Létust þar sem þeir voru ekki í bílbeltum 1. febrúar 2008 16:28 Ágúst Mogensen, forstöðumaður Rannsóknanefndar umferðarslysa.
Rannsóknarnefnd umferðarslysa hefur lokið rannsókn á tveimur banaslysum sem urðu í fyrra. Í báðum tilvikum má rekja dauða ökumanna meðal annars til þess að þeir voru ekki bílbelti og köstuðust þeir af þeim sökum út úr bílum sínum. Fyrra banaslysið varð í Hörgárdal í byrjun mars en þar hafnaði fólksbifreið út af veginum eftir að ökumaður hennar hafði misst stjórn á henni í hálku. Segir í skýrslu Rannsóknanefndar umferðaslysa að ökumaður hafi ekki verið með belti og eru líkur á að hann hefði lifað slysið af ef hann hefði verið með beltið spennt. Hins vegar segir einnig að ekki sé hægt að útiloka að orsök slyssins megi rekja til hjartasjúkdóms ökumanns en við réttarkrufningu kom hann í ljós. Óyggjandi er þó að dánarorsök mannsins voru þeir áverkar sem af slysinu hlutust. Þá bendir rannsóknarnefndin á að maðurinn hafi ekið of hratt miðað við þá hálku sem var á veginum og ósamstæðir hjólbarðar hafi verið að framan á bílnum. Enn fremur hafi veri hár brattur bakki fram af veginum þar sem bifreiðin fór út af og að mati rannsóknarnefndarinnar er því nauðsynlegt að lagfæra umhverfi vegarins, annaðhvort bæta öryggissvæði og fláa, eða setja upp vegrið. Mjög ölvaður undir stýri Síðara slysið varð á Þorlákshafnarvegi. Þar var ók maður bifreið sinni afar ógætilega út úr Hveragerði og og að sögn vitna var hún á mikilli ferð og nokkrum sinnum nærri því að lenda í árekstri við önnur ökutæki. Rétt sunnan afleggjarans að Grímslæk missti ökumaðurinn stjórn á bifreiðinni um það leyti sem hún mætti annarri bifreið og fór út af veginum á gagnstæðum vegarhelmingi. Bifreiðin valt nokkrar veltur, kastaðist yfir girðingu og endaði á toppnum. Við þetta kastaðist maðurinn út úr bifreiðinni, en hann var ekki spenntur í öryggisbelti. Áfengis- og lyfjapróf leiddu í ljós að ökumaður bifreiðarinnar var mjög ölvaður þegar slysið átti sér stað. Rannsóknarnefnd umferðarslysa tilgreinir þrjár orsakir banaslyssins, það er að ökumaður hafi verið mjög ölvaður, að hann hafi ekið of hratt og hafi ekki verið spenntur í öryggisbelti. „Rannsóknarnefnd umferðarslysa ítrekar fyrri ábendingar um skaðsemi ölvunaraksturs. Í þessu tilfelli var einnig um glannalegan hraðakstur að ræða og hefði getað farið verr ef árekstur hefði orðið við annað ökutæki eða óvarinn vegfarenda. Nefndin áréttar mikilvægi þess að aðstandendur tilkynni til lögreglu ef þeir verða varir við að einhver setjist undir stýri án þess að vera í ástandi til þess. Tafarlaust skal hringja í 112 í slíkum tilfellum því að mannslíf eru í húfi," segir í skýrslunni.Rannsóknarnefndin ítrekar einnig hversu mikilvægt það er að vera spenntur í öryggisbelti. Niðurstöður fjölmargra innlendra og erlendrarannsókna um gildi bílbelta séu ótvíræðar. Bílbeltanotkun dragi úr líkum á meiðslum og dauðsföllum í umferðinni.
Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Sjá meira