Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tveggja mánaða skilorð fyrir að reyna að keyra niður fyrrverandi konuna sína Hæstiréttur staðfesti í dag fangelsisdóm yfir karlmanni sem sakaður var um að hafa stofnað lífi fyrrum konu sinnar í hættu. Maðurinn ók bifreið sinni að konunni sem tókst með naumindum að forða sér. Í dómnum kemur fram að karlmaðurinn hafi borið mjög þungan hug til konunnar og þykir sannað að hann hafi sett hana í háska með ófyrirleitnum hætti. 13.9.2007 17:23
Ölvuð undir stýri með barnið í bílnum Kona á fertugsaldri var tekin fyrir ölvunarakstur við gatnamót Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar síðdegis í gær. Með konunni í bílnum var barn hennar sem er á grunnskólaaldri. Þá var rúmlega þrítugur karl tekinn fyrir ölvunarakstur í nótt en sá var stöðvaður í Skútuvogi. 13.9.2007 17:15
Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Hæstiréttur dæmdi í dag Americo Luis Da Silva Conçalves í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga konu þann 10 september 2006 . Þá var hann dæmdur til að greiða fórnarlambinu eina milljón króna í miskabætur. Maðurinn fékk fjögurra ára fangelsi í héraði. 13.9.2007 16:57
Fékk ekki að kveðja eiginmann sinn eftir að honum var vísað úr landi Eiginkona rússnesks manns sem búsettur hefur verið hér á landi undanfarin tvö ár óttast um afdrif hans eftir að hann var rekinn úr landi í gær. Maðurinn, sem er frá Tjetjeníu, var sendur til baka til Rússlands og óttast kona hans að þar verði hann settur í fangelsi vegna uppruna síns. Lögreglan meinaði henni að kveðja hann á Leifsstöð í gær. 13.9.2007 16:40
Skilja þarf betur á milli einkaleyfis- og samkeppnisþátta raforkumarkaðar Samkeppniseftirlitsins telur að huga þurfi að aðgerðum til að virkja betur samkeppni á íslenskum raforkumarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu eftirlitsins í tilefni af því að í dag kom út skýrsla norrænu samkeppniseftirlitsstofnanna um raforkumarkaðinn. 13.9.2007 16:17
Geir fundar með forseta Írlands Geir H. Haarde, forsætisráðherra, fundaði í dag með frú Mary McAleese, forseta Írlands. Þá ræddi Geir um stöðu efnhags- og atvinnumála á Íslandi og Írlandi við Michael Martin, ráðherra iðnaðar-,viðskipta- og vinnumarkaðsmála. 13.9.2007 16:12
Stefna að því að koma á fót alhliða brjóstameinastöð Tveir hjúkrunarfræðingar vinna að því að koma á fót brjóstameinamiðstöð hér á landi þar sem konum sem greinast með brjóstakrabbamein og aðra sjúkdóma í brjóstum og aðstandendum þeirra verður boðið upp á alla þjónustu, allt frá greiningu til loka meðferðar. 13.9.2007 15:37
Lítið atvinnuleysi í landinu í ágúst Atvinnuleysi á landinu öllu mældist 0,9 prósent í nýliðnum ágústmánuði samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Þetta jafngildir því að 1.476 manns hafi verið án atvinnu í mánuðinum að meðaltali. Fleiri konur voru án atvinnu en karlar í síðasta mánuði. 13.9.2007 15:37
Býður vesturbæingum upp á heimsendingar með lyf Apótek Vesturlands býður vesturbæingum í Reykjavík upp á heimsendingar á lyfjum í auglýsingu sem apótekið birti í Vesturbæjarblaðinu í dag. Í auglýsingunni er fullyrt að Lyf og heilsa láti vesturbæinga niðurgreiða lyf vegna samkeppni á Akranesi. Eigandi Apóteks Vesturlands segist geta boðið vesturbæingum upp á allt að 76 prósent lægra lyfjaverð. 13.9.2007 14:41
Keppst um hver er sparneytnasti bíllinn Nú stendur yfir kappakstur á höfuðborgarsvæðinu þar sem markmiðið er ekki hraði heldur sparneytni bíla og lágan eldsneytiskostnað. Kappaksturinn er haldinn á vegum samráðsvettvangs atvinnulífs og Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands og Orkuveitu Reykjavíkur og taka 30 vistvænustu bifreiðar landsins þátt í honum. 13.9.2007 14:17
Yfir 300 ökumenn teknir fyrir hraðakstur á Bústaðavegi Alls eiga 322 ökumenn yfir höfði sér sekt vegna hraðaksturs á Bústaðavegi í gær og fyrradaga. Brot þeirra náðust á löggæslumyndavél á gatnamótum Bústaðavegar og Flugvallarvegar. 13.9.2007 14:00
Knúði mann til að taka fé af reikningi sínum með ofbeldi Karlmaður hefur verið ákærður fyrir bæði líkamsárás og rán fyrir að knýja annan mann með ofbeldi og hótunum um ofbeldi til þess að fara í banka og taka út fé af reikningum sínum. Ákæra á hendur manninum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 13.9.2007 13:51
Rektor braut klósett í reiðikasti Rektor Menntaskólans við Hamrahlíð braut í gær klósett sem nemendur höfðu ætlað að nota við busavígslu og hellti úr skálum reiði sinnar yfir þá. Nemendur voru miður sín eftir atvikið, en þeir höfðu fengið klósettið lánað fyrir vígsluna. 13.9.2007 13:44
Ríkisstofnunum fækkar Ríkisstofnunum fækkaði um 50 frá árunum 1998 til 2006 samkvæmt samantekt fjármálaráðuneytisins. Fjöldi starfsmanna hjá ríkisstofnunum var 21.600 í lok síðasta árs og um þriðjungur þeirra vann hjá heilbrigðisstofnunum. 13.9.2007 13:27
Tryggja verður að orkulindir verði í almannaeigu Formaður iðnaðarnefndar Alþingis segir að tryggja verði að orkulindir þjóðarinnar verði í almannaeigu. Formaður Framsóknarflokksins telur hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur orka tvímælis. 13.9.2007 13:04
Ekki komið nægilega til móts við fólk í sjávarútvegi Stjórnarandstaðan segir mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar við skerðingu þorskkvótans ekki koma nægilega til móts við sjómenn, fiskvinnslufólk og þau útgerðarfyrirtæki sem verði mest fyrir þorskskerðingunni. Sjávarútvegurinn standi jafn slyppur og snauður eftir aðgerðirnar. 13.9.2007 12:57
Sigurjón svikinn um stöðu framkvæmdastjóra Sigurjón Þórðarson fyrrverandi alþingismaður frjálslyndra, fær ekki stöðu framkvæmdastjóra flokksins, eins og honum hafði verið lofað, þegar hann vék sæti fyrir Kristni H. Gunnarssyni. 13.9.2007 12:29
Lúxussjávarafurðafyrirtæki komið í þrot Fyrirtæki sem framleitt hefur sæeyru við Eyjafjörð er gjaldþrota. Öllum starfsmönnum hefur verið sagt upp. 13.9.2007 12:00
Erlendir ferðamenn eyða þriðjungi meira en í fyrra Gjaldeyristekjur af ferðamönnum jukust verulega á öðrum fjórðungi ársins miðað við sama tímabil í fyrra eftir því sem segir í frétt frá Ferðamálastofu. Þar er vitnað í tölur frá Seðlabankanum sem sýni að neysla ferðamanna hafi aukist um nærri þriðjung, úr ellefu milljörðum króna í rúma 14 á tímabilinu. 13.9.2007 11:48
Kynbundinn launamunur hjá VR dregst saman um fjórðung Í nýrri launakönnun VR fyrir árið 2007 kemur fram að mjög hafi dregið í milli þegar kemur að launum karla og kvenna í félaginu. Könnunin sýnir að frá árinu 2000 hefur kynbundinn launamunur minnkað um fjórðung innan VR. Launamunurinn var 15,3% fyrir sjö árum síðan en í nýju könuninni mælist hann 11,6 %. 13.9.2007 11:44
Bæjarstjórar sáttir við mótvægisaðgerðir en vilja meira Fella þarf niður veiðileyfagjald og styrkja frekar bæjar- og hafnarsjóði til að auka mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna niðurskurðar í þorskkvóta. Þetta kemur fram í máli tveggja bæjarstjóra. Þeir fagna báðir aðgerðum ríkisstjórnarinnar. 13.9.2007 11:39
Hundrað kærðir í Lúkasarmálinu Lögreglan á Akureyri rannsakar nú hvort gefa eigi út ákæru á hendur hundrað einstaklingum sem Helgi Rafn Brynjarsson hefur kært fyrir meiðandi ummæli á netinu. Helgi var á sínum tíma sakaður um að hafa myrt hundinn Lúkas á Akureyri og í kjölfarið rigndi yfir hann hótunum. Lúkas reyndist síðan vera við hestaheilsu. 13.9.2007 11:23
Vegagerðin varar við óveðri á Kjalarnesi Vegagerðin varar við óveðri á Kjalarnesi og miklum vindhviðum í Kollarfirði en þar varð umferðarslys í morgun þegar rútu með 50 farþega var ekið inn í aurskriðu. 13.9.2007 11:02
Torfusamtökin fagna hugmyndum um uppbyggingu við Lækjartorg Verðlaunatillaga um byggingu svæðisins umhverfis Lækjartorg gefur mikilvægt fordæmi um hvernig standa megi að uppbyggingu í miðbæ Reykjavíkur í sátt við umhverfi og sögu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu Torfusamtakanna. Samtökin fagna þeirri ákvörðun borgaryfirvalda að verðlaunatillagan verði grundvöllur nýs deiliskipulags á svæðinu. 13.9.2007 11:02
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á og hóta lögreglumanni Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á og haft í hótunum við lögregluþjón við skyldustörf. 13.9.2007 10:42
Vill endurskipuleggja sjúkraflutninga í landinu Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur skipað vinnuhóp sem á að gera á tillögur um endurskipulag sjúkraflutninga í landinu. Vinnuhópurinn fær aðeins um tvo mánuði til að vinna verkefnið og er gert að skila tillögum sínum til ráðherra eigi síðar en 15. nóvember eftir því sem fram kemur á vef ráðuneytisins. 13.9.2007 10:34
Umferðaróhapp við Gullinbrú Bifhjólamaður missti stjórn á hjóli sínu við Gullinbrú í Grafarvogi laust fyrir klukkan átta í morgun með þeim afleiðingum að hann lenti í götunni. Maðurinn viðbeinsbrotnaði og var fluttur á slysadeild að sögn lögreglu. 13.9.2007 10:29
Actavis deilir við bandarískt fyrirtæki um einkaleyfi á verkjalyfi Actavis hefur lagt inn skráningu til bandaríska Matvæla- og lyfjaeftirlitsins fyrir samheitalyf verkjalyfsins Avinza en félagið véfengir einkaleyfi lyfjafyrirtækisins King Pharmaceuticals á lyfinu. 13.9.2007 10:24
Miklir búferlaflutningar til og frá landinu Tæplega 3800 erlendir ríkisborgarar fluttust til landsins á fyrri helmingi ársins samkvæmt tölum Hagstofunnar. Það er álíka há tala og undanfarin tvö ár. Hins hefur brottfluttum útlendingum fjölgað nokkuð frá fyrri árum en þeir voru rúmlega 1100 á fyrri helmingi ársins. 13.9.2007 09:11
Upplýsir um laun Páls á sínum forsendum Ómar Benediktsson, stjórnarformaður RÚV ohf, neitar að upplýsa Vísi um mánaðarlaun Páls Magnússonar útvarpsstjóra. Hann ætlar að birta þau á eigin forsendum á næsta ári. Leynd hefur líkt yfir launum Páls frá því að RÚV var breytt í opinbert hlutafélag en heimildir Vísis herma að þau sé töluvert hærri heldur en þær 718 þúsund krónur sem hann fékk á mánuði áður en breytingin átti sér stað fyrr á þessu ári. 13.9.2007 09:09
Yfir 15 þúsund fengu sér pylsu og kók Ríflega 305 þúsund krónur söfnuðust um helgina þegar Bæjarins beztu buðu upp á pylsu og kók á 20 krónur til styrktar Konukoti. Þetta gerðu eigendur Bæjarins beztu í tilefni 70 ára afmælis fyrirtækisins og út frá þessu má reikna að 15.277 hafi fengið sér pylsu og kók. 13.9.2007 09:00
Forsætisráðherra Írlands virðist spilltur upp fyrir haus Forsætisráðherra Írlands, Bertie Ahern, mætir fyrir nefnd á fimmtudaginn þar sem hann þarf að svara fyrir meinta spillingu. Hann er sagður hafa þegið fjárgreiðslur frá kunningum og kaupsýslumönnum á tíunda áratug síðustu aldar þegar hann sat í stóli fjármálaráðherra. 12.9.2007 23:14
Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem var í síðustu viku dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir ýmis auðgunarbrot og er grunaður um önnur afbrot eftir að dómur var kveðinn. Maðurinn skal sæta varðhaldi þar til dómur fellur í Hæstarétti en þó eigi lengur en til föstudagsins 5. október 2007. 12.9.2007 22:44
Ákærður fyrir ólöglegar kvikmyndasýningar Eigandi veitingastaðarins Kaffi Kró í Vestmannaeytjum hefur verið lögsóttur fyrir að sýna gestum veitingastaðarins í nokkur skipti mynd Heiðars Marteinssonar "Uppbyggingin - Eldgosið í Heimaey" sumarið 2004. 12.9.2007 21:24
Ófært á Austfjörðum Á Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og í Oddskarði hefur myndast krapi. Eru vegfarendur sem eru á ferð á þessum svæðum beðnir um að gæta varúðar. 12.9.2007 20:49
Slökkviliðið sinnti útkalli í slökkvistöðinni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þurfti ekki að fara langt til að sinna aðstoðarbeiðni vegna vatnsleka í höfuðborginni um sjöleytið í kvöld. Lekinn kom nefnilega upp í kjallara í sjálfri slökkvistöðinni við Skógarhlíð. Frárennslislagnir eru orðnar lélegar þar og létu undan í rigningarsuddanum í dag. Að sögn slökkviliðsins gekk ágætlega að hreinsa vatnið og litlar sem engar skemmdir urðu sökum lekans. 12.9.2007 20:31
Frændi Bretadrottningar afhjúpar minnisvarða Hertoginn af Kent, náfrændi Bretadrottningar, afhjúpaði í Fossvogskirkjugarði nú síðdegis minnisvarða um flugmenn bandamanna sem dvöldu hérlendis á árum síðari heimstyrjaldarinnar. 12.9.2007 19:12
Veiturnar verði almannaeign Össur Skarhéðinsson iðnaðarráðherra leggst gegn því að fjárfestar á markaði geti eignast almannaveitur og telur mikilvægt að tryggja að þær verði í félagslegri meirihlutaeign. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, vill ekki að útlendingar laumist bakdyramegin í orkulindir þjóðarinnar. 12.9.2007 19:09
Sögð mikilvægasta nefnd ríkisstjórnarinnar Hvað á að virkja og hvað á að friða? Nefnd, sem sögð er sú mikilvægasta sem ríkisstjórnin hefur skipað, er ætlað að svara þessum grundvallarspurningum á næstu tveimur árum. 12.9.2007 19:06
Vestfirðingar stefna á sjávarútvegsháskóla Vestfirðingar hafa sett stefnuna á eigin háskóla á Ísafirði strax á næsta ári. Þeir vilja að hann sérhæfi sig í fræðum sem lúta að hafinu. 12.9.2007 19:04
Búið að samþykkja tvöföldun Suðurlandsvegar Kjartan Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að búið sé að samþykkja að tvöfalda veginn frá Reykjavík að Selfoss. Það hafi verið gert í síðustu samgönguáætlun sem samþykkt var á liðnu þingi. Kjartan segir að Vegagerðin vinni nú að skipulagi þessa vegar ásamt viðkomandi sveitarfélögum. Þegar skipulagið verði samþykkt muni framkvæmdir hefjast. 12.9.2007 18:57
Tæplega 1700 athugasemdir vegna Kársness Kópavogsbæ barst athugasemdir frá 1674 einstaklingum og samtökum við hugmyndir að skipulagi á hafnarsvæði á Kársnesi. Þar af bárust 1117 athugasemdir af Kársnesinu sjálfu. Langflestar þeirra voru sendar inn eftir að bæjarráð Kópavogs ákvað að framlengja athugasemdafrestinn til 3. september. 12.9.2007 18:37
Vegarkaflinn milli Hveragerðis og Selfoss eins og Miklabrautin Vegurinn á milli Hveragerðis og Selfoss er orðinn eins og Miklabrautin í Reykjavík segir sýslumaðurinn á Selfossi og telur brýnt að hann verði tvöfaldaður strax. Tvö banaslys hafa orðið á veginum á þessu ári með stuttu millibili. 12.9.2007 18:34
Íslendingar kaupa þrjú hótel og veitingastaði í Kaupmannahöfn Þrjú þekktustu hótel Kaupmannahafnar eru nú í eigu Íslendinga. Fjárfestingarfélagið Nordic Partners hefur meðal annars keypt hið sögufræga hótel D’Anglaterre. 12.9.2007 18:30
Þrjár Boeing vélar fljúga frá Egilsstöðum í kvöld Á miðnætti fara þrjár Boeing flugvélar frá Egilsstaðarflugvelli á sama tíma til Tallinn borgar í Eistlandi. Þetta er fjölmennasta flug frá þessum flugvelli á einum tíma. Alls fljúga 378 manns í þessu flugi sem er skipulagt af ferðaskrifstofunni Trans-Atlantic á Akureyri. Stærsti hópurinn af þessum farþegum er starfsmannahópur frá Síldarvinnslunni á Neskaupsstað. 12.9.2007 18:04