Innlent

Þrjár Boeing vélar fljúga frá Egilsstöðum í kvöld

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það verða engar Boeing 787 Dreamliner vélar á Egilsstöðum í kvöld - en samt Boeing vélar.
Það verða engar Boeing 787 Dreamliner vélar á Egilsstöðum í kvöld - en samt Boeing vélar.

Á miðnætti fara þrjár Boeing flugvélar frá Egilsstaðarflugvelli á sama tíma til Tallinn borgar í Eistlandi. Þetta er fjölmennasta flug frá þessum flugvelli á einum tíma. Alls fljúga 378 manns í þessu flugi sem er skipulagt af ferðaskrifstofunni Trans-Atlantic á Akureyri. Stærsti hópurinn af þessum farþegum er starfsmannahópur frá Síldarvinnslunni á Neskaupsstað.

Aukin aðsókn hefur verið í millilandaflug frá Egilsstaðarflugvelli. Í fyrra var fjölmennt flug frá Egilsstöðum til Tallinn borgar með rétt yfir 300 starfsmenn á vegum Skinney-Þinganes sem þá fagnaði 60 ára afmæli, segir í tilkynningu frá Trans-Atlantic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×