32 Sjá næstu 50 fréttir
Fálkinn kominn langt með fýlinn Hungraður fálki sem náði fýl í Vestmannaeyjum í gær er búinn að éta meirihlutann af honum. Gísli Óskarsson fréttaritari Stöðvar 2 í Eyjum segir að það líti út fyrir að fýllinn hafi lent í átökum við fálkann og barist fyrir lífi sínu. Það megi merkja á því að lýsi sé á fjöðrum fálkans. Þannig hafi fýllinn náð að spýja lýsi á mótherja sinn áður en hann varð undir í baráttunni. 3.2.2008 17:06
Reykingamenn leituðu skjóls í Land Rover á Búðum Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambandsins lýsir á bloggsíðu sinni skemmtilegri dvöl á Hótel Búðum um helgina. Fyrir utan frábært eldhús og skemmtilega gátur Ævars Arnar Jósepssonar og Davíðs Þórs Jónssonar vakti úrræði reykingagesta athygli Guðmundar. 3.2.2008 16:47
Hanna Birna nýr forystumaður Sjálfstæðisflokksins? Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins er í Morgunblaðinu í dag talin framtíðarforystumaður flokksins í borgarmálum. Í Staksteinum segir að í kjölfar átaka á vettvangi stjórnmála komi stundum nýir forystumenn fram á sjónarsviðið. Það hafi gerst í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins frá því að meirihluti flokksins og Framsóknar féll í október. 3.2.2008 16:03
Breyta þarf lögum í samræmi við álit mannréttindanefndar Magnús Thoroddsen hæstaréttarlögmaður telur að breyta þurfi lögum í samræmi við álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið. Ísland sé aðili að alþjóðasamningnum og í úrskurðinum komi fram að ríkisstjórninni beri að taka tillit til hans og skila skýrslu innan 100 daga. 3.2.2008 14:22
Telur að borgarstjóri hafi ekki sætt ofsóknum Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur ekki að Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hafi sætt ofsóknum fjölmiðla í kjölfar valdaskipta í borgarstjórn nýverið. Í þætti Egils Helgasonar Silfri Egils sagði hann þó að gengið hefði verið nærri Ólafi. Munur væri á að að ganga nærri einhverjum eða ofsækja. 3.2.2008 14:15
Vill færa Árbæjarsafn í miðborgina Ólöf Nordal þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði í Silfri Egils fyrir stundu að hún teldi að leggja ætti Árbæjarsafnið niður og skila húsunum til baka til Reykjavíkur. Friðun húsa á Laugarvegi var til umræðu í þættinum. Bjarni Harðarson þingmaður fagnaði því að húsafriðun væri að taka við sér en taldi skyndifriðun húsanna við Laugaveg 4-6, 600 miljón króna klúður. 3.2.2008 12:45
Met í heitavatnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu Met var slegið í heitavatnsnotkun á höfuðborgarsvæðinu um hádegisbil í gær. Fólk er nú fara að skrúfa fyrir þar sem hlýnað hefur í veðri. 3.2.2008 12:30
Ákvörðun menntamálaráðherra um kristin gildi erfið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, segist gera sér grein fyrir óánægju margra sjálfstæðismanna með að tilvísun til kristins siðferðis skyldi felld úr skólastefnunni. Sjálf sé hún mjög kristin og hafi þurft að liggja lengi yfir málinu. 3.2.2008 12:03
Þyrla sótti slasaðan snjósleðamann Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan tvö í nótt til að sækja slasaðan snjósleðamann við Landmannahelli. Maðurinn hafði slasast á fæti og var talinn fótbrotinn. Hann var fluttur á slysadeild Landspítala í Fossvogi. 3.2.2008 10:27
Fangageymslur fullar hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu Nokkur erill var hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu og voru fangageymslur fullar en þeir sem þar gistu voru settir inn vegna ölvunar og óspekta. Þrír gistu fangaklefa lögreglunnar á Suðurnesjum af sömu orsökum. 3.2.2008 09:49
Tuttugu dæmi um mansal á Íslandi Minnst tuttugu dæmi um mansal hafa komið upp hér á landi. Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur í Alþjóðahúsi, segist hafa hitt minnst átta fórnarlömb síðustu fjögur árin. 3.2.2008 09:00
Lögreglan prófar rafbyssur Sérsveitarmenn lögreglunnar hafa undanfarnar vikur verið að prófa svokallaðar rafbyssur á æfingum sínum. Að æfingunum loknum verður tekin ákvörðun um það hvort lögreglan taki slíkar byssur í notkun. 2.2.2008 19:40
ASÍ segir málsók á HB Granda mögulega Grétar Þorsteinsson forseti Alþýðusambandsins segir koma til greina að fara í mál við HB Granda vegna uppsagna fiskverkafólks á Akranesi. Fyrirtækið hafi í nær öllum atriðum farið á svig við lög um hópuppsagnir. 2.2.2008 19:35
Ánægður með endurskoðun mótvægisaðgerða Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins segir ánægjulegt að ríkisstjórnin skuli ætla að endurskoða mótvægisaðgerðir sínar vegna niðurskurðar þorskkvótans enda hafi menn bent á það frá upphafi að þær myndu ekki gera það gagn sem þeim var ætlað. Best væri að auka þorskkvótann aftur innan fiskveiðiársins. 2.2.2008 18:54
Sjávarútvegsráðherra vill halda fiskvinnslu í landinu Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra segir að leita verði leiða til að halda fiskvinnslu í landinu. Hann segir útflutningsálagið, sem afnumið var í september í fyrra, ekki hafa gert það gagn sem vonast var til. 2.2.2008 18:45
Málshöfðun gegn HB Granda kemur vel til greina -ASÍ Verkalýðsfélag Akraness sakar HB Granda um að hafa ekki farið að lögum við uppsafnir 60 manna í fiskverkun fyrirtækisins á Skaganum. 2.2.2008 18:43
Arnbjörg er voða vond segir Mogginn Morgunblaðið skýrir frá því í dag að Arnbjörg Sveinsdóttir formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins stjórni með svo harðri hendi að þingmenn séu að verða brjálaðir. 2.2.2008 18:33
Myrkir músíkdagar hefjast á morgun Tónleikar Trio Lurra eru hluti Myrkra músíkdaga sem hefjast formlega klukkan 14 á morgun. Tónleikarnir verða í Salnum í Kópavogi kl. 20 á mánudagskvöldið. Þar verða flutt verk eftir innlenda og erlenda höfunda. 2.2.2008 16:25
Arnbjörg Sveinsdóttir gagnrýnd í Morgunblaðinu Arnbjörg Sveinsdóttir formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins er sökuð um að beita þingmenn flokksins hörðu varðandi ræðutíma þeirra á Alþingi. Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag kemur fram að hún sé einnig með ríkar skoðanir á því hvaða mál þingmenn flokksins eigi yfirleitt að tjá sig um. 2.2.2008 13:00
Hálka um allt land Hálka eða hálkublettir eru um allt land samkvæmt tilkynningu Vegagerðarinnar. Á Hellisheiði og í Þrengslum eru hálkublettir og á Suðurlandi einnig hálka og hálkublettir. Sömu sögu er að segja af öllum helstu leiðum á Vesturlandi eins og Bröttubrekku en snjóþekja og éljagangur er á Holtavörðuheiði. Snjóþekja er víða á Vestfjörðum og Ófært um Eyrarfjall. 2.2.2008 11:09
Flest skíðasvæði landsins opin Skíðasvæði landsins verða flest öll opin í dag. Í Bláfjöllum verða allar lyftur opnar frá klukkan tíu til sex í dag. Boðið verður upp á skíðakennslu fyrir byrjendur frá klukkan 11 og skíðaleigan og veitingasalan verður opin. 18 stiga frost er á svæðinu, lygnt og færi mjög gott. 2.2.2008 10:17
Konur halda körlum blót í Súgandafirði Í kvöld verður hið árlega þorrablóT Súgfirðinga haldið með pompi og prakt. Vefurinn bæjarins Besta greinir frá því að sá háttur sé á blótum sveitunga að annaðhvort ár haldi konur blótið til heiðurs bændum sínum, en hitt árið sjá karlarnir um góublót og bjóða þá konum sínum. Nú er ár kvennanna og hafa þær staðið að undirbúningnum fyrir blótið í kvöld. 2.2.2008 09:40
Þrír ölvaðir og þrír undir áhrifum fíkniefna Lögreglan á Selfossi tók þrjá ölvaða ökumenn úr umferð í nótt og einn, sem ók undir áhrifum fíkniefna. Þar með hafa átta verið teknir úr umferð í bænum á einum sólarhring, sem er óvenju mikið. Þar af voru tveir auk þess réttindalausir, og annar þeirra var á afskráðum bíl. 2.2.2008 09:18
Eftirlitsaðilar bregðist við brotum á reykingabanni Heilbrigðisráðuneytið hefur sent út bréf til heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, Vinnueftirlitsins, Flugmálastjórnar og Siglingamálastofnunar, lögregluembætta, Umhverfisstofnunar og Lýðheilsustöðvar þar sem fram kemur hvernig hægt sé að bregðast við brotum á lögum um tóbaksvarnir. 1.2.2008 17:01
Fjörutíu árekstrar í borginni í dag Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir hátt í fjörutíu árekstra hafa verið tilkynnta til lögreglu það sem af er degi. 1.2.2008 16:28
Létust þar sem þeir voru ekki í bílbeltum Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lokið rannsókn á tveimur banaslysum sem urðu í fyrra. Í báðum tilvikum má rekja dauða ökumanna meðal annars til þess að þeir voru ekki bílbelti og köstuðust þeir af þeim sökum út úr bílum sínum. 1.2.2008 16:28
Grunaðir smyglarar áfram í gæsluvarðhaldi Tveir menn voru í Héraðsdómi Reykjaness í dag úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að smygli á rúmlega fimm kílóum af amfetamíni og kókaíni. 1.2.2008 16:13
HB Grandi fór í öllu að lögum HB Grandi hafnar því algjörlega að hafa ekki farið að lögum í uppsögnum starfsfólks í fiskivinnslunni á Akranesi. 1.2.2008 16:08
Faxaflóahafnir vilja Sundabraut í göng Ný stjórn Faxaflóahafna tekur undir þá ályktun borgarráðs að Sundabraut skuli leggja í göngum. Þá ítrekar félagið vilja sinn til að koma að framkvæmd verkefnisins. 1.2.2008 16:02
Nærri 300 Land Cruiser jeppar afhentir í janúar Ekkert lát virðist vera á bílakaupgleði landans ef marka má tölur sem Bílgreinasambandið hefur tekið saman. 1.2.2008 15:35
Launavandræði á Hvarfi bænum að kenna Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar, segir það bæjarkerfinu að kenna að ekki voru til peningar til þess að greiða starfsfólki á leikskólanum hvarfi laun í morgun. Hann segir að reikningur sem bærinn átti að greiða hafi ekki verið greiddur og því hafi rekstraraðilar leiksskólans ekki átt fyrir launakostnaði. 1.2.2008 15:33
Skilyrði sett fyrir kaupum Kaupþings á hlut í Einkaklúbbnum Samkeppniseftirlitið hefur sett skilyrði fyrir kaupum Kaupþings á 49 prósenta hlut í Einkaklúbbnum ehf. sem nú ber heitið Ekort. 1.2.2008 15:26
SGS kallar eftir skilvirkari mótvægisaðgerðum vegna kvótaskerðingar Forysta Starfsgreinasambands Íslands kallaði eftir skilvirkari mótvægisaðgerðum vegna kvótaniðurskurðar á fundi sínum með forsætisráðherra, utanríkisráðherra og sjávarútvegsráðherra í dag um málefni fiskvinnslufólks. 1.2.2008 15:03
Stóð til að loka leikskólanum Hvarfi í dag vegna ógreiddra launa Foreldrar barna á leikskólanum Hvarfi í Vatnsendahverfi í Kópavogi fengu hringingu frá leikskólanum í dag og þau beðin um að sækja börnin sín. Ástæðan var sú að starfsmenn leikskólans höfðu ekki fengið greidd laun og því ætti að loka skólanum. Að sögn Eddu Guðrúnar Guðnadóttur, trúnaðarmanni starfsmanna á Hvarfi, kom þó ekki til þess þar sem laun voru greidd þegar fréttirnar fóru að kvisast út. 1.2.2008 14:44
Faxaflóahafnir tilbúnar til viðræðna við HB Granda Stjórn Faxaflóahafna lýsir sig reiðubúna að hefja þegar í stað viðræður og samvinnu við HB Granda ef félagið vilji byggja upp framtíðarstarfsemi sína á Akranesi. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundir stjórnarinnar í dag. 1.2.2008 14:12
Össur vill samstarf við ESB á sviði jarðhitamála Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra efndi í dag til ráðstefnu í Brussel í boði orkumálastjóra framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. 1.2.2008 14:03
Ný stjórn Orkuveitu Reykjavíkur kemur saman til fyrsta fundar Ný stjórn Orkuveitu Reykjavíkur kemur saman til síns fyrsta fundar nú klukkan tvö. Þar verða ýmis mál á dagskrá, þar á meðal málefni Reykjavík Energy Invest. 1.2.2008 13:32