Tuttugu dæmi um mansal á Íslandi 3. febrúar 2008 09:00 Lögfræðingur Alþjóðahússins segist hafa hitt átta fórnarlömb mansals undanfarin fjögur ár.
Minnst tuttugu dæmi um mansal hafa komið upp hér á landi. Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur í Alþjóðahúsi, segist hafa hitt minnst átta fórnarlömb síðustu fjögur árin. Um falið vandamál sé að ræða og því megi búast við að fórnarlömbin séu enn fleiri. Gerð var óformleg könnun á vinnufundi með fulltrúum frá Stígamótum, Kvennaathvarfinu, lögreglunni, Alþjóðahúsi, Ríkislögreglustjóra, Ríkissaksóknara, Félagsþjónustunni og sjálfstætt starfandi lögmanni og kom þar fram að flestir fundarmanna höfðu hitt frá sex og upp í tuttugu fórnarlömb mansals hver. Um einhverja skörun getur verið að ræða. Margrét segir að birtingarmynd mansals geti verið með ýmsum hætti en fórnarlömbin eigi það öll sameiginlegt að flýja neyð og að bágar aðstæður þeirra séu misnotaðar. Í sumum tilvikum komi þau af fúsum og frjálsum vilja til landsins og gifting sé þeirra leið til að fá dvalarleyfi. Fórnarlömbunum sé oft stjórnað, þau ráði ekki yfir launum sínum og vegabréf hafi verið tekin af þeim. Innanlandssvið Rauða krossins ætlar að kanna mansal á Íslandi og stefnir að því að gera það í samstarfi við stjórnvöld. Helga G. Halldórsdóttir, sviðsstjóri hjá Rauða krossinum, segir að ýmislegt bendi til að mansal fyrirfinnist á Íslandi eins og í öðrum löndum. Umfang og eðli verði kannað fyrir árslok og sett verði upp aðgerðaáætlun um hvernig eigi að ná til þeirra verst stöddu. „Við höfum áhuga á að fá mynd af því hvers eðlis þetta vandamál er og til að komast að því þurfum við að gera rannsókn. Ef mansal fer hér fram þá er eðlilegt að við könnum það," segir Helga og gerir ráð fyrir að sömu útgáfur af mansali finnist hér og þekkjast annars staðar. Félagsmálaráðherra hefur skipað starfshóp sem á að fjalla um hvernig megi standa að gerð og framkvæmd heildstæðrar áætlunar gegn mansali á Íslandi.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira